Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Blaðsíða 52
60 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ2006
Helgin PV
Fékk fótboltaáhugann
með móðurmjólkinni
Fyrirliði íslenska landsliðsins Eiður
Smári Guðjohnsen er án efa á meðal
þekktustu íslendinga. Eiður Smári hefur
slegið í gegn i enska boltanum og hefur
nú landað glæsilegum samningi við eitt
frægasta félagslið heims. Eiður Smári
hefur ekki látið velgengnina stíga sér til
höfuðs og er vel niðri á jörðinni. Hann
hefur orðið fyrir barðinu á kjaftasögum
og meiðslum en alltaf staðið uppréttur.
Stendur við bakið á sfnum manni
Ragnhildur Sveinsdúttir unnusta Eiðs
og einn sona þeirra taka hér við viður-
kenningu fyrir hans hönd.
Pantaði einkaþotu fyrir Sveppa
Á þessum tíma kynntíst hann
besta vini sínum, Sverri Þór Sverris-
syni fjölmiðlamanni, betur þekktum
sem Sveppa í Strákunum. Eiður hefur
reglulega birst í sjónvarpsþættí vinar
síns og dylst engum að mikil vinátta er
þeirra í millum. Eiður Smári hefur
meira að segja gefið í skyn að Sveppa
fylgi mikil gæfa og einn daginn
birtust fréttir um að hann hefði
pantaði eitt stykki einkaþotu
handa Sveppa og fjölskyldu hans
svo vinurinn gætí fylgst með
viðureign Chelsea gegn Liverpool
á Anfield Road í þeirri von að
lukkudísimar kæmu með í
farteskinu.
Gekk í kaþólskan
nunnuskóla
N ámið lá alltaf vel fyrir Eiði
en hann gekk í kaþólskan
skóla í Belgíu sem rekinn var
af ströngum nunnum. Þar
gekk honum vel og lærði að
tileinka sér þann aga sem
nauðsynlegur er til að ná
langt í íþróttum. Þrátt fyrir
augljósa knattspymuhæfi-
leika Eiðs sem bams
ákváðu foreldrar
hans að leyfa hon-
um að spila með
litlum liðum í stað
þess að koma hon-
um að hjá stóm lið-
unum. Engin sér-
stök stefna var sett á
atvinnumennsku
segem í Bmssel þar sem hann byrjaði
í bamaskóla og lærði flæmsku. Þegar
Eiður var 12 ára skildu foreldrar hans
og Eiður fluttíst til íslands og fór í
Snælandsskóla í Kópavogi. Eftir gagn-
ff æðaskólann varð Menntaskólinn við
Sund fyrir valinu en Eiður stoppaði
stutt í MS þar sem draumurinn um at-
vinnumennsku rættíst.
Lifði og hrærðist í
knattspyrnunni
Snemma lá fyrir að Eiður hafði sér-
staka hæfleika með boltann og sam-
kvæmt þeim sem til hans þekkja var
hann með boltann á tánum um leið
og hann lærði að ganga. Vegna ferils
föður sfns fékk hann góða innsýn inn í
knattspyrnuheiminn sem hefur lík-
lega komið honum vel enda margar
hættumar sem leynast í kringum líf
frægra knattspymustjama. Foreldrar
hans lifðu og hrærðust í þessum
heimi sem Eiður lifir nú í og Eiður
fylgdi með enda eina bam foreldra
sinna á þessum tíma. Sá tími veittí
honum gott veganestí út í lffið þar
sem hann lærði að umgangast full-
orðið fólk og tíleinka sér mannasiði og
kurteisi sem hann býr enn að í dag. í
sumarfríum fór fjölskyldan reglulega
til fslands þar sem Eiður æfði fótbolta
með ÍR og síðar Val en aðeins 15 ára
var hann kominn í hóp bestu knatt-
spymumanna landsins.
Eiður Smári Guðjohnsen er dáð-
asti, ríkasti og líklega besti íþrótta-
maður íslands. Eiður Smári fæddist
þann 15. september árið 1978 í
Reykjavík og verður því 28 ára í haust.
Hann er sonur Arnórs Guðjohnsens
og Ólafar Einarsdóttur. Eiður á ekki
langt að sækja knattspyrnuhæfileik-
ana þar sem faðir hans, Amór, var um
tíma einn ástsælastí knattspymumað-
ur landsins en hann starfar nú sem
umboðsmaður sonar síns. Eiður
Smári hefur verið mikið í fréttunum
upp á síðkastíð enda búinn að ná
lengra en nokkur annar íslenskur
knattspymumaður með því að landa
samningi við eitt frægasta og besta fé-
lagslið heims, Barcelona. Þar mun
hann spila við hlið margra frábærra
knattspyrnumanna eins og brasilísku
stjömunnar Ronaldinho sem er af
- flestum talinn sá allra færastí í heimi.
Draumurinn rættist
Fimm vikna fluttíst Eiður Smári
með foreldrum sínum til Belgíu þar
sem faðir hans var atvinnumaður í
fótbolta. Fjölskyldan bjó í Lokeren þar
sem Eiður dvaldi til fimm ára aldurs.
Þaðan lá leiðin til smáþorpsins Bms-
(þróttamaður ársins Eiður
var valinn iþróttamaður ársins
2004 og 2005 og varþarmeð
fyrsti knattspyrnumaðurinn til
að vera kosinn tvö ár í röð.
en þar sem hæfileikamir og áhuginn
vom sannarlega til staðar þróaðist líf
hans á þann veginn.
Hlédrægur og heldur sér á
jörðinni
Mamma Eiðs, Ólöf, er að vonum
afar stolt af syninum. „Ég er ofsalega
stolt af honum og ekki bara í fótbolt-
anum heldur öllu. Mér finnst þetta al-
veg stórkostlegt og ekki aðeins fyrir
hann heldur líka fyrir ísland í heild
sinni. Hann er líklega kominn lengra
en nokkur annar íslenskur knatt-
spyrnumaður hefur komist," segir
Olöf og bætir við að Eiður hafi alltaf
verið sérlega ljúfur í umgengni og
skemmtilegur sonur sem h'tíð hafi far-
ið fyrir. „Þegar sá gállinn er á honum
getur hann verið hrókur alls fagnaðar
en hann er í rauninni frekar hlédræg-
ur og villl helst ekkert umstang í kring-
um sig,“ segir mamma hans og heldur
áfram: „Eiður er góður í sér, bæði við
fjölskylduna og vini sína. Honum hef-
ur tekist halda sér niðri á jörðinni
þrátt fyrir velgengni enda lærði hann
sem bam að það er ýmislegt sem get-
ur gengið á í þessum heimi," segir
Ólöf en bætir við að Ragnhildur
unnusta hans eigi einnig hrós skilið.
„Það nær enginn svona langt í þessum
bransa nema eiga góða fjölskyldu og
velgengnin er ekki síst henni að
þakka. Það er gott að eiga góðan sam-
starfsaðila og Ragnhildur og synimir
em yndisleg."
Eiður Smári var einkabam ffam
eftir aldri þar til foreldrar hans skildu.
Faðir hans eignaðist svo tvo syni og
móðir hans dóttur. öll systkinin em á
„Mér finnst þetta al-
veg stórkostulegt og
ekki aðeins fyrir hann
heldur líka fyrir ísland
í heild sinni."
kafi í fótbolta og em að vonum stolt af
stóra bróður þótt þau skilji líklega ekki
alltaf umstangið í kringum hann því
fyrir þeim er hann að sjálfsögðu fyrst
og fremst stóri bróðir þeirra.
Þriggja barna fjölskyldufaðir
Eiður Smári kynntíst æskuástinni
sinni, Ragnhildi Sveinsdóttur, í Snæ-
landsskóla þegar þau vom enn í gagn-
fræðaskóla. Ragnhildur hefur staðið
eins og klettur við hlið manns síns frá
upphafi og meðal annars tekið við
verðlaunum fyrir hans hönd. Hún vill
h'tíð tjá sig um mann sinn í fjölmiðlum
en segir Eið ffábæran föður og fjöl-
skyldumann. „Hann er alveg ffábær,
það er bara eitt orð yfir hann," segir
Ragnhildur um mann sinn en fjöl-
skyldan hefur bæði átt aðsetur í Bret-
landi og á íslandi. Unga parið er ekki
gift en þau eiga saman þrjá syni. Sá
elstí, Sveinn Aron, fæddist þann 12.
maí 1998 en Andri Lucas fæddist þann
29. janúar 2002. Yngsta barnið þeirra,
Daniel Tristan, kom svo í heiminn 1.
mars á þessu ári. „Strákamir vita af
þessu nú þegar og em að vonum
spenntír yfir að vera að fá litla systur
eða lítinn bróður," sagði Steinunn
Pétursdóttir tengdamóðir Eiðs Smára
þegar fréttimar um erfingjann bámst
til fjölmiðla.
Erfið meiðsl setja strik í
reikninginn
Ferill Eiðs hefur ekki alltaf verið
dans á rósum og htlu munaði að illa
færi þegar hann var aðeins 17 ára og
slasaðist í leik unglingalandsliðsins
gegn Eistlandi. Meiðslin tóku á Eið
sem var frá vellinum í rúm tvö ár.
Læknar í Hollandi töldu að ferill hans
væri liklega á enda en Eiður og aðrir í
fjölskyldu hans neimðu að trúa því. Sú
þrjóska borgaði sig enda var Eiður
fljótt mættur aftur á æfingar staðráð-
inn í að jafria sig að fullu. í dag er hann
á toppi ferils síns, hefur spilað með
Bolton og ríkasta liði heims, Chelsea,
þar sem hann landaði á sínum tí'ma
risasamningi sem tryggði honum
rúmar fimm milljónir á viku auk þess
sem hann er fyrirliði íslenska landshð-
ins.
Góðhjartaður og skynsamur
drengur
Eggert Skúlason fréttamaður hefur
starfað sem talsmaður Eiðs Smára
undanfama mánuði. Eggert segist
hafa kynnst mörgum stjömum í gegn-
um starf sitt og að hann getí flokkað
þær flestar í tvo hópa. „Annars vegar
em þær sem em mjög uppteknar af
því að vera stjömur og bera með sér
ákveðinn hroka. Það er strákurinn al-
veg laus við. Eiður Smári er vel niðri á
jörðinni og ber virðingu fyrir öðm
fólki. Hann er góðhjartaður og skyn-
samur strákur," segir Eggert. Að-
spurður segir hann Eið verða fyrir