Freyr - 15.06.1987, Síða 14
Hirðing í vothey með heyhleðsluvagni, sjálfmatara og saxara á Porvaldseyri undir Eyjafjöllum. (Ljósm. Magnús Óskarsson).
eöa hvaða mismunur væri á vot-
heyi, sem var sett strax í loftþéttar
umbúðir og hins vegar því sem
blandað var 4% eða 8% súrefni,
sem átti að svara til þess að hirð-
ing tæki annars vegar 1 sólarhring
og hins vegar 2, kom fram að
meltanleiki votheysins minnkaði
við meira súrefni og kænrist loft að
síðar, þ.e. við opnun, minnkaði
hann enn.
í öðru erindi á fundinum var
skýrt frá mælingum á hita í
votheysturnum, sem tæmdir voru
að ofan. í turninum var yfirborðs-
hiti 23°C, þegar byrjað var að
tæma þá og síðan fór hiti hækk-
andi niður á við í um það bil
tveggja m dýpt. Þar var að meðal-
tali 34°C. Fyrst eftir að farið var
að gefa úr turninum hækkaði hiti í
yfirborðinu, og þegar gefið hafði
verð úr turninum í 2 vikur ( 40—
50 cm lag) var hiti í yfirborðinu
462 Freyr
38°C, en í 2 m dýpt var hann enn
34°C.
Hitamyndunin verður vegna
efnabreytinga, þar sem loft kemst
að. Hækkun hitans í yfirborðinu
verður vegna lofts sem kemst að
heyinu þegar verið er að tæma
turninn en dýpra í stæðunni vegna
lofts sem var í heyinu við hirðingu.
Hitinn í yfirborði varð hæstur um
það bil viku eftir að farið var að
gefa úr turninum. Pað eru einkum
gersveppir og bacillus gerlar, sem
koma efnabreytingunum af stað.
Hitinn dýpra í stæðunni myndast
þar við hirðingu. Sú orka sem er í
glúkósa í heyinu breytist í varma
við sýringu (oxidering) og þessum
varma er haldið við með frumu-
öndun meðan súrefni er í stæð-
unni. Með því að loka votheys-
stæðu strax gengur súrefni í stæð-
unni fljótt til þurrðar vegna
frumuöndunar grassins. Með því
að lækka pH með maurasýru
stöðvast einnig starf hvata (en-
syma) í heyinu.
Þessar rannsóknir sýna að
leggja verður töluverða áherslu á
að votheyshlöður séu fylltar sem
hraðast og það er auðveldara að fá
gott vothey úr tveimur litlum
gryfjum en einni stórri.
Söxun.
Öll meðferð heysins verður léttari
við söxun. Löng strá valda því að
heyið hangir saman. Þegar stubb-
lengd er minni en 5 cm fellur
heyið auðveldlega sundur og með-
ferð þess verður auðveld. Ýmis
tæmitæki og sjálffóðrarar verka
ekki fullkomlega nema strálengd
sé um 2 cm.
Stutt strá falla betur saman en
löng, þannig að meira kemst á
hvern vagn af söxuðu grasi en
ósöxuðu. Þetta kemur að sjálf-