Freyr

Årgang

Freyr - 15.07.1978, Side 12

Freyr - 15.07.1978, Side 12
SIGURÐUR FUNI: Blátt hálsbindi Það er margur búskapar- og skaparvandin. Frá því segir í eftirfarandi sögu, sem Frey send fyrir nokkru. hjú- var „Nei, þá geng ég nú heldur út og hengi mig,“ sagði Grímsi þrjóskulega, þegar Val- gerður spurði í bitrum tón, hvort honum fyndist nú ekki kominn tími til að losa þau við þetta bannsetta verkfæri. Þessa sköru- legu yfirlýsingu mannsins virti hún ekki svaraverða. Það þurfti svo sannarlega ekki að taka það alvarlega, þótt Grímsi kvæði svona sterkt að orði. A.m.k. hvarflaði það ekki að konu hans, að hann væri í neinum sjálfsmorðshugleiðingum. Hún var farin að þekkja orðatiltækin hans og vissi, að það var ekki alltaf sérlega mikið ígrundað, sem upp úr honum skaust. Og hvað henginguna snerti, þá þóttist hún þess fullviss, að seint mundi maður hennar öðlast þann kjark, sem til þess þarf, að stökkva út af hey- stabba um snöruna um hálsinn, eða hvernig sem menn fara annars að því að hengja sig í sveitinni. Annars var Ásgrímur Jónsson, bóndi, enginn sérstakur málskrafsmaður og satt að segja fannst sumum, að hans hlutur væri jafnan bestur, þegar hann sagði sem fæst. Og það mátti hann eiga, að hann var ekkert gefinn fyrir að blanda sér í samræður manna, ef fleiri en tveir voru saman. Helst var þó, að hann legði orð í belg, ef hann gat komið að einhverju spakmælinu, sem einhvern veginn hafði síast inn í hann í uppvextinum, þó honum gengi illa að læra boðorðin, sem presturinn vildi kenna hon- um undir ferminguna. Þessi fornu spakmæli notaði hann óspart, jafnvel þó að þau hefðu næsta lítil tengsl við þau mál, sem í umræðu voru. Það gat t.d. borið við, ef rætt var um skattamál eða bindingu sparifjár, að hann laumaði út úr sér, ef hlé var á máli manna: „Ja, það er sjaldan bagi að bandi eða byrðarauki að staf.“ Eða ef rætt var um fiskveiðar og landhelgismál, að þessi merkilega athuga- semd kom utan úr horni, þar sem Grímsi sat: „Já, hníflaus er líflaus og víst er það.“ 470 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.