Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1956, Síða 11

Freyr - 01.09.1956, Síða 11
FREYR 267 eru fyrir, að fá mætti ýmsar jurtir frá, sem að gagni mættu koma fyrir okkur. Því fer þó víðs fjarri, að þetta séu einu staðirnir, sem hafi sambærileg gróðurfarsleg skilyrði og eru á okkar landi. Sannleikurinn er sá, að margir blettir á jarðarkringlunni geta gefið okkur jurtir, sem fengur er í að fá. Læt ég fylgja bér teikningu, sem sýnir í stórum dráttum vaxtarskilyrði á jörðinni, þó fyrst og fremst hitann. Það skal skýrt tekið fram, að ýmislegt getur truflað, svo að hiti verður annar en hnattstaða ein segir til um, t. d. er heitara á landi okkar en hnatt- staðan bendir til að væri. Sést af mynd þessari, að samkvæmt hnattstöðu þyrfti að fara í 7500 m hæð yfir haf við miðbaug, til þess að fá sama hita og á okkar stöðum. Það virðist vera hrein goðgá að sækj a plöntur t. d. til Mexíkó, sem þrífast ættu hjá okkur. Svo er það þó ekki. Sannleikurinn er sá, að þar í fjöllum er úrkoma, jarðvegur (eld- fjöll) og hiti svipað og heima. Því fer þó f j arri, að ég sé að gera það að tillögu minni, að þangað sé leitað til að fá nytjagróður okkur til handa. Til þess eru landssvæði þar allt of lítil, miðað við t. d. Alaska, Newfound- land o. fl. Ég nefni þetta aðeins til þess að sýna, að víða getum við vænzt þess að afla plantna. Hér við bætist svo enn eitt atriði, en það er aðlöðunarhæfni (eða ,,þanþol“) jurt- anna, sem er misjafnt. Ég fór fyrir nokkrum dögum heim með dr. Dahl, sem er forstöðumaður grasafræði- deildarinnar hér. (Prófessor Dahl er al- norskur að ætt, hann hefur komið til ís- lands, þótt sú dvöl væri stutt). Sýndi dr. Dahl mér garð sinn. „Hérna eru tvær jurtir frá Pennsylvaníu, hér er ein frá Japan, þessi frá Kína. Engin þessara jurta né ýmsra fleiri ættu í rauninni að þrífast hér, en gera það bara samt. Vöxtur er að vísu ekki eins hraður og í heimalandinu né öruggur." Aðrar jurtir frá svipuðum stöðum höfðu hins vegar ekki dafnað. Bandaríkin eru eitthvert auðugasta land jarðar, gróðurfarslega séð. Er það bæði vegna eigin flóru og svo alls þess, sem inn hefur verið flutt frá nær sagt öllum horn- um heims. Ekki eru samt bændur, skógar- eigendur, garðyrkjumenn né sérfræðingar þessara aðila ánægðir. Árlega eru sendir menn, kostaðir af ríkinu, til þess að safna fræi nytjajurta. V. Framanskráð held ég að ætti að nægja til þess að sýna fram á, hve mikil þörf er á því fyrir okkur að skipuleggja mál þetta betur og vinna að lausn þess með meiri krafti. Við þurfum að afla jurta frá stöðum með líku loftslagi og okkar. Efla þarf mjög þann hluta Atvinnudeildar Háskólans, sem vinnur að jurtakynbótum. Deildin rannsaki allan jurtagróður, sem til landsins flyzt og er ætlað að vaxi á íslenzkri jörð. Deildin geri samanburð á tegundum og afbrigðum jurta. Beztu afbrigðin verði svo send út til tilraunastöðvanna, ef á nánari samanburði er þörf og til þess að reyna þau við breyti- leg skilyrði. Góðir eiginleikar ýmissa jurta verði aft- ur sameinaðir og þar með komið á fót raun- verulegri jurtakynbótastöð. Allt þetta er að sjálfsögðu algjörlega ofviða 1—2 mönnum. Gæði hvers lands, landbúnaðarlega séð, markast að mestu af tíðarfari, jarðvegsgæð- um og jurtagróðri. Fyrsta atriðið ráðum við mennirnir ekki við nema að mjög takmörk- uðu leyti. Annan og þriðja þáttinn höfum við meir í hendi okkar og þá ekki sízt þann síðasta. Mörg eru verkefnin óleyst, margir mögu- leikarnir ónýttir, sem við verðum að vinda bráðan bug að að leysa og nýta. Ágallar íslenzks gróðurríkis eru augljós- ir. Okkur vantar jurtir, sem geta hagnýtt sér köfnunarefni loftsins, jurtir, sem falla inn í íslenzkt gróðurríki. Okkur vantar betri og öruggari túngrös, einnig jurtir, sem hefta sandfok og græða sár landsins, garðjurtir o. fl. o. fl. * Greinarhöfundur, Haukur Jörundsson kennari á Hvann- eyri, dvelst nú í Bandaríkjunum og kynnir sér þar m. a. nýjungar í landbúnaðargrasafræði. Greinina sendi hann FREY að vestan.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.