Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1956, Blaðsíða 25

Freyr - 01.09.1956, Blaðsíða 25
FREYR 281 Frá skólahátíð Húsmæðraskólans s„ I. vetur. Helga Srg- urðardóttir skólastjóri í miðjum hópnum. samband geti orðið lifandi og gagnlegt, þá þurfa að vera starfandi heimilisráðunautar í öllum sýslum landsins. Starf heimilisráðunauta er að veita hús- mæðrum fræðslu um margvíslegar nýjung- ar í tækni, varðandi matargerð og heimil- isverk, nýjungar í húsbúnaði, heimilistækj - um og áhöldum. Breyttir tlmar. Fyrir 50 árum var ekki vandasamt að velja húsbúnað og áhöld til heimilisins, ef peningar voru þá fyrir hendi, því að úr- valið var þá mjög lítið. En nú eru breyttir tímar og vandinn fer sífellt vaxandi að velj a hið heppilegasta. Heimilisráðunautar ættu auðveldlega að geta fylgzt með nýjungum og kynnt þær húsmæðrum og haft þá hlið- sjón af heimilisástæðum þeirra. Heimilisráðunautar þyrftu fyrst og fremst að vera húsmæðrakennarar, en auk þess að fá sérmenntun til starfs síns, og gæti hér orðið um að ræða sérstaka deild í Hús- mæðrakennaraskóla fslands." Þá skýrði skólastjóri frá því, að fjárfest- ingarleyfi væri nú fengið til þess að reísa skólahús fyrir Húsmæðrakennaraskólann, er standa á við gatnamót Stakkahlíðar og Bólstaðarhlíðar. Þar mun einnig 1 framtíð- inni rísa hús fyrir Kennaraskólann. Skyldur og réttindi. Að lokum beindi skólastjórinn máli sínu til nemendanna og mælti á þessa leið: „Kæru nemendur. Námi ykkar hér í skólanum er nú lokið og þið hafið náð settu marki á mennta- braut ykkar. Próf ykkar er embættispróf, sem veitir ykkur rétt til ákveðins starfs í þjóðfélaginu. Þið hafið sýnt dugnað í námi ykkar og margar ykkar virðast hafa sérstakan áhuga íyrir því að verða starfandi húsmæðrakenn- arar eða heimilisráðunautar. Nú bíða ykkar margvísleg störf á sviði húsmæðrafræðslunnar, og þá reynir á þann hæfileika að geta notfært sér í starfinu þá fræðslu, sem þið hafið fengið hér. Eg vona, að ykkur takist að miðla lær- dómi til nemenda ykkar og annarra sam- starfsmanna, og berið ávallt í brjósti þá þrá eftir meiri þekkingu, sem einkennir hverja sanna lærdómskonu, en ég geri mér þær vonir um ykkur, að þið verðið dugandi leiðbeinendur á sviði húsmæðrafræðslunn- ar. Hafið það jafnan hugfast, að starf hús- mæðrakennarans er mikilvægt, því að til húsmæðraskólanna eiga ungu stúlkurnar að sækja þá fræðslu, er verður undirstaða í þekkingu þeirra og hæfni til að skapa sjálfstæð heimili.“ 'k Ungfrú Helga Sigurðardóttir hefur veitt Húsmæðrakennaraskóla íslands forstöðu frá upphafi. Hún hefur stýrt honum með forsjá og dugnaði. Húsmæðrakennaraskól- inn gegnir mjög mikilvægu hlutverki í fræðslukerfi landsins og FREYR óskar skól- anum þess, að hann megi hér eftir sem hingað til rækja það með sóma.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.