Freyr - 15.06.1987, Blaðsíða 25
Lifa fjölskyldubúin?
Fólksfjölgun á síðustu áratugum
hefur víðast verið rúmt 1% árlega
og neysla vaxandi. Við lok þessar-
ar aldar verður fólksfjölgun í flest-
um löndum Vestur-Evrópu líklega
um 0,5% árleg aukning og þess
vænst að almenn neysluaukning
matvöru verði hverfandi. Því er nú
almennt spáð mun minni
aukningu í framleiðslu en verið
hefur til þessa. Gert er ráð fyrir
um 2% aukningu í svína- og kjúkl-
ingaframleiðslu á næstu árum, en
aðrar greianr leyfa innan við 1%
/ Evrópulöndum eru menn stadrádnir í aö viðhalda fjölskyldubúinu í búskap.
heildarframleiðslunni, en afgang-
urinn verði framleiddur af fjölda
bænda sem hafa aðeins hluta af
framfæri sínu af búvörufram-
leiðslu. Til mikillar furðu þá virð-
ist stefna í líka uppbyggignu land-
búanðarframleiðslu og í Sovétríkj-
unum sem þróaðist í þessa átt frá
allt öðrum sjónarhóli. í Austan-
tjaldslöndunum er iðnvæðing mat-
vælaframleisðlu í fjárfrekum ein-
ingum orðin til út frá pólitískri
hugmyndafræði en ekki vegna
þrýstings markaðsaflanna.
í Evrópulöndum eru menn víða
staðráðnir í að viðhalda fjöl-
skyldubúum í landbúnaðarfram-
leiðslunni. Til að slíkt megi takast
krefst að þremur skilyrðum sé
fullnægt. I fyrsta lagi vissrar
markaðsstjórnunar til að draga úr
óheppilegum sveifluáhrifum frá
matvælaútflutningsþjóðum. Hér
er lykilatriði hvernig brugðist er
við sveiflum í kornverði. í öðru
lagi jöfn tækniþróun sem tryggi
jákvæða hagræðingu innan land-
búnaðarins og lækkandi verð til
neytenda. í þriðja lagi öflug
þjónustustarfsemi fyrir landbún-
aðinn á sviði fjármögnunar,
leiðbeininga, rannsókna og mark-
aðsþróunar. Þær þjóðir Evrópu
sem standa utan efnahagsblokk-
anna hafa sýnt að þegar þessum
skilyrðum er fullnægt er fjöl-
skyldubúið ákaflega vel sam-
keppnisfært.
/ spá um landbúnað í Bandaríkjunum til aldamóta er gert ráð fyrir að um 50 000 risabú
framleiði um 75% af heildarframleiðslunni.
Evrópu frá þeim tíma. Frá 1960 til
1980 hefur kjúklingaframleiðsla
aukist um 7% á ári til jafnaðar.
Aukning í eggja- og svínakjöts-
framleiðslu er nú 3% á ári.
Nautakjötsframleiðsla sýnir um
3% árlegan vöxt en sú framleiðsla
er verulega sveiflukennd á tíma-
bilinu. Aukning í mjólkurfram-
leiðslu er um 2% á ári. Á sama
tíma hefur samdráttur í vinnuafli
verið yfir 3% á ári í landbúnaðar-
framleiðslu og framleiðsla hefur
því aukist með áður óþekktum
hraða og meira en í öðrum grein-
um atvinnulífs. Þróun í Bandaríkj-
unum hefur verið hliðstæð á þessu
tímabili.
árlega aukningu. í Efnahags-
bandalaginu er landbúnaðarfram-
leiðsla nú almennt um 10% um-
fram markaðsþarfir og á þessum
markaði þarf að verða jafnvægi
áður en nokkurs stöðugleika er að
vænta.
Bandaríkjamenn hafa nýverið
birt skýrslu em væntanlega þróun í
landbúnaði til aldamóta. Þar er
gert ráð fyrir enn harðari sam-
keppni innan landbúnaðar en
áður og stórfelldri aukinni hag-
ræðingu í framleiðslu. Gert er ráð
fyrir að um 50.000 landbúnaðar-
iðjuver framleiði um 75% af
Freyr 473