Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Blaðsíða 43
PV Helgin FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ2006 51 Næturdrottningin: Báru vor komid o övart i tilefni sjötugsofmælis hennar og hun krynrí Nxturdrottningin o Koffi Romance. Hei ei hun med Dollu, fyrrveranríi tengríoríottur sinni, Snúllu, frú Astridi H. Anríersen, fyrrveronríi senríiherrofru og i boksýn mo sjo Svövu Johonsen. finnast sem vinátta okkar skipti hana miklu máli. Auk þess að kenna mér margt um lífið, kenndi hún mér líka margt um hárgreiðslu." Hreinskiptin og heiðarleg. „Bára sagði aldrei neitt nema meina það," segir Ragnheiður Eide. „Hún hafði þann eiginleika að kalla fram það besta í fari hvers og eins. Hún gat leiðbeint vinum sínum og sagt hlutina hreint út án þess nokkurn tíma að særa. Ég þekkti hana í næstum sjötíu ár og það er heilagt sambandið sem maður á við æskuvini sína. Bára hafði sjálfstraust og hún dreif í hlutunum. Hún byrjaði á mörgu og hélt ótrauð áfram þótt eitthvað bjátaði á. Hún var óskap- lega dugleg manneskja og ég held að manngæska hennar hafi gert það að verkum að hún varð aldrei gömul, hvorki í tali né útfiti." Snúlla segir að sér hafi þótt mjög vcent um Báru, sem hún telur að hafi verið misskilin afhluta þjóðarinnar: „Bára var góð við litla manninn, miðmanninn og stóra manninn. Hún hélt reisninni allt sitt líf, sama hvað á dundi. Það var líka í Báru stíl að fara fljótt eftir að hún greind- ist með krabbamein og fá að sofna í sínu rúmi. Það hefði ekki verið henn- ar stíll að verða öðrum háð á sjúkra- stofnun." Fyrir nokkrum árum bjó Snúlla til lítinn dömuklúbb, dömurnar hitt- ust nokkrum sinnum á ári og borð- uðu hádegisverð saman, til skiptis á heimilum hverrar annarrar. Fyrir þremur árum sagði Bára okkur í slík- um hádegisverði að Maðurinn með Ijáinn hefði heimsóttsig: „Ég vaknaði viö að hann stóð yfir mér, en ég steytti bara hnef- ann framan í hann og sagði: Ég er EKKI tilbúin að fara strax!" Þegar kom að Báru að halda veislu, var það ekki hádegisverðar- boð, heldur kvöldverður að hœtti keisara. Við vöktum til klukkan fjög- ur um nóttina - en frú Bárafór ekki að sofa þegar viðfórum: „Hvað ertu þreytt?" spurði hún hlcejandi daginn eftir. „Þegar þiðfóruð fór ég að vaska upp og hlusta á óperur." Ekta Bára. Áratugum eldri en við en sú allra hressasta. Alltaf. Fegurðin aðinnan „Bára kenndi mér svo ótal margt, meðal annars það að meta óperur," segir besta vinkona Báru síðustu árin Kristín Johansen. „Við þekkt- umst í fimmtíu ár, en urðum bestu vinkonur eftir andlát Péturs manns- ins hennar, þegar við fórum að ferð- ast saman. Bára vildi sýna mér allan heiminn. Við keyrðum um alla Evr- ópu og alls staðar var Bára á heima- velli. Hún vitnaði oft til þess að Pét- ur hefði verið manna fróðastur um menningu og siði landanna, miðlað af þekkingu sinni til sín og hún virt- ist vilja miðla henni áfram til mín. Það sem mér fannst mest heillandi við Báru við fyrstu kynni var auðvit- að útlit hennar og glæsileikinn sem einkenndi hana. Þegar ég kynntist henni var það ekki fegurðin að utan sem heillaði mest, því Bára var jafn falleg að innan sem utan. Hún var traustur vinur og leiddi mig inn í heima sem ég hafði ekki þekkt. Við- kvæðið hjá mér við hver ferðalok var: „Hvert ætlarðu með mig næst?" Núna, eftir að hún lést, tala ég stundum við hana og segi henni að hún hafi átt eftir að fara svo margt með mér og sýna mér. Þótt ekki væri nema í Bárukot fyrir austan, þar sem við ætluðum að verja tíma saman í sumar. Bára var einstaklega greiðvikin og það var ekkert sem hún neitaði fólki um. Hún var beð- in um að lána íbúðina sína nokkrum sinnum við gerð auglýsinga og sjón- varpsþátta og alltaf var það jafn vel- komið. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa. Hún var mikil húsmóðir. Eft- ir að hún greindist með krabbamein í maga og lifur kom ég til hennar þar sem hún var að pússa silfrið: „Ég ætla að skilja við allt hreint þegar ég fer!" sagði hún brosandi. Og þannig kvaddi hún, með allt hreint í kring- um sig, sólgleraugun á náttborðinu og smá lögg af Chivas Regal í glas- inu. Hún var sátt við að kveðja." Hið eilífa fiðrildi íaugum karlmanna varBára hin sanna ímynd kvenleika. Einn þeirra sem kynntist henni vel var Ingólf- ur Margeirsson, sem skráði lífssögu hennar árið 1992, en þá starfaði hann hjá bókaútgáfu Orlygs Hálf- dánarsonar. Ingólfur kallar Báru hið eilífa fiðrildi: „Meðal þeirra verka sem ég hafði með höndum var að koma með góðar hugmyndir að bókum. Eina andvökunóttina datt mér Bára bleika í hug. Eins og aðrir kjaftask- ar í borginni þekkti ég til nokkurra sagna af Báru en vissi annars lít- ið sem ekkert um hana. Ég hringdi í hana næsta dag og bað um fund sem var auðfengið. Sama kvöld á heimili hennar birtist mér allt önn- ur kona en ég hafði ímyndað mér. Ég hafði séð hana fyrir mér sem eins konar kjóladrottningu palesander- kynslóðarinnar; stífaða, snobbaða og jafnvel svolítið heimska. Það var Husmodir -Mlt sem Boio gcidi g t'iði luin w '/. Hvöiki i h'Ollll 1 v skortoi p n hidu tjón ot gúmmihonsko leys i! „Það var ekki lífsstíll Báru sern hélt henni ungri. Hún reykti eins og breskur verksmiðju- strompur, drakk óblandað viskí á nær hverjum degi og vann stressaða vinnu eins og forkur. Karlmaður á hennar aldri hefði fyrir löngu verið búinn að geispa golunni. En ekki Bára. Lífsgáski hennar fleytti henni yfir alla þrösk- ulda ellinnar. Hún varhið eilífa fiðrildi. Við sem þekktum hana, elskuðum hana öll!‘ Vinir Báru Sigurjónsdóttur kveðja hana með því að bregða upp nærmynd afhenni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.