Freyr - 01.12.1993, Blaðsíða 36
872 FREYR
23.'93
Ormalyf og ormaveiki í sauðfé
Páll A. Pálsson, fv. yfirdýralœknir
Vegna meinlegra prentvillna í þessari grein í 21. tbl. er hún birt hér aftur. - Ritstjóri
Pess hefur verið farið á leit að ég
greindi í stuttu máli frá lyfjum sem
bændur hafa notað gegn ormaveiki
í sauðfé sem og þeim lyfjum sem nú
(1993) eru á Sérlyfjaskrá og því
tiltæk til notkunar, en samkvæmt
gildandi lagaákvæðum er ekki
heimilt að selja hér á landi sérlyf
nema þau hafi verið tekin upp í
áðurnefnda skrá.
Fyrst er þó rétt að víkja fáum
orðum að ormaveiki í sauðfé sem
margir hafa talið að sé sá
sjúkdómur sem einna mestu tjóni
hefur valdið sauðfjárbændum.
Enn í dag getur ormaveikin valdið
verulegu tjóni ef ekki er verið á
verði en mjög er sú hætta mismikil
eftir staðháttum, búskaparlagi,
búfjárhögum, heyverkun og veð-
urfari.
í meltingarvegi sauðfjár er að
jafnaði að finna ýmsar tegundir
þráðorma og sjást þeir við krufn-
ingu einkum í vinstur, ristli og
langa og geta verið fáeinir senti-
metrar á lengd. Aðrar tegundir eru
sumar svo litlar, að þær sjást ekki
þó að fjöldi þeirra sé mikill, nema
sérstök leit sé gerð að þeim. Vart
munu finnast kindur hér á landi
sem ekki hýsa fleiri tegundir orma,
sé vel leitað.
Þegar sauðfé var flutt til landsins
fyrr á þessari öld, mun lítill eða
enginn gaumur hafa verið gefinn
að því hvaða ormategundir þessar
kindur bæru til landsins. Þó að
seint verði fullkannað hvaða þráð-
ormategundir finnist í sauðfé hér á
landi, er talið að íslenskt sauðfé sé
laust við sumar þær tegundir orma
sem í grannlöndum okkar geta
valdið miklu tjóni.
Skaðsemi þráðorma er fyrst og
fremst komin undir því hve magn
ormanna er mikið en einnig hvaða
Páll A. Pálsson.
tegundir er um að ræða, því þær
eru misskaðlegar.
Ormategundir eru nokkuð stað-
bundnar í meltingarveginum, því
er talað um t.d. vinstrarorma,
langaorma, ristilorma o.s.frv. en
að sjálfsögðu geta þessar ormateg-
undir líka fundist á öðrum stöðum.
Iðulega virðast lirfur ormanna
meiri skaðvaldur heldur en full-
þroska ormar.
Megn iðraormasýking veldur
bólgum og sárum í slímhúð, eink-
um í vinstur, görnum og ristli og
sumir ormar sjúga blóð. Ormarnir
draga úr eðlilegri nýtingu fóðurs-
ins með ýmsu móti; valda deyfð,
þrótt- og lystarleysi, skituköstum
svo kindin þrífst ekki, horast jafn-
vel niður ef ekki er að gert.
Lungnaormar valda bólgu og
ertingu í barka og berkjum og
bólguörðum á víð og dreif um
lungun sem stundum er undanfari
lungnabólgu af öðrum toga.
Lungnaormasýkingu fylgir oft-
ast hrygla og þrálát hóstaköst, sem
stundum var kallað „vetrarkvef“.
Lömb, gemlingar og ungar kind-
ur eru að öðru jöfnu viðkvæmari
en fullorðið fé fyrir áreitni orma.
Proskaferill þráðorma er í stórum
dráttum nokkuð svipaður þó að
um ólíkar tegundir sé að ræða.
Ormarnir verpa eggjum, sem
berast með saurnum í hagann. Ur
eggjunum klekjast lirfur þar sem
skilyrði eru hagstæð, hafa ham-
skipti og festa sig við grasstrá þegar
þær eru orðnar smithæfar. Kindin
gleypir lirfurnar með grasinu. í
meltingarvegi kindarinnar
þroskast lirfurnar á mislöngum
tíma í fullþroska orma sem geta af
sér egg og hefst þá hringrásin á
nýjan leik.
Þroskaferill lungnaorma er
nokkuð flóknari. Kindin hóstar
eggjum ormanna upp, þeim er
kyngt og berast með saur á
beitilandið. Þar þroskast eggin í
smithæfar lirfur sem berast upp í
kindina með grasinu. Úr melting-
arveginum borar lifran sér inn í
blóðrásina og berst þannig til
lungnanna. Sumar ormategundir
þurfa „millivert“, snigla, til að lirf-
ur þeirra verði smithæfar.
Yfirleitt eru smithæfar ormalirf-
ur í haganum mjög lífseigar, geta
lifað frá ári til árs, jafnvel lengur.
Venjulega kemur ormaveiki í
hjörðinni þannig fram að einstaka
kindur kviðdragast, fara að fá
hlessing, jafnvel skitu. Yfirbragð
kindanna verður dauflegt, þær eru
þróttlitlar, dragast aftur úr eða
vilja leggjast við rekstur.
Sjálfsagt er að gefa þessum kind-
um ormalyf þegar í stað og sést
árangur af lyfjagjöfinni oftast inn-
an fárra daga. Þegar svona stendur
á má gera ráð fyrir að hávaðinn af
fénu sé með mikið af ormum í sér
og það sé farið að há því þó að