Freyr - 01.12.1993, Side 30
866 FREYR
23.'93
verður 17. nóvember nk. Edda-
hestar hafa flutt starfsemi sína í
Þýskalandi til Rosback, þorps sem
er í um 20 km fjarlægð frá Frank-
furt. Edda-hestar hafa einnig flutt
aðalskrifstofu sína að Andvara-
völlum í Garðabæ og hafa þar
einnig hesthús fyrir 8-12 hross.
3.6. Verkefnanefndir F.hrb.
a) Krafthestar
Starfsemi Krafthesta er á áætlun
hvað varðar námskeiðahald er-
lendis. Seinkun hefur orðið á út-
flutningi á fleiri hrossum til Sama
þar sem Sænska ríkið hefur lent í
erfiðleikum með að standa í skilum
með styrk til Samanna, en það
horfir til betri vegar nú. Skýrslu
Krafthesta sf. mun verða dreift til
fulltrúa F.hrb. á aðalfundinum.
b) Sigurbjörn Bárðarson o.fl.
v/Ameríku
Að ósk Sigurbjörns Bárðarsonar
ákvað stjórn F.hrb. að tilnefna Sig-
urbjörn Bárðarson, Vatnsenda-
bletti 57, Sigurð Gunnarsson,
Bjarnastöðum og Baldvin Kr.
Baldvinsson, Torfunesi, í verk-
efnanefnd, sem hafi það viðfangs-
efni, með stuðningi Félags hrossa-
bænda og Landbúnaðarráðuneyt-
isins, að koma á viðskiputm við
Bandaríkin varðandi sölu hrossa,
tamningu, þjálfun, stofnun félaga,
sýningahald og annað sem stuðlað
geti að auknum viðskiptum.
Nefndin hefur ákveðið að gera
myndbönd af söluhrossum og
senda söluaðilum í Bandaríkjun-
um. Þegar hafa verið mynduð um
50 hross og er áætlað að senda
aðeins utan hross sem seljast eftir
myndböndum.
Nefndin hefur fyrirheit um
markaðsstyrk F.hrb. svo og annan
stuðning í formi flutningsstyrkja og
láns á tökuvél sem hentar fyrir
bandaríska myndbandakerfið.
c) ísen hf.
Að ósk Reynis Sigursteinssonar
ákvað stjórn F.hrb. að tilnefna
Reyni Sigursteinsson, Hlíðar-
bergi, Sigurjón Pálsson, Steinum,
og Friðrik H. Reynisson, Rauða-
bergi í verkefnanefnd sem hafi það
viðfangsefni að koma upp sölustöð
í Litháen fyrir íslensk reiðhross, til
þess að selja þaðan áfram hross
m.a. til Svíþjóðar, Þýskalands og
annarra Evrópuþjóða.
Nefndin hefur þegar stofnað
sameignarfélag við búgarð í Lithá-
en, KRASUONA og hyggst senda
60 - 80 hross á búgarðinn nú í
haust. Stór hluti hrossanna eru
söluhross, ætluð til sölu til Finn-
lands, Svíþjóðar og Þýskalands.
Nefndin hlaut markaðsstyrk
F.hrb.
3.7. Markaðsstyrkir F.hrb.
Fyrir utan verkefnanefndirnar
tvær hlutu eftirtaldir markaðs-
styrki F.hrb.:
a) Hinrik Bragason: Fyrir frá-
bæran árangur í útflutningi hrossa.
b) Viking-hestar sf.: Fyrir gerð
kynningarmyndbands, kynningar-
bæklings í 5000 eintökum og mark-
aðsátak í Texas, Bandaríkjunum,
með kynningarferðum þangað í
maí og september 1993. I maí
fengu Viking-hestar lánaða 3 hesta
hjá Sigurbirni Bárðarsyni sem voru
notaðir til kynningar á íslenska
hestinum í Texas. Aðilar frá Vik-
ing-hestum voru í 3 vikur í Texas
og fóru á milli búgarða og sýndu
hestana og könnuðu áhuga. Við-
brögðin voru jákvæð en verðið
þótti mjög hátt. Viking-hestar
gerðu einnig samning við búgarðs-
eiganda um að hann tæki að sér
umboð fyrir Viking-hesta. Þessi
umboðsmaður hefur síðan haldið
áfram kynningarstarfinu sín meg-
in. í september var Viking-hestum
boðið að sýna íslenska hestinn á
einni stærstu landbúnaðarsýningu í
Texas „The State Fair of Texas“.
Þessi sýning stendur yfir í tæpan
mánuð og u.þ.b. 3 milljónir manna
koma þar. Hluti af þessari sýningu
afmarkast við hestasýningar og er
þar aðallega um Bandarísk gang-
hestakyn að ræða. Viking-hestar
sýndu þar 3 hesta við mikla hrifn-
ingu áhorfenda.
c) Magnús Hreinsson: Fyrir
námskeiðahald í New York og Los
Angeles og aðstoð við eigendur
íslenskra hesta ásamt gerð kynn-
ingarrits um Islenska hestinn.
d) Atta aðilar fengur markaðs-
styrki vegna þátttöku sinnar í
Equitana sýningunni í Essen.
3.8. Fundur markaðsnefndar
F.hrb. með útflytjendum 13.02.
1993
Á þessum fundi var m.a. fjallað
um það að þegar átti að láta ríkis-
sjóð greiða dýralæknisskoðun á út-
flutningshrossum eins og reglu-
gerð kvað á um, þá var reglugerð
snarlega breytt ríkissjóði í vil.
Einnig var fjallað um markaðs-
möguleika íslenska reiðhestsins og
varð niðurstaðan eftirfarandi:
1. Vinna þarf að niðurfellingu
erlendra skatta og tolla.
2. Lækka þarf áfallinn kostnað
við útflutninginn eins og kostur er.
3. Gæta þarf þess að uppfylltar
séu óskir kaupenda um gæði hross-
anna, heilbrigði og rétta ættfærslu.
4. Vinna þarf að gerð nýs dýra-
læknisvottorðs fyrir útflutt hross,
sem sé samræmt erlendum dýra-
læknisvottorðum þannig að það sé
tekið gilt í tryggingum.
5. Vinna verður að því sem for-
gangsverkefni hjá innlendum
rannsóknaraðilum að leita leiða til
að finna bóluefni eða aðra vörn
gegn sumarexemi íslenskfæddra
hrossa erlendis.
6. Vinna þarf að markaðsöflun
á skipulegan hátt, með því að hlúa
að samstarfi við erlend áhuga-
mannafélög um íslenska hestinn,
tímaritaútgáfu erlendis, ræktunar-
starfi erlendis og hverju öðru sem
höfðar til hestamennsku, s.s. nám-
skeiðahaldi, tamningum, þjálfun
o.fl. Ráða þarf markaðsfulltrúa til
að hafa yfirumsjón og ábyrgð með
þessu starfi.
3.9. Vlðmlðunarverð á
reiðhestum 1993
Eftirfarandi viðmiðunarverð
voru samþykkt hjá stjórn og mark-