Freyr - 01.12.1993, Síða 39
23.’93
FREYR 875
heldur einnig ivermectinum. Lyf
þessi virka á taugakerfi sníkjudýra
og lama þau svo þau drepast.
Öll þau ormalyf sem nú eru
skráð hér á landi til nota gegn
ormum á sauðfé eru ekki hættuleg,
og eru bæði fjölvirk og mikilvirk,
gefin í réttum skömmtum.
Til þess að girða fyrir að fram
komi ónæmir ormastofnar, hefur
verið ráðlagt að gefa ekki sama
ormalyfið mörg ár í röð heldur
skipta árlega um lyf.
Þegar gefa á mörgu fé ormalyf,
er nauðsynlegt að hafa samhentan
mannskap svo að verkið gangi
greiðlega og fari vel úr hendi og
gæta þess að hver kind fái sinn
afmælda skammt.
Umfram allt þarf að lesa vel þær
leiðbeiningar sem lyfjunum fylgja
áður en verkið er hafið og fylgja
þeim eins vel og kostur er. Alltaf
skyldi gefa lyfin inn með varúð.
Stöðugt er unnið að því víða um
lönd að finna ný og virkari lyf gegn
ormum og ný lyfjaform sem eru
handhægari í notkun. Sífellt er ver-
ið að auka við þekkingu okkar á
lífsskilyrðum ormategunda og með
hvaða hætti vænlegast sé að draga
úr skaðsemi þeirra. Ymsir binda
vonir við að takast megi að beita
ónæmisaðferðum í baráttunni við
ormaveikina.
Reynslan hér á landi hefur sýnt
að það sem jafnan skiptir mestu
máli til að verja féð ormaveikinni
er góð meðferð fjárins, alhliða og
nægilegt vetrarfóður og frjálsræði í
högum.
Ef hinsvegar ber útaf um með-
ferð fjárins, svo grunur leiki á að
ormaveiki sé að búa um sig í hjörð-
inni, er nauðsynlegt að grípa til
lyfjagjafa og láta það ekki dragast.
Það á enn við sem Niels Dungal
orðaði svo fyrir meira en hálfri öld:
„Það er betra að losa féð við
ormana heldur en hafa heilan her-
skara af ormum á fóðrum með
fénu“.
Heimildir:
Guömundur Gíslason: Freyr 1966, 62,
89-92.
Guðmundur Gíslason: Læknablaðið
1968, 54, 19-32.
Jón H. Þorbergsson: Um hirðingu sauð-
fjár, Rvík. 1912.
Magnús Einarsson: Freyr 1918, 15, 68.
Niels Dungal: Búnaðarrit, 1936, 51, 23-
44.
Páll Stefánsson: Fjármaðurinn, Rvík
1913.
Sigurður Richter o.fl: Freyr, 1981, 77,
547-551.
Stefán Sigfússon: Búnaðarrit 1893, 7,
123-168.
Merck Veterinary Manual, 7. útg. 1991,
1481-1497.
Sérlyfjaskrá, 1993, Rvík 1993.
Sykes A.R. McFarlane R. G. og
Familton A.S. í: Progress in Sheep and
Goat Research 1992,179-191, ritstjóri,
Speedy A.W.
Ný lög um dýrasjúkdóma.
Frh. afbls. 859.
varnaraðgerðir og hafa eftirlit með
starfrækslu og viðhaldi varnarlína.
Búnaðarfélag íslands og Stéttar-
samband bænda skipa sinn mann-
inn hvor en yfirdýralæknir er for-
maður nefndarinnar. Þetta er í
samræmi við það markmið laganna
að samræma og færa á eina hendi
stjórn sjúkdómamála dýra í land-
inu. I þeim tilvikum að upp komi
alvarlegur smitsjúkdómur í dýrum
á afmörkuðum svæðum er land-
búnaðarráðherra heimilt að skipa
þriggja manna svæðisnefnd sem
verði yfirdýralækni til aðstoðar við
framkvæmd hvers konar varnarað-
gerða og við útrýmingu
sjúkdómsins. Þær aðstæður geta
skapast að yfirdýralækni sé nauð-
syn á að hafa sér til aðstoðar tíma-
bundið hóp manna sem eru stað-
kunnugir og geta verið til aðstoðar
við framkvæmdir sem nauðsynleg-
ar eru til útrýmingar smitsjúk-
dómi.
Lög nr 25/1993 um dýrasjúk-
dóma og varnir gegn þeim fela í sér
breytingu á stjórn dýrasjúkdóma-
varna. Skipan þessara mála er nú
færð til embættis yfirdýralæknis og
er til þess fallin að hafa í för með
sér markvissari og betri samhæf-
Stéttarsamband bænda og
Framleiðsluráð landbúnaðarins
hafa gert samning við Lögmanna-
stofuna að Höfðabakka 9 í Reykja-
vík um að hún veiti stofnununum
og einstökum bændum, sem eftir
þvíleita, lögfræðiaðstoð.
Aðilar að lögmannsstofunni eru
hæstaréttarlögmennirnir Vilhjálm-
ur Árnason, Eiríkur Tómasson,
Ólafur Axelsson, Brynjólfur
Kjartansson og Hreinn Loftsson.
ingu á starfskröftum við sjúkdóma-
varnir en áður fyrr. Auk þess eyk-
ur það hagkvæmni og betri nýtingu
á framlagi ríkissjóðs til þessa mála-
flokks án þess að i nokkru sé slak-
að á kröfum um heilbrigðiseftirlit
og forvarnarstarf í baráttunni við
dýrasjúkdóma.
Samkvæmt samningnum geta
einstakir bændur leitað til lög-
mannsstofunnar um munnlega
ráðgjöf án endurgjalds, en þóknun
fyrir rekstur dómsmála og aðra
lögfræðiráðgjöf, t.d. í formi samn-
ingagerðar eða skriflegra álits-
gerða, verður hins vegar að greiða
samkvæmt reikningi hverju sinni.
Sími lögmannsstofnunnar er 91-
681211 og bréfsími 91-671270.
Lögfrœðiaðstoð fyrir bœndur