Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Side 16
1« FÖSTUDAGUR 16.JÚNl200t Fréttir DV Með sólgler- auguí öku- skírteini Tveir ökumenn, sem lifa af því að stæla The Blues Brothers, hafa feng- ið leyfi til að vera með sólgleraugu á mynd í ökuskírtein- um sínum. Að sögn Daily Mirror eru um að ræða hinn 56 ára gamla William Smith- Eccles, sem breytt hefur nafni sínu í Joliet Jake Blu- es og „bróður" hans Mark Moore. Sá síðamefndi heitir raunar Elwood Blues í dag. Tvímenningarnir, sem aka um á bandarískum lögreglu- bíl frá 1974, fengu einnig að vera með sólgleraugun í vegabréfum sínum. Amma verður listaverk Stúdína í Leeds hefur breytt 80 ára gamalli ömmu sinni í listaverk. Janis Ra- failidous setti At- henu ömmu sína inn í eldhúsinnrétt- ingu á listasafni í Leedsogþargeta gestir fylgst með þeirri gömlu elda mat, taka til og prjóna. Jan- is notar Athenu sem „lifandi styttu" en verkið er lokaverk- efni hennar frá Listaháskól- anum í Leeds. Hún vildi fanga heimilislíf sitt í Grilck- landi með þessu verki og sú gamla var meira en til í það. --.Ú 7 [ B* (t; Gotttilboðá netinu Kærasta manns í Cheshire á Englandi hefur lofað honum að taka þátt í þríkanti í rúminu ef hon- um tekst að fá fimm milljón manns til að skoða heima- síðu sína. Richard Green er fyrrum krikketstjarna og hefúr þegar fengið 250.000 heimsóknir á netsíðuna www.pleasemakethis- work.com. Kærastan, Katie Greenwood, var ekki af- huga þríkantinum en vildi að Richard gerði eitthvað í málinu. Og hún vill líka vera með í ráðum með val á stúlkunni ef dæmið geng- ur upp. Á sjóskíðum á farþegaskipi Dirk Gion, 40 ára gamall blaðamaður frá Þýska- landi, vann veðmál um hvort hægt væri að vera á sjóskíðum aftan í far- þegaskipi en venjulega eru menn tog- aðir af hraðbátum í þessari íþrótt. Dirk var fyrst settur á réttan hraða af hraðbát en síðan fékk hann afhenta línu úr farþegaskipinu MS Deutschland sem sigldi á 17 hnúta hraða. Dirk tókst að vera á floti aftan í MS Deutschland í fimm mín- útur. Þýsk sjónvarpsstöð tók allt þetta upp og verð- ur þáttur um þetta „afrek" Dirks sýndur bráðlega. Ritstjórar tímaritsins People uröu æfir þegar myndir af Shiloh, nýfæddu barni þeirra Brads Pitt og Angelinu Jolie, birtust á netinu nokkrum dögum áður en þær komu í People. Tímaritið hafði eytt hundruðum milljóna króna í að kaupa einkarétt á birtingu myndanna. Breska tímaritið Hello var einnig illa sviðið af netverjum. Einkaréttur einskis virði í netheimum Eftir að hafa eytt hundruðum milljóna króna í að tryggja sér einkarétt á myndum af Shiloh, nýfæddu barni þeirra Brads Pitt og Angelinu Jolie, voru ritstjórar tímaritsins People með útgáfu- áætlun. Fara í viðtal á Today Show á NBC. Leka myndunum í slúðurblöðin sem myndu birta þær í lélegri upplausn á forsíðum sínum. Síðan á föstudaginn síðastliðinn átti People að koma út með myndirnar á glanssíðum og tímaritið yrði selt á hærra verði en venjulega. í staðinn birtust myndirnar víða á netinu nokkrum dögum áður en markaðsáætlunin varð að veruleika. Ritstjórar People áttu í tilboðastríði við önnur tímarit um einkarétt- inn á myndunum allan sunnudaginn í fyrri viku og urðu brjálaðir þegar myndirafShiloh voru komnar á netið þegar á þriðjudeginum. I nýlegri grein NewYorkTimes um þetta mál kemur fram að einkaréttur á efni sem þessu er einslds virði í net- heimum. Töluvert áður en tímaritið People kom út með myndirnar voru þær komnar á Gawker, PerezHilton. com og hátt í þrjátíu aðrar vef- og bloggsíður. Sumar myndanna voru að vísu stolnar af ólöglegri útgáfu af Hello-tímaritínu breska sem borgaði nær 300 milljónir krónur fýrir einka- réttinn á þeim í Bretlandi. Urðu brjálaðir Ritstjórar People áttu í tilboða- stríði við önnur tímarit um einka- réttinn á myndunum allan sunnu- daginn í fyrri viku og urðu brjálaðir þegar myndir af Shiloh voru komn- ar á netíð þegar á þriðjudeginum. Lögfræðingar þeirra byrjuðu að senda út kröfur í allar áttir en án árangurs. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem People lendir í svipuðum kring umstæðum. Minn- isstæðast er þegar tímaritið tryggði sér einkarétt á mynd- um af nýfædd- um syni Britney Spears en síðan birtust mynd- ir af barninu . á netsíðum nokkru áður en þær birt- ust í People. „Sem maður sem þurfti að leggja allt þetta á sig til að ná þessum myndum var ég í fýrsm segir Larry Hackett, aðalritstjóri People. „Einhver var að taka efnið mitt." Forsíða Forsiðumynd Hello var komin á netið löngu fyrir birtingu blaðsins. En skipti þetta máli? Julie Bosman, sem slcrifar um málið í New York Times, varpar fram þeirri spurningu hvort netbirting- arnar hafi skipt nokkru máli fyrir People. Margir sérfræðingar í tíma- ritaútgáfu halda því nefnilega fram að netsíðurnar hafi gert People greiða með því að auka áhugann fyrir myndunum og þar með auka söluna á tímaritinu þegar það birti þær. En hvað sem því líður er ljóst að kaup á einkaréttí af þessu tagi eru að verða liðin tíð fyrir tíma- rit sem sérhæfa sig í ríka og fræga fólk- inu. Netið spil- ar þar æ stærra hlutverk. People Þessar myndir úr tlmaritinu People voru komnar á netið áður en tlmaritið kom út. Bretar nota netklám mest af öllum þjóðum í heiminum Breskar konur á kafi í netklámi Það er ekki víst að Bretar séu stoltir af því en ný rannsókn sem The Independent greinir frá sýnir að þeir nota netklám mest allra þjóða. Alls hafa 40% breskxa karla halað niður klám í tölvur sínar á einu ári. En það sem meiri athygli vekur er að breskar konur eru einnig á kafi í netkláminu. Samkvæmt rannsókninni hefúr net- klámnotkun þeirra aukist um 30% á einu ári og notendum fjölgað í 1,4 milljón kvenna. Rannsóknin leiðir í ljós að Bret- landseyjar eru sá markaður fyrir net- klám sem vex hraðast. Talið er að þessi markaður velti, á heimsvísu, um 2.400 milljörðum króna. Um er að ræða fyrstu viðamiklu rannsókn- ina á netnotkun Breta. Þótt flestír sérfræðingar haldi því fram að tölurnar í þessari rannsókn sýni meira frjálslyndi í kynlífsmál- um eru aðrir sem ekJd eru eins viss- ir í sinni sök. „Margar konur bregð- ast við netklámnotkun maka sinna á sama hátt og að þær hafi staðið þá að framhjáhaldi," segir hjónabandsráð- gjafinn Christíne Lacy í samtali við Independent. „Þetta er kannski ekki það sama og að stunda kynlíf en get- ur eyðilagt sambandið." Annað sem breskir ráðamenn hafa áhyggjur af er að um helmingur barna í Bretlandi hefur rekist á ldám á netínu þegar þau hafa verið að leita að einhverju öðru. Netklám Notkun breskra kvenna á netklámi hefur aukist um 30% á einu ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.