Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ2006
Fréttir DV
Skógarborg
flytur
Leikskólinn
Skógarborg er flutt-
ur í nýtt og rúm-
gott húsnæði við
Efstaland 28. Þar er
rými fyrir 55 börn
á þremur deildum;
Óskasteini, Álfasteini og
Huldusteini. Stórt leiksvæði
í einstakri náttúru Foss-
vogsdalsins er í kringum
leikskólann og er hann vel
búinn leiktækjum. Skógar-
borg hefur starfað óslitið
síðan 1969 og hófst starf-
semin í litlu húsi við Klifveg
en það var upphaflega sum-
arbústaður.
Kastaði gler-
íláti í andlit
Ragnar Kristmunds-
son, rúmlega tvítugur
maður úr Ólafsvík er
ákærður af ríkissak-
sóknara fyrir sérstak-
lega hættulega
líkamsárás. Er
honum gefið að sök
að hafa, aðfaranótt laugar-
dagsins 15. apríl kastað
gleríláti í andlit jafnaldra síns
með þeim afleiðingum að
hann hlaut 3,5 sm langan og
1 sm djúpan skurð á enni
ofan við vinstra gagnauga,
rispu yfir nef og á kinn og
mar í andliti. Fómarlambið
gerir bótakröfu að upphæð
400 þúsund krónur og
ákæruvaidið krefst refsingar.
Sexárfyrir
smygl
Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi á dögunum
Tryggva Lámsson í sex ára
fangelsi fyrir að hafa flutt inn
rúm sjö kfló af amfetamíni
frá Rotterdam. Var málið síð-
asti afkimi Dettifossmálsins
en auk Tryggva vom Elísabet
Arnardóttir og Óli Haukur
Valtýsson dæmd fýrir inn-
flutninginn. Tryggvi hafði
setið í gæsluvarðhaldi í rúma
fimmtán mánuði uns honum
var sleppt í desember síðast-
liðnum. Héraðsdómur hafði
áður dæmt Tryggva til sex
ára fangelsisvistar en Hæsti-
réttur vísaði málinu heim í
hérað. Málinu hefur nú verið
áfrýjað til Hæstaréttar.
Dómari
hundsar
Hæstarétt
„Það er mjög sérstakt í
þessum dómi að dómari
skeytir engu um þær meld-
ingar sem komu fram í dómi
Hæstaréttar,'1 segir Sveinn
Andri Sveinsson, verjandi
Tryggva Lárussonar sem nú
hefur áfrýjað til Hæstarétt-
ar. „Ákærangengurútfráþví
að fíkniefnin hafi verið keypt
á tilteknum tíma í Hollandi.
Ákærði sýndi fram á það í
vöm sinni að hann hafi verið
í allt öðm landi þegar fíkni-
efnakaupin áttu sér stað,"
segir Sveinn Andri og vís-
ar til fjölda vitna sem borið
hafaumþað. „Héraðsdóm-
ari er að raska möguleikum
ákærða á vöm sinni með því
að víkja frá dagsetningum í
málinu," segir hann og vísar
í að Hæstiréttur hefði fundið
margt að fyrri héraðsdómi en
Guðjón St. Marteinsson hafi
látið athugasemdir sem vind
umeyruþjóta.
Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaöur KB banka, hyggur á byggingu eins
flottasta sumarhúss landsins á jörö sinni Veiðilæk í Borgarfirði. Hann hefur fengið
teikningar samþykktar og mun bygging hússins hefjast fljótlega.
Eitt glæsilegasta sumarhús landsins mun rísa við Norðurá í
Borgarfirði áður en þetta ár er úti. Sigurður Einarsson, starfandi
stjórnarformaður KB banka, hyggst reisa 500 fermetra sumarhöll
ásamt öðrum byggingum á j örð sinn Veiðilæk við Norðurá. Hann
hefur fengið teikningar samþykktar af skipulagsyfirvöldum í
Borgarbyggð og má búast við að framkvæmdir hefjist fljódega.
Samkvæmt samþykkt umhverfis-
skipulagsnefndar í Borgarbyggð hafa
Sigurður og fjölskylda hans leyfi til
að reisa tæplega 500 fermetra sumar-
höll, um 120 fermetra skemmu og 57
fermetra saunahús á jörðinni Veiði-
læk, sem er um 11 hektara jörð við
Norðurá.
Höll fyrir 200 milljónir
Eins og sést á meðfylgjandi mynd-
um er ekkert til sparað hjá Sigurði til
að fjölskylda hans hafi það sem nota-
legast á meðan hún dvelur í Borgar-
firðinum. Heimildir DV herma að
byggður verði 50 fermetra vínkjall-
ari undir húsinu og að kostnaðurinn
hljóði upp á 200 milljónir.
Borgaði 60 milljónir fyrir
jörðina
DV ræddi í gær við aðila sem gjör-
þekkja aðstæður á Veiðilæk og segja
þeir að jörðin sé fyrst og fremst úti-
vistarsvæði og afar falleg sem slíkt.
Jörðin hafi aldrei verið búskaparjörð
og búskapur ku hafa lagst þar af um
1950. Ekki hefur verið búið á jörðinni
undanfarin 25 ár. Sigurður eignaðist
jörðina fyrir fjórum árum og borg-
aði um 60 milljónir fyrir hana, sam-
Heimildir DV herma að
byggður verði 50 fer-
metravínkjallari undir
húsinu og að kostnað-
urinn hljóði upp á 200
milljónir.
kvæmt heimildum DV. Henni fylgja
einhver veiðiréttindi í Norðurá, einni
vinsælustu laxveiðiá landsins.
Ekki á vonarvöl
Sigurður Einarsson er ekki á von-
arvöl. Hann hefur leitt Kaupþing og
síðar KB banka til gífurlegs vaxtar
á undanförnum árum og ekki far-
ið varhluta af því sjálfur. Hann er
nú stærsti einstaki hluthaf-
inn í bankanum og er hlut-
ur hans metinn á 4,6 millj-
arða. Sigurður hefur auk
þess verið einn af launa-
hæstu mönnum landsins
undanfarin ár, með mán-
aðarlaun upp á fimm til sex
milljónir.
oskar@dv.is