Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1956, Qupperneq 23

Freyr - 01.09.1956, Qupperneq 23
Í-REYR 279 höfrum og maís blandaö til helminga og malað. Þurftum við að mala einu sinni i hverri viku. Fjós og hlaða er hér eitt og sama hús, og er fjósið raunverulega undir hlöðunni, eins og hér tíðkast alls staðar. Þarf því ekki annað en moka heyinu niður um op á hlöðugólfinu, þegar kúnum er gefið. Til þess að hægt sé að hafa þetta fyrirkomulag á, er nauðsynlegt að hafa heyblásara til að blása heyinu upp í hlöðuna, þegar hirt er, því að hlöðurnar eru nokkuð háar með þessu móti. Hálm- ur er einnig geymdur á hlöðuloftinu og mokað niður í fjósið á sama hátt og heyinu, en hann er allur notaður í básana, undir kýrnar. Þetta leiðir það af sér, að mykja er mjög hálmborin, en mykjunni er ekið á akrana á hverj um einasta degi, enda eru haugstæði hvergi. Er mykjudreifari að sjálfsögðu notaður við það verk. Flórinn, sem aðeins er eitt fet á breidd, er mokaður með færibandi, en sá útbúnaður er ekki sem beztur og fer oft úr lagi. Flórmokarar sem þessir hafa að vísu verið endurbættir nokkuð, en erfitt er að gera þá fullkomna, þar sem flórkeðjan er meira en 60 metrar, eins og hér er. Bændur hér á slóðum hafa yfirleitt talsvert af svínum. Gylturnar eru látnar bera tvisvar á ári. Grísunum er ekið á markað þegar þeir eru 5 y2—6 mánaða gamlir, en verð á þeim er mjög mismun- andi, breytilegt frá degi til dags. Hér í Wis- consin eru bændur algerlega háðir mark- aðsframboði í Chicago, því þangað fer mestur hlutinn af framleiðsluvörunum, og það er sú borg, sem ræður markaðsverðinu, enda þótt þorp og borgir í fylkinu séu næst- um því eins þétt og sveitabýlin heima á ís- landi. Er það mjög algengt hér, að landbún- aðarfólk og bændur búi i þorpum, en aki á hverjum morgni til vinnu á búgörðunum, en heim aftur á kvöldin. Það kemur sér vel, aö bílar eru fáanlegir hér. Eitt er það, sem kemur íslendingi dá- litið spánskt fyrir sjónir hér, en það er, þegar gestur kemur á bæ einhverra erinda, þá er honum hvergi boðið inn upp á kaffi. Það tíðkast hvergi hér; menn eyða ekki tíma í slíkt. Hins vegar eru heimboð tíð, og skemmtir fólk sér þá oft við að horfa á sjónvarp, en það er nú orðið alls staðar hér. Sjónvarpið hefur gert það að verkum, að kvikmyndasýningahús hafa flest gefið upp á bátinn í hinum smærri þorpum, en i stærri þorpunum eru kvikmyndahús, sem sýna með mjög nýrri aðferð, en það eru þriggja vídda litkvikmyndir. Samkeppni á milli hinna óteljandi mörgu fyrirtækja er alveg gífurleg, og þarf fólk ekki að eiga i erfiðleikum með að fá það af vörum og öðru, sem það þarfnast. Bæöi sjónvarpsstöðvar og útvarpsstöðvar eru allar algerlega reknar af auglýsendum, svo að fólkið þarf engin afnotagjöld að borga af slikum hlutum. Fólk hér er kirkjuræknara en heima er almennt, og fara flestir í kirkju á hverjum sunnudegi. Trúarbrögð eru margvísleg, og er ekki óalgengt, að tvær eða fleiri kirkjur sín frá hverjum trúarflokki, séu í einu smá- þorpi. Fólk það, sem ég er hjá ,er Lúthers- trúar, en guðsþjónustur í lútherskum kirkj- um hér eru mjög svipaðar og heima, að öðru leyti en því, að hver kirkjumeðlimur verður að borga ákveðna upphæð í pening- um í hvert skipti, sem hann er við kirkju. Rennur skattur þessi síðan til viðhalds kirkjunni, en mestur hlutinn þó til prest- anna, en þeim er ekkert borgað úr ríkis- sjóði eins og heima er gert. Ég hef nú vikið að fáu einu af því, sem hér gerist, en það er ekki svo auðvelt að gera því góð skil í stuttri grein. Ég mun ef til vill síðar skýra lítillega frá heyskapar- aðferðum hér og öðru því, sem mætti vera til einhvers fróðleiks fyrir lesendur. Öxlar með hjólum fyrir aftanívagna og kerrur, bæði vöru- bíla- og fólksbílahjól á öxlunum. Einnig beizli fyrir heygrindur og kassa. Til sölu hjá Kristjáni Júlíussyni, Vesturgötu 22, Reykjavík, e. u. Póstkröfusendi.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.