Freyr - 01.09.1956, Blaðsíða 16
272
FREYR
I NYSKOGUM
Þjóövegurinn liggur um víðlend skóga-
svæði.Hér voru skógarnir þó enn víðfeðmari
fyrir mörgum öldum, þegar hetjan Hrói
Höttur fór hér um með boga og örvar og
skelfdi höfðingja, en veitti smælingjum
fulltingi. Síðan þetta gerðist hafa bændur
aukið slægjulönd og akra á kostnað skóg-
anna.
Það er logn þennan morgun, er bíllinn
brunar eftir þjóðveginum og flytur mig til
suðausturs. Landið er á alla vegu hulið
móðu, — blámóða sveipar umhverfi allt,
svo að hvergi eru skörp skil himins og
hauðurs. Jafnvel í nokkurra metra fjar-
lægð er skógarröndin sveipuð sefju. Svona
er það alltaf þegar lognmolla leggst yfir
sveitir, þar sem skammt er til sjávar og þar
sem landið er aðeins fáa metra yfir sjávar-
máli. Og svona er það líka hérna í Suður-
Englandi þennan sólbjarta sumardag laust
eftir sólstöðurnar. Logn og hiti — mollu-
veður.
Við vorum nógu snemma á ferð í morgun
til þess að heyra raddir þúsund smáfugla
— nei þúsunda fugla — sem vegsömuðu
lífið og veðrið, tilveruna alla. Hljómurinn
barst úr kiarri og rjóðri, frá grein og tjörn
og allar raddir blönduðust í einn klið.
Var það ekki von, að Hrói Höttur væri
töfraður af tilverunni í þessu umhverfi, úr
því að hann á annað borð var gerður útlagi?
Jú víst var það von, og það var eðlilegt, að
kapparnir, sem til hans drifu úr öllum átt-
um, væru heillaðir af umhverfinu þegar
svona viðraði í þessum skógum. Hér var létt
til fanga, því að þá flugu hér þúsundir
villtra fugla eins og nú, þá voru dýrin á
ferli og þau voru stórt mark fyrir jafn
varkvissar örvar eins og þær, sem þutu af
bogum Hróa, Litla Jóns og annarra kappa
í þá daga.
Við getum hugsað okkur hvernig þessar
hetjur hafa lifað frjálsu skógarlífi eins og
fuglarnir og dýrin, á þessum tíma árs. Og
þó — þó vofði aldrei yfir þeim aðsúgur
byggðaliðs eins og á þessum tíma ársins.
Það var um þetta leyti, sem flestir kaupa-
héðnar voru í förum og þá þurfti að vernda
fyrir ágangi stigamanna.
En Hrói Höttur og menn hans sáu ráð
A lygnum sumarmorgni er landic