Freyr - 15.11.1994, Blaðsíða 16
Alþjóðleg samskipti um
rœktun íslenska hestsins
Kristinn Hugason hrossarœktarráðunautur Búnaðarfélags
íslands
Aðfaraorð
Alþjóðleg samskipti á sviði
ræktunar íslenska hestsins hafa
aukist mjög á allra síðustu árum.
Þennan þátt samskiptanna við
útlönd má formlega rekja til þess
að greinarhöfundur sótti fund
ræktunarfulltrúa FEIF-þjóðanna
í Hollandi þann 9. til 10. mars
1991, auk þess sem í starfi þessu
er staðið á gömlum merg ýmissa
samskipta við unnendur íslenska
hestsins erlendis og þróunin hefur
verið örvuð síðan með marghátt-
uðu starfi íslendinga á erlendri
grund.
Á fyrrnefndri ráðstefnu varð
höfundi Ijóst að bæði þyrfti að
skerpa stefnumótunina innan FEIF
og kynna íslenska ræktunarkerfið
miklu betur þannig að erlendis
gerðu menn sér ljóst forystuhlutverk
okkar Islendinga. I ljósi skilnings-
leysis þáverandi ræktunarfulltrúa
FEIF mat undirritaður það svo að til
lítils væri að við íslendingar tækjum
þátt í dómstörfum á kynbótasýningu
Heimsleikanna 1991 sem fram fóru í
Svíþjóð og gekk það eftir að við
tókum engan þátt í dómstörfum kyn-
bótahrossa þar þó að Búnaðarfélag
íslands stæði að vali þátttökuhrossa
er fram komu fyrir íslands hönd á
leikunum.
Á aðalfundi FEIF að afloknum
leikunum 1991, var Svíinn Mats
Jennerholm kjörinn ræktunarfulltrúi
FEIF og sat hann til ársins 1993.
Þrátt fyrir heilsubrest sem háði
Jennerholm allt kjörtímabilið, og þá
einkum er á leið, færði hann margt
til betri vegar innan samtakanna.
Þegar í upphafi kjörtímabils Jenner-
holms tókst ágætt samstarf grein-
arhöfundar við hann. Á aðalfundi
FEIF í ágúst 1992 var Víkingur
Gunnarsson, ráðunautur kjörinn í
ræktunarráð samtakanna og hefur
832 FREYR • 22'94
Kristinn Hugason, hrossarœktarráðu-
nautur Búnaðarfélags Islands. Ljósm.:
Nœrmynd.
Víkingur unnið að störfum sínum í
ræktunarráðinu í nánu samstarfi við
greinarhöfund og Hrossaræktar-
nefnd Búnaðarfélags íslands en
Landssamband hestamannafélaga
hefur fjármagnað störf hans þar.
Fullyrða má að alger umskipti hafi
orðið í málum þeim sem hér er um
fjallað við útgáfu ritsins Kytthóta-
dómar og sýningar sem er á tveimur
tungumálum; ensku og þýsku, auk
íslensku en efnt var til ráðstefnu í
Danmörku dagana 20. til 22. nóv-
ember 1992, þar sem útgáfan var
kynnt. Ráðstefnu þessa sátu rækt-
unarfulltrúar FEIF-landanna og kyn-
bótadómarar víða að. Á ráðstefnunni
flutti undirritaður framsöguræðu um
íslenska dómkerfið og naut þar
dyggrar aðstoðar Vfkings Gunnars-
sonar.
Á árinu 1993 var starfi því er hér
um ræðir fram haldið og tókum við
íslendingar þá mikinn þátt í dóm-
störfum kynbótahrossa á Heims-
leikunum í Hollandi en greinarhöf-
undur og Víkingur Gunnarsson
veittu þar sinn hvorri dómnefndinni
forystu, þó ekki færu dómarnir fram
samkvæmt íslenskum reglum. Bæði
á samræmingarfundi kynbótadómara
fyrir Heimsleikana og á aðalfundi
FEIF eftir leikana, kom til tölu-
verðra átaka á milli fulltrúa okkar
Islendinga og Þjóðverja. Þjóðverjar,
sem hunsuðu kynningarfundinn í
Danmörku haustið áður, komu lið-
sterkir til Hollands og veittu okkur
þá mótspyrnu er þeir gátu. Telur
greinarhöfundur að reynslan hafi
þegar leitt í ljós að málstaður okkar
Islendinga hafi komist vel til skila í
Hollandi.
Á aðalfundi FEIF, að afloknum
Heimsleikunum. var kjörinn nýr
ræktunarfulltrúi samtakanna. Hol-
lendingurinn Anne Marie Quarles
var kjörin án mótatkvæða og kusum
t.d. bæði við íslendingar og Þjóð-
Mats Jennerholm rœktunarfulltrúi FEIF
1991 til 1993. Mynd tekin á Heims-
leikunum í Hollandi 1993. l.jm.: K.H.