Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1982, Page 22

Freyr - 01.08.1982, Page 22
víilda verulegri uppskerurýrnun næsta ár, og svipað er uppi á ten- ingnum ef borið er á 8. águst, þó í minna mæli sé. Dæmið snýst hins vegar við ef borið er á 22. júlí, þar gefur fyrsti sláttutíminn besta raun. Áhrif þess hvenær seinni sláttur er sleginn á uppskeru næsta ár hefur áður komið fram í tilraun á Hvanneyri (Magnús Óskarsson og Bjarni Guðmundsson 1971). Pá var vallarfoxgras slegið á þrem mismunandi tímum, og há slegin ýmist 7 eða 9 vikum eftir slátt. Eftirverkunarárið var talsvert minni uppskera af þeim reitum sem 9vikurvoru milli slátta en ef7 vikur liðu. Ef 1. sláttur var sleginn mjög seint kom þessi munur þó ekki fram. Yfirlit. Árið 1977—1980 var í tilraun á Hvanneyri reynt hvort hafa megi áhrif á sprettu og næringargildi háar með mismunandi áburði og áburöartíma milli slátta. Háarspretta varð ívið meiri ef N, P og K áburði var skipt, en ef að- eins N var skipt, en samanlögð uppskera I. og 2. sláttar var sú sama hvort sem gert var. Seinkun áburðartíma eftir 1. slátt dró úr uppskeru í 2. slætti talsvert og einnig samanlagðri uppskeru. Nokkur spretta var fyrri hluta september, að meðaltali um 19 kg þurrefnis/dag, sýnu minnst við seinasta áburðartíma. Seinni hluta september var spretta engin. Meltanleiki uppskerunnar reyndist óháður áburðartíma og áburðartegund. Næringargildið var hátt, en féll nokkuð frá miðjum september. Við mælingu á eftirverkun kom í Ijós, að seinkun sláttutíma rýrði uppskeru næsta árs. Þetta var þó háð áburðartíma. Heimildir. Halldór Pálsson og Ólafur R. Dýrmundsson 1979. Beit lamba á grœnfóður. Handbók bænda, 29, 174—180. Magnús Óskarsson og Bjarni Guömundsson 1971. Rannsóknir ú vallarfoxgrasi (Engmo) I ísl. landb., 3, 40—73. Stefán Aðalsteinsson, Jón Tr. Steingríms- son, Þór Porbergsson og Páll Sigur- björnsson 1978. Ráöunautafundur 1978, 299—305. NÆRINGIN ER TRYGGÐ MEÐ FÓÐKI FRÁ: E-ípurina VEL FÓÐRAÐIR HUNDAR ERU FALLEGIR, FRÍSKIR OG Gjald fyrir teikningar Samkvæmt heimild í lögum nr. 41/1982 hefur stjórn Stofnlána- deildar landbúnaðarins ákveðið að Byggingastofnun landbúnað- arins skuli taka gjald fyrir teikningar sínar frá og með 1. ágúst 1982. Fram til þessa hafa bændur einungis verið látnir greiða pappírs- gjald fyrir ljósritun, en nú kemur til gjald fyrir afnotarétt af teikning- um. Gjald þetta er mjög vægt og er aðeins brot af því sem tíðkast á almennum markaði. Gjaldið er fyrst og fremst hugsað til að renna stoðum undir betri þjónustu í framtíðinni, en þegar hefur verið farið út á þá braut að semja við aðila úti í héruðum að sinna þjónustu við bændur á okkar vegum. Pessi þjónusta er nú fyrir hendi allt frá Eyjafirði austur um að Skeiðarársandi. Önnur héruð koma nreð eftir því sem þau taka upp nýja fyrirkomulagið á bygg- ingaeftirlitinu. Ennfremur standa vonir til að unnt verði að vcita verkfræðiþjónustu innan tíðar. Fyrir tímabilið I. ágúst til 31. desember í ár verður gjaldið kr. 4.200 fyrir íbúöarhús, kr.3.400 fyrir fjós, fjárhús og svínahús, kr. 2.700 fyrir hænsnahús, hesthús, loðdýrahús og réttir, 2.100 fyrir hlöður. geymslur og gróðurhús. og kr. 400 fyrir breytingar á teikningum eftir að þær hafa verið fullunnar. Gjaldið breytist síðan 1. janúar og 1. júlí ár hvert samkvæmt byggingarvísitölu. Gunnar M. Jónasson 614 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.