Freyr - 15.02.1966, Blaðsíða 30
104
FREYR
M0iAr
Charolais
nefnist nautpeningskyn eitt, sem er all algengt í
Frakklandi og hefur verið flutt til ýmissa landa
síðustu árin, aðallega til kynblendingsframleiðslu,
en blöndun þess með öðrum kynjum gefur jafnan
góða raun.
Englendingar fluttu m.a. inn 219 dýr af þessu kyni
í haust en settu þau í sóttkví í Plymouth, á suður-
strönd Englands, til þess að forðast innflutta kvilla,
ef einhverjir vaeru.
Nú hefur það sýnt sig, að allmörg af dýrum þess-
um höfðu lifrarkvilla, sem nefnist LEPTOSPIROSIS
og varð að slátra og brenna 34 skepnum af hópnum
og varðveizla dýranna í sóttkvínni framlengd um
óákveðinn tíma. Lifrarkvillar hafa áður verið í
búfé í Englandi en þessi ekki.
Enskir kynbótafrömuðir keyptu umrædda 219
CHAROLAIS-grpi fyrir um 12% milljón íslenzkra
króna, en óvíst er enn hve margir þeirra komast á
fyrirhugaðan leiðarenda, til kaupendanna.
Að sjálfsögðu eru skepnurnar tryggðar, hér er um
tjón að ræða, sem hefði þó orðið margfalt ef sótt-
vamirnar hefðu ekki verið góður þröskuldur á leið-
inni.
Gömlu skákaskiptin
greinin í síðasta hefti FREYS er fyrir okkur íslend-
inga eftirtektarverð fyrir það, að hún segir frá einu
hinna stærstu vandamála, sem steðja að erlendum
bændum í ýmsum löndum nú á tímum, vandamáli,
sem við höfum aldrei haft við að etja. Að þessu leyti
er þá gott að vera bóndi hér, laus við annmarka og
vanda af þessu tagi.
í texta við myndina á síðu 55 stendur, að hver
bóndi fái nú samfellt land. Þetta skyldi vera ,,sam-
felldara land“ svo sem ráðið verður af töflum þeim,
er greininni fylgja.
„Smjörfjallið"
hefur verið umræðuefni meðal manna um undan-
farnar vikur og mánuði og er þá átt við þær birgðir
smjörs, sem safnazt hafa hér að undanförnu. En
þetta með smjörbirgðir, sem ekki virðist markaður
fyrir í bili, er ekkert sérstakt fyrir íslendinga. Svíar
hafa gert ráðstafanir um mikla verðlækkun á smjör-
fjalli sínu og selja það á innanlandsmarkaði. Um
gjörvalla Vestur-Evrópu hefur mjólkurframleiðsla
— Ég er að fara að
borga hundaskattinn.
— Hundaskattinn ?
— Þú, sem hefur eng-
an hund.
— Nú, þarf maður
þess?
verið meiri síðastliðið ár en nokkru sinni og þess-
vegna m. a. hafa smjörbirgðir safnazt.
I Belgíu var aukningin mest — 10% og írlandi
næst með 9%, önnur lönd með minna, en allsstaðar
vöxtur. Og þegar allir framleiða meira en nemur
eftirspurninni þá segir viðskiptalögmálið, að aímað-
hvort seljist varan ekki eða að verð hennar lækki.
Hvort tveggja mun nú vera staðreynd.
DIESELRAFSTÖÐVAR
í hverri sveit á Islandi.
ÞÆR ERU ÓDÝRAR
SPARNEYTNAR
ÖRUGGAR í NOTKUN
AUÐVELDAR í MEÐFERÐ
Varahlutir óvallt fyrirliggjandi
FLJÓT AFGREIÐSLA
S. STEFÁNSSON & CO. HF.
GarSastrœti 6 — Reykjavik — Sími 1 55 79