Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1966, Síða 7

Freyr - 15.02.1966, Síða 7
FREYR 81 ' - - - - Kjörseyri í Bcejarhreppi, Strandasýslu við sömdum uppkast að lögum félagsins. — En við sáum fram á það að félagið gæti ekki staðið undir verulegu tjóni fyrstu 5 árin, og var helzt rætt um að safna í sjóð. Við á- kváðum þá að athuga möguleika á endur- tryggingu hjá einhverju tryggingarfélagi, leituðum til Brunabótafélagsins og fengum síðan tilboð frá því um endurtryggingu, allt að 75%. — Hvernig var þetta mál hugsað í upp- hafi, alhliða búfjártrygging eða eitthvað slíkt? — Nei. Það var aldrei hugsað öðruvísi en framkvæmt var, en það er að tryggja að- eins ærnar, gegn lambaláti. Það var ekki reiknað með, að félagið treysti sér til að hafa þetta víðtækara. — Hafa þá verið mikil brögð af lamba- láti í sveitinni? — Nei, það get ég ekki sagt. Síðan ég komst til vits og ára veit ég ekki nema tvö dæmi um alvarlegt lambalát. — Annað skiptið var það þannig, að bóndi, sem átti tæpar 200 ær, hafði ekki fleiri en 12 með lömbum um vorið, en hitt skiptið var það hjá bónda, sem átti öllu fleiri ær, eitthvað á þriðja hundrað, en þar af voru aðeins eitthvað um 50 með lömbum um vorið. En það hefur komið fyrir að 20—30 ær á bæ hafa látið lömbum. — Hvenær hélduð þið svo stofnfund? — Það var 25. febrúar 1965. Þessi fundur var mjög vel sóttur, sem sýndi það ,að menn höfðu áhuga fyrir málinu. — Voru ekki skiptar skoðanir á fundin- um? —• Jú, menn voru ekki á eitt sáttir með endurtrygginguna, því sumum þótti slæmt að þurfa að greiða mikinn hluta iðgjaldanna út úr sveitinni. Mín skoðun var sú, að þarna værum við fyrst og fremst að tryggja okk- ur gegn verulegum skakkaföllum í búskapn um, en ekki til að safna fé í sjóð. — Hvað er endurtryggingin há?

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.