Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Qupperneq 30
Stéttarfélög og Alcoa Fjarðaál hafa gert nýstárlegan vinnustaðarsamning fyrir starfsmenn í framleiðslu- og viðhaldsstörfum í álverinu á Reyðarfirði. Samningurinn hvílir á gagnkvæmu trausti og sameiginlegum árangri og miðar að því að búa til framúrskarandi vinnustað. Launakjör ráðast af verksviði, ábyrgð, fjölhæfni og ffammistöðu starfsmanna. í stað hækkana vegna starfsaldurs er umbunað fyrir aukna hæfni, ábyrgð, þátttöku í stoðstarfsemi og hlutdeild í bættum árangri fýrirtækisins. Knattspyrnuæfing í Fjarðabyggð Hluti af starfsmönnum Fjarðaáls fær pjálfun í álveri Alcoa í Kanada. Reyðfirðingurinn Guðný Björg Hauksdóttir sér um ráðningar hjá Alcoa Fjarðaáli. Laun framleiðslustarfsmanna Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru 3.316.000 kr. á ári fyrir fullt starf í vaktavinnu með orlofsuppbót, desemberuppbót, yfirvinnu vegna vakta- fyrirkomulags, stoðferlaálagi og 1 5% árangursávinningi sem viðmiði. Markmiðið er að allir framleiðslustarfsmenn öðlist þá hæfni og nái þeim árangri að þeir fái hærri laun samkvæmt samningnum. Þegar framleiðslu- starfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna á tilskildum fjölda starfsstöðva eru sambærileg viðmiðunarlaun yfir árið 3.732.000 kr. Árangurstenging Sameiginlegur frammistöðuávinningur starfsmanna er 0-30% af mánaðar- launum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu, með 1 5% sem viðmiði fyrir eðlilega frammistöðu. Tilgangurinn er að deila ávinningi fyrirtækisins með starfs- mönnum og tryggja að liðsheildin vinni saman að því að ná stöðugt betri árangri eftir áherslum í starfseminni hverju sinni, svo sem á sviði framleiðslu, öryggis, umhverfis og þjónustu. Allir styðja alla Allir þeir sem samningurinn nær til fá 19.000 kr. stoðferlaálag á mánuði fyrir að taka þátt í margvíslegum verkefnum sem styðja álframleiðsluna og málm- vinnsluna. Þannig öðlast starfsmenn betri skilning á starfseminni í heild sinni og hafa meiri áhrif á star'fsumhverfi sitt. Stuðningsverkefni geta meðal annars tengst stöðugum endurbótum, vinnu- vernd, umhverfl, þjálfun, móttöku gesta eða samþættingu vinnu og fjölskyldulifs. Stuðningsverkefni koma til viðbótar daglegum störfum en vinnast innan reglulegs vinnutíma. Laun iðnaðarmanna Byrjunarlaun iðnaðarmanns, með sveinspróf og minna en þriggja ára starfsreynslu í faginu, eru 4.108.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu með orlofsuþpbót, desemberuppbót, yfirvinnu vegna vaktafyrirkomulags, stoð- ferlaálagi og 15% árangursávinningi sem viðmiði. Þegar iðnaðarmaður, með sveinspróf og þriggja ára starfsreynslu í faginu, hefur Staðist hæfnismat í viðhaldsstarfi eru sambærileg viðmiðunarlaun yfir árið 4.915.000 kr. Greiðsla fyrir fjölhæfni Alcoa Fjarðaál leggur áherslu á að starfsmenn auki stöðugt hæfni sína og vinni fjölbreytt störf. Þegar framleiðslu- starfsmaður hefur hlotið þjálfun og vottun á tilteknum fjölda vinnustöðva fær hann greitt sérstakt fjölhæfniálag, 5% af grunnlaunum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu. Þjálfunin geturtekið 18-36 mánuði. Til þess að fá 5% fjölhæfniálag þarf iðnaðarmaður að standast hæfnismat í viðhaldsstarfi. Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupasviðs Fjarðaáls, setti upp svuntuna og bakaði vöflur fyrir samningamenn þegar skrifað var undir vinnustaðar- samninginn. Nútímaálver er hátæknivæddur vinnustaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.