Freyr - 01.09.1956, Blaðsíða 7
FREYR
263
Tafla II. Áhrif misstórra skammta af gonadotrop hormón í hryssuserum
á frjósemi áa.
Tala áa Tala lamba
Flokkur 'cS H ^ Ein- lembdar Tvi- lembdar - . Þrí- lembdar Fjór- lembdar Fimm- lembdar Fædd alls Heimt að hausti 2 ^ W ú U* Cu a 1 iá so ú í CL|
A (500 ein.) 20 8 10 1 0 1 36 30 1.80 1.50
B (250 ein.) 20 18 2 0 0 0 22 22 1.10 1.10
C samanburðarær 20 17 3 0 0 0 23 23 1.15 1.15
ganga nærri ánum að ganga með þremur
og f jórum lömbum, því að þær vógu sjálfar
5.2 kg meira til jafnaðar haustið 1955 en
haustið 1954, og var þó ein þeirra algeld
það ár. Allt bendir til þess, að mikill á-
vinningur geti orðið að því fyrir bændur.
sem fóðra tii hámarksafurða, en eiga ekki
nógu frjósaman fjárstofn, að nota 500 ein-
ingar af gonadotrop hormón í fullþrosk-
aðar ær, sem sjaldan eða aldrei hafa átt
tvö lömb. Samt þarf að gera meiri tilraun-
ir með notkun þessara hormóna en hing-
að til hafa verið gerðar, áður en rétt er
fyrir bændur að reyna að
notfæra sér þá aimennt.
Þessum tilraunum var
haldið áfram á Hesti vet-
urinn 1955—’56. einnig að
Hólum í Hjaltadal og hjá
nokkrum einstaklingum.
Þeg'ir niðurstöður af þeim
tilraunum liggia fyrir,
verður e. t. v. hægt að
kveða á um, hvort ráðlegt
sé að nota hormóna þessa
sem þátt í búskap fjár-
bænda. Þótt fátt sé mikil-
vægara fyrir bændur, sem
fylgja hámarksafurða-
stefnunni í sauðfjárrækt,
en að geta tryggt mikla
frjósemi ánna, þá er mun
æskilegra, að því marki
verði náð með því að rækta
upp frjósaman fjárstofn
heldur en með notkun
lyfja. En það tekur alllang-
an tíma að rækta upp frjó-
semi í stofni, sem er ófriósamur, og hætt
við bví, að sé framkvæmt einhliða úrval
með tilliti til fri ósemi, þá verði það gert á
kostnað annarra verðmætra eiginleika.
Getur því verið heppilegra að nota hormóna
til þess að tryggja sér sæmilega frjósemi í
framkvæmd, á meðan unnið er að því á
eðlilegan hátt að rækta upp frjósemi
stofnsins.
Fengieldi kostar aukna fóðureyðslu, sem
sparast, séu hormónar notaðir. (Sjá um
eldistilraunir hér á eftir). Getur verið
hagkvæmt að eiga það fóður, sem nota
, s*-f Tm2aL#.MKEammmaamm mm mm
Dúfa nr. 20 á Hesti með dœtur sínar haustið 1955. Ærin vó þá 80 kg, en
lömbin samanlagt 144,5 kg. Ærin er frá Höllustöðwm i Reykhólasveit, af
Gottorpsstofni.