Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ2006 Fréttir DV Hrækti á dyravörð Karlmaður á þrítugs- aldri, búsettur í Snæfells- bæ, hefur verið ákærður af sýslumanni Snæfell- inga fyrir að hafa að kvöldi laugardagsins 20. maí síð- astliðins valdið hneyksli þegar hann var ölvaður á veitingastaðnum Narfeyr- arstofu í Stykkishólmi. Honum er gefið að sök að hafa verið með háreysti og dónaskap við starfsfólk staðarins og hrækt á dyra- vörð. Telst hann hafa brot- ið áfengislög. Þá er hann ákærður fyrir að hafa kýlt sama starfsmann og hann hrækti á. Hlaut starfsmað- urinn bólgur og sár á efri vör. Hættuleg líkamsárás Ríkissaksókn- ari hefur gefið út ákæru á hendur16 ára unglingi fyrir sérlega hættulega líkamsárás í febrúar s.l. Árásin átti sér stað við Suðurbæj- arlaug í Hafnarfirði. Drengur- inn sló þar annan mann í andlitið með glerflösku með þeim afleiðingum að flaskan brotnaði og hlaut fórnar- lambið all djúpan skurð á vinstri kinn. Þess er kraf- ist að unglingurinn verði dæmdur til refsingar fyrir þetta athæfi. Skeggrótin í borgarráð Árni Þór Sigurðsson var skipaður í borgarráð fyr- ir hönd Vinstri grænna en ekki Svandís Svavarsdóttir, efsti maður á lista. össur Skarphéðinsson alþingismaður segir á síðu sinni þetta skjóta skökku við í ljósi þess að Svandís hafi gagnrýnt mjög rýran hlut kvenna í nefndum og ráðum. „Viti menn - „konan" sem þar situr fyrir VG er hins vegar með kollvik og skeggrót og heitir Árni Þór Sigurðsson. Sigurvegari flokksins í kosningunum fékk ekki að njóta sigurs síns og sitja í borgarráði heldur lét kallpúngaveld- ið vaða yfir sig. Sjálfskil- greindur femínistaflokkur gaf flokkslega skipun um að karlinn Árni Þór skyldi kosinn í borgarráðið þar sem öll völdin eru," segir Össur. Lalli Johns nær ekki upp í nefið á sér af hneykslun í dag. Hann situr nú inni á Níunni, eða Skólavörðustíg 9, og er á leið á Litla-Hraun til að afplána sex mánaða dóm. Undan- farin ár hefur Lalli ætíð getað komið því þannig fyrir að hann sleppur úr haldi á vorin og er í bænum yfir sumarið. Notar svo veturna til að afplána dóma sína á Hrauninu. á að fara á Litla-Hraun á háannatímanum „Þeir bara komu og stungu mér inn á Níuna og mér er sagt að ég eigi að fara á Hraunið núna eftir helgina/' segir Lalli Johns og er hneykslaður yfír klúðri lögfræðings síns í málinu. Lalli stóð í þeirri trú að hann gæti fengið frestun á þessari afþlánun fram á haustið en lögfræðingur hans mætti ekki fyrir réttinn og því fór sem fór. Undanfarin ár hefur Lalli Johns yfirleitt getað komið því þannig fýr- ir að hann hefur afplánað dóma sína yfir vetrarmánuðina á Hrauninu en eytt svo sumrinu í borginni. Lalli er þjóðareign að eigin mati og því alls ekki sáttur við hvernig fyrir sér er komið í dag. Hann er blankur og aumur á Níunni og það sem verra er, næstum orðin sígarettulaus. Stal veski dómara Dómurinn sem hér um ræðir er sex mánaða langur og hann hlaut Lalli fyrir að stela veski og kápu eins dómaranna við Héraðsdóm Reykja- víkur. Lalli segir að hann hafi verið dæmdur á líkum í málinu. „Og svo til að bæta gráu ofan á svart þá klikk- ar áfrýjunin hjá lögfræðingi mínum þannig að ég er á leið í afplánun að sumri til sem er náttúrulega regin- hneyksli," segir Lalli. „Ég mætti sjálf- ur í réttínn en það dugði ekki til." Blankur og bótalaus Lalli segir að hann fái ekki að sjá fjölskyldu sína þar sem hann er staddur nú. „Ég er orðinn 54 ára og á böm," segir hann. Og hann ber Trygg- ingarstofhun ekki vel söguna. „Ég er á þessum lúsabótum eða 80 þúsund- um á mánuði og nú er Trygginga- stofnun að kh'pa af þeirri upphæð þar sem þeir segja að ég skuldi þeim peninga," segirLalli. „Af þessum sökum var ég á götunni þegar ég var tekinn, blankur og að verða sígarettulaus." Finnst aö sér vegið Lalli segir að í þess- ari stöðu finnist hon- um sem að sér sé vegið. „Það er ekki svo að mér finnist leiðinlegt að vera að fara á Hraunið enda nokkrir góðir strákar þar," seg- ir Lalli. „Mér finnst bara tíma setningin á þessu hreint af- leit. Það er alltaf gott að vera í borginni yfir sumartímann ef veðrið er skaplegt." Lalli Johns Lögfræðingur hans mætti ekki I réttarhald oa bvl er Lalli Johns á leið á Engin lausn í Melasveitinni Tré stráfelld í nágrannastríði Sverrir Seg/sf hafa verið í fullum rétti og að lóðin tilheyri tengdamóöur sinni. Engin lausn virðist ætla að verða í nágrannadeilum sem geisað hafa á Höfn í Melasveit síðastliðinn miss- eri. Deilurnar snúast í stuttu máli um lóðamörk á Höfn. Landeigand- inn Ólafína Ingibjörg Palmer telur að nágrannar sínir og þeir sem leigja af henni lóðarskika, hjónin Unnur Herdís Ingólfsdóttir og Gunnar Tyrf- ingsson, séu að eigna sér lóð sem ekki tílheyrir leigusamningi. Hjónin eru ekki á sama máli. Á hvítasunnudag 4. júní voru tré, sem standa á svæðinu sem deilurn- ar standa um felld. Þau voru á sjö- unda tug, allt frá litlum hríslum og upp í nokkurra metra aspir. „Ég var að snyrta til þar fyrir kartöflugarðinn minn," segir Sverrir Þór Einarsson, betur þekktur sem Sverrir Tattoo og tengdasonur Ólafínu, sem hjó trén. „Það verður að taka trén snemma á vorin, annars deyja þau," segir hann um ástæðuna. DV hefur fjallað ítarlega um ná- grannaerjurnar frá því fyrir áramót. Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur verið kölluð á staðinn til aðstoð- ar lögreglunni í Borgarnesi, sýslu- mannsembættið hefur skorist í deil- urnar og nú síðustu mánuði hafa lögfræðingar beggja aðila reynt að koma á sáttum. Hjónin á Höfn reyndu að fá lög- bann á fyrirætlanir landeigandans, þess efnis að trén yrðu ekki felld og girðing til afmörkunar ekki sett upp. Lögbannið var til meðferðar hjá embætti Sýslumannsins í Borgar- nesi og hafði verið síðustu mánuði en ljóst er að sú krafa er farin fyr- ir bý. Sverrir Þór hringdi á lögreglu áður en hann lét verkin tala og að eigin sögn fór hann í lögreglufylgd og felldi þær „hríslur" sem voru fýrir honum auk þess sem hann settí upp Felld Á sjöunda tug trjáa voru felld IMelasveit inágrannadeilum. 5 strengja gaddavírsgirðingu. unni að þau telji lóðarhlutann til- Báðir aðilar vilja sem minnst heyra þeirri lóð sem þau eru með á reka málið í fjölmiðlum en hjónin leigu og að felling trjánna hafi ekki á Höfn sögðu í samtali við DV í vik- verið til góðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.