Freyr

Volume

Freyr - 15.07.1973, Page 11

Freyr - 15.07.1973, Page 11
sem ein af 22 faggreinum, er hafa hlið- stæðan menntaveg, en í feril hans er ofið sterkt ívaf stærðfræði og svo tungu þjóð- arinnar. Inn í námið er fléttað verklegum grein- um svo sem vélfræði, meðferð véla og verkfæra og viðhaldi þeirra og nýtingu. Námstíminn er sniðinn eins og gerist í venjulegum menntaskólum, þ. e. frá miðj- um ágúst, og lok námsársins er um miðj- an júní, en ekki frá nóvember til maí eins og fyrr gerðist. Hér og þar er nokkur vandi á ferðum fyrst í stað, einkum á verklegu sviðinum og svo kjósa sumir nemendur frekar að nema þá stærðfræði, er snertir atvinnuna, en algebru og aðra stærðfræði. Framtíðin Með breyttum búnaðarháttum í nútíð og framtíð getur það ekki orkað tvímælis, að menntunin verður að vera samræmd kröf- um tímans en ekki í fortíðar sniðum. Með tilliti til þess er og verður leitast við að fá bændur almennt á bylgjulengd við breytta háttu á þessum sviðum. Þessvegna hefur verið kjörin samvinnunefnd frá félagssam- tökum bænda, sem er og verður með í ráðum og fylgist með hvað gerist og hvernig hið nýja kerfi verkar. Að baki nefndarinnar standa: félög landbúnaðar- og skógarstarfsmanna, félag atvinnurek- enda, skógareigenda og bænda, og sam- bandsfélög búnaðarfélagsskaparins. Frá umræddri samvinnunefnd er og verður eftirlit haft með því, að búnaður allur, þar sem verkleg menntun fer fram, sé í sam- ræmi við tákn tímans og að hver skóli uppfylli þær kröfur, sem til hans eru gerð- ar, svo að hann sé og verði viðurkenndur sem liður í tilskildu menntaskólaþrepi. Á teikningu þeirri. er fylgir hérmeð, er auðsætt hvernig námskerfið er byggt hjá Svíum. Við hlið hins venjulega mennta- skóla og háskóla er náni, sem að meiri hluta geta verið og eru verklegar greinar, er ná yfir jafnlangt menntaskeið og önnur háskólamenntun, en námsleiðin rennur í vissa farvegu með tilliti til faggreina í hlutverkum framtíðarinnar í ævistarfi. Við eigum tvo bændaskóla og það er nóg. Viðbótarmenntun í þágu bændastéttarinn'ar er viðeigandi með nýju sniði, sem valgrein í menntaskólum á Islandi. F R E Y R 341

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.