Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1973, Blaðsíða 24

Freyr - 15.07.1973, Blaðsíða 24
+ / %agnar Asgeirsson 6.11. 1895 — 1.1. 1973. Ragnar Ásgeirsson var fæddur að Kóra- nesi á Mýrum 6. nóvember 1895, sonur hjónanna Jensínu Bjargar Matthíasdóttur, frá Holti við Skólavörðustíg í Reykjavík, og Ásgeirs Eyþórssonar, verzlunarstjóra og bónda í Kóranesi. Að Ragnari stóð atgjörvisfólk, sem margt setti mikinn svip á sína samtíð, þótt sumir forfeður hans væru nokkuð um- deildir og bindu ei bagga sína sömu hnút- um og samferðamenn. Ragnar ólst upp á heimili foreldra sinna, fyrst vestur á Mýrum og síðan í Reykja- vík, en þangað flutti fjölskylda hans alda- mótaárið. Árið 1909 fór hann til Danmerkur til náms í garðyrkju og dvaldist þar í landi um langa hríð. Árið 1914 hóf hann nám við garðyrkjuskólann Vilvorde í Charlott- enlund, skammt fyrir norðan Kaupmanna- höfn. Að loknu tveggja ára námi gerðist Ragn- ar kennari við skólann, en árin 1918—1920 starfaði hann sem garðyrkjumaður í Dan- mörku. Árið 1921 réðzt hann til Búnaðar- félags íslands sem garðyrkjuráðunautur og forstöðumaður gróðrarstöðvar Búnaðarfé- lagsins, sem þá var hér í Reykjavík, við sunnanverðan Laufásveg, en árið 1932 var gróðrarstöðin flutt að Laugarvatni, þar sem hún var starfrækt sem slík til ársins 1940. Meðan gróðrarstöðin var á Laugar- vatni kenndi Ragnar jafnframt við héraðs- skólann þar. Ragnar hélt áfram að starfa sem garð- yrkjuráðunautur Búnaðarfélags íslands fram á mitt ár 1957, en eftir að hann hætti þeim starfa var hann byggðasafnaráðu- nautur allt til ársloka 1971 er hann lét af störfum hjá Búnaðarfélagi íslands og hafði þá verið í þjónustu félagsins í 51 ár, eða mun lengur en nokkur annar. Skrifari Búnaðarþings var Ragnar frá árinu 1935 og gegndi hann þeim starfa þangað til hann hætti störfum hjá Búnað- arfélaginu. Meðan Ragnar hafði stjórn gróðrarstöðv- arinnar á hendi, voru gerðar þar margvís- legar tilraunir og ræktunarnýjungar og haldin fjölsótt garðyrkjunámskeið, sem efldu mjög útbreiðslu garðyrkju- og verk- menningar á því sviði. Fundamaður þótti Ragnar mjög skemmtilegur og átti auðvelt með að setja svo fram mál sitt, að öllum væri auðskilið. 354 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.