Freyr

Årgang

Freyr - 15.07.1978, Side 41

Freyr - 15.07.1978, Side 41
Fjárskipti vegna mæðiveiki á íslandi byrjuðu fyrst 1937, og þeim var haldið áfram næstu áratugi. Líklegt er að fjárskiptin hafi komið í veg fyrir að sauðfjárrækt legðist af í heilum landshlutum, a.m.k. á tímabili. Myndin er af sauðfé af Gottorpsstofni á Hesti. Það féll með fjárskiptum 1950. skiptum í sauðfjárræktarfélögum um 10%. Orsakir 7% smits eru óljósar. Ekki hefur verið sannað, að smitun hafi orðið í haga. Og ekki er dæmi þess, að smit hafi borist frá búi, sem sett hefur verið í sóttkví. Þá segir í greininni, að mæðiveiki sé lungnasjúkdómur og að honum valdi veira, sem aðeins sé í lifandi sauðfé. Meðgöngu- tími veikinnar sé langur, allt að 8 árum, sjúkdómurinn sé hægfara og langvarandi og leiði til bana eftir mörg ár. Hann sé ólæknandi. Allt þetta var áður kunnugt hér. En hvernig haga Norðmenn baráttunni við mæðiveikina? í stuttu máli á þessa leið: Dýralæknayfirvöld hafa skipulag baráttuna í samræmi við það, hvernig vitað er, að mæðiveikin hagar sér í Noregi, en þar virð- ist hún ekki vera mjög smitandi. Settar hafa verið reglur, sem banna sölu á kindum til lífs frá sýktri hjörð, og bannað er að sleppa sýktum kindum í haga með öðru fé. Ekki má flytja fé milli fylkja nema með leyfi Dýralækningadeildar landbúnaðarráðuneyt- isins, o.s.frv. Reynt verður að fylgjast með útbreiðslu veikinnar með því að halda á- fram að skoða lungu og taka blóðsýni, og lögð verður aukin áhersla á að greina veik- ina í byrjun. Til þess að draga úr óþægind- um vegna opinberra aðgerða gegn veikinni, verða bændur hvattir til að auka sauðfjár- sæðingar, en veiran hefur ekki fundist í sæði. Fræðsla um veikina verður aukin meðal bænda. Aðspurður telur Helgi Udnes, að búið sé að ná tökum á mæðiveikinni í Noregi, en tekur þó fram um leið, að þess megi vænta, að hún eigi eftir að stinga sér niður á nýjum stöðum. Hann álítur að hafa megi hemil á sjúkdómnum með lungna- skoðun og blóðsýnatöku, svo fremi að sett- um reglum sé fylgt. Udnes segist ekki geta sagt með vissu, hvort unnt sé að útrýma veikinni í Noregi, en auðvitað sé stefnt að því. Til samanburðar um, hvernig íslendingar brugðust við mæðiveikinni, má t.d. benda á greinar um þetta efni í Frey 1937, bls. 59, 64, 94 og 152 og Frey 1938, bls. 58, 93, 172 og 173, grein Sæmundar Friðrikssonar: Barátta við sauðfjársjúkdóma, sem birtist í Árbók landbúnaðarins 1970 og ritið Til- raunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum, 1948—1973, bls. 30—31. J.J.D. F R E Y R 499

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.