Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2006, Side 34
42 FÖSTUDAGUR 16. JÚNl2006
Helgin DV
Angel-ilmvatn, Victoria ‘s
Secret
„Besta ilmvatn sem ég hef
smakkað. Ég notaði alltaf body-
spray því ég hélt að ég
þyldi ekki miklar og
þungar lyktir. Þessi
er akkúrat fyrir mig og
tengdamamma valdi hana
handa mér."
Maskari, MAC
„Bara venjulegur
maskari. Ég er lítið
fyrir að mála mig
hversdags svo þetta
einfalda
hentar mér best."
tengdó. Ég vil ekki neitt nema
glært gloss svo það sé ekki eins
og ég sé með einhvern varaiit."
Blýantur
„Þessi
var nú bara
í veskinu
mínu. Væri pottþétt útrunn-
inn ef það væri seinasti
sölu-
dagur
Púður, Body
Shop
„Konan í búð-
inni sagði mér
að kaupa
þennan lit."
Gloss,
Victoria’s
Secret
„Fylgdi
jólagjöfmni frá
Kristín Ýr Bjarnadóttir knattspyrnukona og tónlistarmaður er annar meðlima
hljómsveitarinnar eða rappdúettsins Snooze. Hún skipar bandið ásamt
kærastanum sínum Brynjari Má útvarpsmanni. Þau gáfu nýlega út mynd-
band við lagið Alla leið og birtast reglulega í auglýsingum fyrir Kea skyr svo
það er nóg að gera hjá Kristínu Ýr. Á heimasíðu dúettsins kemur fram að þau
muni bráðlega gefa út fleiri lög en slóðin á heimasíðuna er snooze.is.
Hulcía Hauksdóttir Hufda
rekur vershmma Flash. fer
legluleyatilútlandQjymlun-
ai ferðlr, er i m«s tcrsnámi og
rekur stórt heimilí.
Athafnakonan
„Verslunin varð 14 ára á mánu-
daginn," segir Hulda Hauksdóttir
viðskiptafræðingur og eigandi tísku-
vöruverslunarinnar Flash á Lauga-
veginum. Hulda lærði viðskipta-
fræði í Danmörku en flutti heim árið
1990.
Opnaði verslunina í kreppu
„Á þeim tíma var kreppa á íslandi
og því ekki hlaupið að því að fá starf,
sérstaklega ekki fyrir unga konu með
lítið barn," segir Hulda og bætir við
að eiginmaður hennar hafi rekið eft-
ir henni að taka á leigu húsnæði. „Ég
byrjaði að flytja inn skartgripi og
boli og fór fljótlega að leigja þetta
húsnæði hér á Laugaveginum sem
við eigum í dag. í byrjun ætlaði ég
aðeins að reka þessa verslun í þrjá
mánuði á meðan ég væri að finna
mér starf en svo leiddi eitt af öðru og
nú 14 árum síðar erum við hérna
ennþá," segir Hulda glöð í bragði.
Breytingar á kúnnahópnum
í fyrstu einblíndi Hulda á yngri
viðskiptavini en þeir hafa orðið eldri
með tímanum þótt hún sé afar virk í
fermingarfötum. „Með opnun
Smáralindar breytúst samsetning
kúnnanna hér á Laugaveginum og
við fórum að fá eldri viðskiptavini
inn til okkar. í fyrstu var kúnnahóp-
urinn á aldrinum 13-40 ára en er nú
á bilinu 18-60 ára enda fjölbreytnin
mikil."
Með slárnar fyrir utan
Hulda segir bisnessinn hafa geng-
ið vel og þar sem búðin sé lítil, rétt
um 50 fermetrar, sé auðvelt að draga
saman seglin þegar hart er í ári og að
sama skapi að þenjast út þegar vel
gengur. „Ég bjó í Danmörku sem
barn og hafði einnig lært þar í landi
og var alltaf ákveðin að vera með slár
úti á götu til að skapa skemmtilega
stemningu. Búðin er lítil og við verð-
um að nýta allt pláss vel og því er æð-
islegt að fá um 20 fermetra í viðbót
með því að raða á slámar fyrir utan,"
segir hún og bætir við að hún fari til
útíanda einu sinni í mánuði til að
skoða og kaupa nýjar vörur auk þess
að vera í mastersnámi og reka stórt
heimili. „Við endurnýjum vörurnar
mjög hratt og þá er gott að setja af-
gangsvörur á útsölu fyrir utan og
eins ef við þurfum að rýma fyrir nýrri
„Það er gaman hversu
kvenlegar konur eru í
sumar og hjá okkur
eru kjólar aðalmálið,
bæði við buxur og
leggings og kannski
sæta sandala
vöru. Það er því nóg að gera en það
hefst með dyggum stuðningi eigin-
mannsins."
Kvenlegar konur í sumar
Aðspurð hvernig konur eigi að
klæða sig í sumar segir Hulda kjól-
ana afar vinsæla. „Það er gaman
hversu kvenlegar konur eru í sumar
og hjá okkur eru kjólar aðalmálið,
bæði við buxur og leggings og
kannski sæta sandala. í sumar er líka
mikið af litum og rauður og grænn
ásamt svörtum og hvítum finnst mér
mest áberandi," segir Hulda að lok-
um.
indiana@dv.is
Sex skref til að koma þér af stað
badminton eða
skvass eða skráðu þig
í fótboltalið. Syntu,
hjólaðu, hlauptu,
veldu eitthvað og
breyttu reglulega til svo þú fáir
ekki leið.
6. Haltu einbeitingunni
Það erfiðasta við líkamsrækt
er að halda fókusnum og ein-
beitingunni. Minntu þig reglu-
lega á af hverju þú ert að þessu.
Hugsaðu um vellíðunina sem þú
munt upplifa þegar þú hefur náð
markmiði þínu.
1. Sannfærðu sjálfa þig
Hreyfing er góð fyrir þig
og ekki aðeins fyrir ltk-
amann heldur líka sál-
ina. Þú minnkar lík-
urnar á alls kyns sjúk-
dómum og losar þig
við stress og óþarfa
áhyggjur. Ef þú efast
skaltu lesa þér tíl og þú
munt ekki finna eina rann-
sókn sem mælir gegn hreyf-
ingu.
2. Finndu þér ástæðu
Líkaminn þarf á hreyfingu að halda, þú
munt líta betur út og líða betur. Eftír hverju
;rtu að bíða? Settu íþróttafötin ofan í
tösku og komdu þér af stað.
3. Skipulegðu þig
Ætlarðu að einblína á að
missa kíló eða auka þolið?
Hvort tveggja? Hvenær
ætlarðu að teygja á?
Hversu langt áttu að
ganga? Ráðfærðu þig við
einkaþjálfara og láttu hann
hjálpa þér af stað.
4. Settu þér markmið
Búðu þér til raunhæf mark-
mið. Ef þú setur þér engin markmið eru lík-
ur á að þú hættir, þú hefur ekki að neinu að
stefna. Passaðu þig að markmið
þín séu raunhæf svo þú gefist
síður upp.
5. Veldu leiðina
Nú þegar þú
hefur sett þér
markmið verð-
urðu að velja
hvaða leið þú
ætlar til að ná
þeim. Veldu þér
skemmtilega hreyfingu.
Það er margt í boði. Farðu í
s
T3
l
Q