Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.02.1966, Qupperneq 5

Freyr - 15.02.1966, Qupperneq 5
FREYR 79 FREYR BÚNAÐARBLAD Nr. 4 — febrúar 1966 62. órgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Úfgófustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON PÁLMI EINARSSON Rifstjórn: AGNAR GUÐNASON GÍSLI KRISTJÁNSSON (ábyrgðarmaður) Heimilisfang: PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK Prentsmiðja Jóns Helgasonar Reykjavík — Sími 38740 Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bœndahöllinni, Reykjavík — Sími 19200 EFNI: Landgrœðsla Brautryðjendur Fóðurvagnar Hvar erum við staddir? Um útflutning hrossa Um ormaveiki Fé rúið á vetri Búvélainnflytjendur heimsóttir Frá Hollandi Árferði 1965 Molar Landgræðsla Sextíu ár eru nú síðan fyrst var hafizt handa fyrir alvöru í því að stemma stigu fyrir örfoki og eyðileggingu gróins lands. Það var þegar Gunnlaugur heitinn Kristmundsson var sendur til þess að lœra annarra aðferðir í þeim efnum og hann kom heim aftur, fullur áhuga fyrir hlutverkinu. En hann mætti litlum skilningi, jafnvel andúð sumstaðar og fjármunir til landgræðslu voru þá sára tákmarkaðir. Þetta var að vísu í þá daga kölluð sandgræðsla og satt var það, að starfið var miðað við það fyrst og fremst, að uppblástur lo.nds væri heftur og sandfok stöðvað. Um allar aldir frá íslands fyrstu byggð, og sjálfsagt áð- ur einnig en einkum síðan, hefur land verið að gróa og blása á víxl. Og þetta hefur gerzt allt til þessa. Allir vita og viðurkenna, að móbergssvæðum er hættast en einnig er uppblásturshætta allsstaðar þar, sem land ofþorrnar og einkum þar sem snjór hlífir landi lítt eða ekki á vetrum. Þarf ekki lengra að leita að landbroti og örfoki en rétt út fyrir dyr höfuðborgarinnar. Á hæðunum meðfram þjóð- vegi geta allir litið þykkar torfur standa á holtum og mel- um, eins og eyjar úr sæ, til hægri og vinstri, eftir að komið er inn fyrir Elliðaár og úr lofti má líta slíkar eyjar hér og þar um melana, allt er burt blásið nema þessar leifar, sem standa eins og minnisvarðar horfinnar gróðurtorfu. Svona saga hefur gerzt og gerist víða um land. En nátt- úran sjálf tekur í taumana við og við — tekur til að klœða landið á ný. Með nýjum landgræðslulögum frá síðasta ári er spor markað til þess að hjálpa náttúrunni i þessu hlutverki miklu meira en verið hefur, enda ekki ástæðulaust. Þau eru víð löndin, sem þörf er að græða upp, og aðstoða ber náttúruöflin í því hlutverki. Starfsmenn og fjármagn að vinna með er nauðsynlegt, og þegar kappkostað verður að auka starfsemi á þessu sviði er von á miklum árangri. Og árangur fæst, það er víst. — Sjáum bara árangur Sand- grœðslunnar í Gunnarsholti og uppi í Hekluhraununum gömlu. Þar er eyðimörk orðin akurlendi, í bókstaflegum skilningi. Þau eru mörg foldarsárin, sem græða ber og vonandi er framundan sá tími er Hannes Hafstein spáði í aldamótakvœði sínu: „Sú kemur tíð er sárin foldar gróa.“ Styðjum öll að því að þau grói sem örast. G.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.