Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.07.1978, Qupperneq 37

Freyr - 15.07.1978, Qupperneq 37
í ráði er að senda sérprentun af þessum leiðbeiningum til allra bænda í landinu. Yfirullarmatsmenn tóku formlega til starfa í maímánuði 1977 og heimsóttu þá ullarþvottastöðvar og kynntu sér nýja ullar- matið, sem gekk í gildi á starfandi ullar- þvottastöðvum og ullarmóttökustöðvum á útmánuðum 1977. Á fundunum 9.—11. febrúar var rætt um ýmsar hliðar á framkvæmd ullarmatsins. Ullarþvottastöðvar á Álafossi og í Hvera- gerði voru heimsóttar og rætt var við for- svarsmenn þessara fyrirtækja um ullarfram- leiðsluna yfirleitt og það, hvaða þættir hennar þyrftu helst útbóta við. Þá var rætt um nauðsyn þess að kynna bændum nýju ullarmatsreglurnar og veita þeim aukna fræðslu um framleiðslu, með- ferð og frágang á ullinni. Einnig var mikið rætt um það, hvernig best yrði staðið að því að koma á móttöku- mati á ull. í lögunum og reglugerðinni um ullarmat eru skýr ákvæði um það, að bændur eigi rétt á því að fá ull sína metna við móttöku, en þá er gert að skilyrði, að þeir komi með hana flokkaða á móttökustað. Móttökumati samkvæmt þessu ákvæði er hvergi komið á í landinu ennþá. Margir bændur hafa sýnt á því áhuga að fá ull sína metna við móttöku, en ekki liggur Ijóst fyrir, hvernig skipting matskostnaðar muni verða milli móttökustöðva og ullar- þvottastöðva. Fram kom, að eitt brýnasta verkefnið á sviði ullarmatsins nú er aukin fræðsla meðal bænda um framleiðslu, meðferð, flokkun og frágang á ullinni. Yfirullarmatsmenn munu á næstunni kanna áhuga á námskeiðum meðal bænda um þessi mál. Rétt mun vera að leita sam- starfs við búnaðarsambönd og hreppabún- aðarfélög um slík námskeið, og mikilvægt er að ná sem bestu samstarfi við vélrún- ingsmenn í sambandi við frágang og flokk- un á ull. Fram kom, að þörf væri á að endurskoða framkvæmd á niðurgreiðslum á ull úr ríkis- sjóði. Nú er greiðsla innt af höndum við framvísun á nótum yfir innvegna, ómetna ull, og er greiðslan óháð því, hvort um er að ræða góða eða lélega vöru. Rík ástæða er til að kanna, hvort ekki sé rétt að tak- marka niðurgreiðslurnar sem allra mest við betri flokka metinnar ullar, þannig að þær verði sem bestur hvati að umbótum á fram- leiðslunni. Þá var bent á, að óeðlilegt mætti telja, að ull færi hækkandi í verði til bænda, eftir því sem líður á verðlagsárið, því að ullin fer yfirleitt versnandi að gæðum, eftir því sem hún er síðar lögð inn á árinu. Ef hægt væri að finna leiðir til að ná jafnaðarverði á ullina yfir árið, mundi það hvetja til vetrar- rúnings, sem gefur bestu ullina. Alþingi samþykkti ný lög um ullarmat vorið 1976. Leiðbeiningar um ullarframleiðslu og ullarmat verða væntanlega sendar öllum bændum í landinu. F R E Y R 495

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.