Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1982, Page 30

Freyr - 01.08.1982, Page 30
Árný Jónsdóttir í Húsey að fella selanót. (Ljósm. ö. K. P.) vandamál, og þaö ekki lítið, en þaö tel ég heimatilbúið. Selurinn er talinn millihýsill á lífsferli hring- ormsins. Aftur á móti hafa sjó- menn á bátum og togurum sagt mér að ormur sé mestur á ókyn- þroska þorski sem er veiddur uppi á kanti (grunnum sjó), en í kyn- þroska fiski sé mjög lítið af ormi, og svotil enginn ef fiskurinn er veiddur fyrir utan kantinn. Við erum þarna að drepa fisk sent ótímabært er að veiða bæði vegna smæðar og þess að hann er ókyn- þroska auk þess sem þessir fiskar eru fullir af ormi. Það er eins og að spila í happ- drætti að búa við sel sent aukabú- grein. Veiði getur verið svo mis- jöfn milli ára, sem og verð á skinn- unum. Eins og ég gat um áður eru lifnaðarhættir selsins lítið þekktir hér við land en sem selveiðibóndi síðastliðin 10 ár kynnist maður ýmsum háttum og atvikum sem eiga sér stað meðal þeirra. í góðu árferði kæpir selurinn hér upp úr 10. maí en á köldum vorunt eins og 1979 kæpti hann ekki fyrr en ísinn fór úr vötnum, Jökulsá á Dal og Lagarfljóti, sem var 4. júní. Strax 6. júní voru kæpurnar komnar upp í vötnin og byrjaðar að kæpa. Veit selurinn árið áður hvernig vorið næsta verður'? Fengitími þeirra er sennilega í júlí. áður en þeir skipta um hár. Síðan er haldið að eggið liggi frjóvgað í leginu töluverðan tíma og fari ekki að vaxa fyrr en eftir nokkra mánuði. Hvað er það sem setur fósturvöxtinn í gang'? Er það sjávarhiti, tunglkomur eða æti hans'? Veiðiaðferðir eru margar og fara eftir aðstæðum og lands- hlutum. Ég veiði um 80% af kóp- um í reknet og 20'/o í lagnet, rota hann og mænusting um leið og blóðgun fer fram. Áður fyrr var selkjöt björg í búi á vorin og eins selspikið. Við reynum að nýta allt kjötið en hver kópur gefur um 5—8 kg af því. Það er herra- mannsmatur, steikt eins og lamba- kjöt í ofnskúffu. Einnig er það gott saltað eða reykt. Margir koma og fá hér sel í matinn, einkum þó Út- héraðsmenn. Spikið er ekki hirt né innmatur (lifur og hjarta) en þó eru alltaf einhverjir sem biðja um saltað spik og finnst það ómissandi með fiski. Þá eru súrir selshreifar herramannsmatur og eftirsóttir af sælkerum t. d. á þorrablótum, en mikil vinna er við að svíða þá og skafa. Nú svo er aðalafurðin; skinnið. Frá því að kópurinn er veiddur rná hann helst ekki þorna og best að skinnið sé alltaf rakt. Við fláum kópinn sem fyrst, þvoum skinnið, setjum það í plastpoka og frystum. Þar geymist það vel, allt að einu ári, er reynsla okkar. Er veiðitíma lýkur tökum við þau úr frysti þíðunt þau í köldu vatni og sköfum fitu úr þeim. Síðan eru þau þvegin úr 2—3 sápumett- uðum vötnum, síðan skoluð og negld upp til þurrkunar (spýtt). Þar hanga þau mislengi, eftir Stundum villasl kópar undan mceðrum sínum. Anna Arnardóttir íHúsey hefur fundið undanvilling og komið með heim. (Ljósm. ö. K. P.) 622 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.