Freyr - 01.12.1993, Qupperneq 27
23.’93
FREYR 863
Skýrsla Félags hrossabœnda
13. nóv. 1992 til 11. nóv. 1993
1. hluti
I. Félagsstarfið
Stjórnarfundir voru fimm: 4.12., 17.02., 13.05., 3.09., 10.11. og einnig var símafundur
22.01. Markaðsnefndarfundur var haldinn 13.02., en einnig var haldinn sérstakur
fundur með útflytjendum þennan sama dag.
Félagsmenn fengu sent félagsbréf í
apríl og stutt bréf í júní og október.
Stjórnarfundargerðir fengu allir
stjórnarmenn deilda sendar, mark-
aðsnefndarmenn og stjórnarmenn
sem og samstarfsaðilar, sem óskað
hafa.
Níu starfandi deildir félagsins, í
A-Skaftafellssýslu, Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslu, Árnes-
sýslu, á Vesturlandi, í Vestur-
Húnavatnssýslu, Austur-Húna-
vatnssýslu, Skagafirði, Eyjafjarð-
ar- og Þingeyjarsýslum og Múla-
sýslum, sáu um hagsmunamál
sinna svæða, s.s. sölusýningar á
reiðhrossum, sýningar í Reiðhöll-
inni, öflun sláturhrossa á Japans-
markað og í sumum tilfellum flutn-
ing þeirra um langan veg í
sláturhús o.fl.
II. Störf starfsmanna F.HRB.
Hallveig Fróðadóttir vinnur í
heilu starfi á vegum F.hrb. við
leiðbeiningarstarf um útflutnings-
verslunina og sér um kynningar-
starf erlendis í samráði við for-
mann markaðsnefndar. Hún geng-
ur frá upprunavottorðum, sbr.
samkomulag B.í. og F.hrb. frá
27.11.1990 og innheimtir lögbund-
in sjóðagjöld af útflutningnum og
skilar til réttra aðila. Gjöld þessi
voru á síðasta verðlagsári: Til
Stofnverndarsjóðs kr. 3.874.700
(árið áður: 7.286.231), til Fram-
leiðsluráðs kr. 299.730 (376.101)
og til Búnaðarmálasjóðs kr.
1.920.577 (2.475.393). Þá var
einnig greitt til B.í. kr. 294.203
(285.420) en það gjald er 5 DM
(213,50 kr.) að lokinni innheimtu.
Framleiðsluráðsgjald er 0.25%
af heildsöluverði hestsins og Bún-
aðarmálasjóðsgjald er 2,025%
(0,2% til Stofnlánadeildar, 0,075
til B.Í., 0,5% til búnaðarsam-
banda, 0,25% til Stéttarsambands
bænda og 1% til Félags hrossa-
bænda). Þá aðstoðar Hallveig
einnig formann markaðsnefndar,
stjórnarmenn og aðra félagsmenn
eins og við verður komið við fé-
lagsstörf, s.s. ritun fundargerða og
minnispunkta af hinum ýmsu fund-
um, gengur frá sýningarskrám og
aðstoðar við auglýsingagerð.
Gunnar Bjarnason er í örlitlu
hlutastarfi sem lýtur að kynningar-
starfi varðandi útflutning reið-
hrossa.
III. Relðhrossaverslunln.
Á síðasta verðlagsári 1992/1993
voru flutt út alls 2168 hross (91/92:
1959), þar af voru 70 ógeltir hestar
(91/92: 35), 1088 hryssur (91/92:
914) og 1010 geldingar (91/92:
975). Aukningin nemur 209 hross-
um milli verðlagsára.
Stærstu útflytjendur á verðlags-
árinu eru Gunnar Arnarson: 504
hross, Hinrik Bragason: 498 hross,
S.Í.H. - Edda-hestar: 193 hross
Jón Friðriksson, Vatnsleysu: 169
hross og Ásgeir S. Herbertsson:
109 hross.
Útflutningur reiðhrossa árið
1992 var: 2004 (1991: 1834) hross,
þar af voru 43 (47) ógeltir hestar,
918 (812) hryssur og 1043 (975)
geldingar. Skipting eftir löndum
var eftirfarandi: Þýskaland: 982
(798), Svíþjóð: 574 (504), Noreg-
ur: 112 (204), Danmörk: 149
(105), Holland: 39 (66), Austur-
ríki: 26 (44), Finnland: 20 (43),
England: 22 (22), Sviss: 4 (19),
Færeyjar: 10 (13), Bandaríkin og
Kanada: 58 (9), Frakkland: 4 (9)
og Ítalía 4 (ekkert hross var flutt til
Ítalíu 1991 en 1 hross fór til Lux-
emborgar).
Útflutningur fram til 1. nóvem-
ber 1993 er sem hér segir: Alls hafa
farið 2098 hross, þar af voru 60
ógeltir hestar, 1007 hryssur og
1031 geldingar. Skipting eftir lönd-
um: Þýskaland: 1060, Svíþjóð:
382, Noregur: 213, Danmörk: 193,
Austurríki: 59, Holland: 42,
Belgía 37, Finnland 23, England
og Skotland: 19, USA og Kanada:
17, Sviss: 16, Frakkland: 14, Ítalía:
10, Færeyjar: 9, írland: 2 og Lúx-
emborg: 2.
Stærstu útflytjendur á þessu ári
eru: Hinrik Bragason: 552, Gunn-
ar Arnarson: 469, Jón Friðriksson:
227, S.Í.H.: 192 og Ásgeir S. Her-
bertsson: 105.
Á sama tíma árið 1992 höfðu
farið út 1856 hross sem skiptust í 38
ógelta hesta, 826 hryssur og 991
geldinga. Þetta er aukning um 242
hross.
3.1. Stofnverndarsjóður
Þann 6. apríl 1993 var breytt
reglugerð nr. 137 um Stofnvernd-
arsjóð að ósk F.hrb. um ákveðna
upphæð í stofnverndarsjóðsgjald.