Freyr - 01.12.1995, Blaðsíða 14
Göngur, réttir og
ferðaþjónusta
Eftirfarandi bréf, undirritað af Ólafi R. Dýrmundssyni f.h. Bœndasamtaka íslands,
og Ágústi Sigurðssyni f.h. Félags ferðaþjónustubœnda, var í nóvember sl. sent
fjallskilastjórum og sveitarstjórnarmönnum í dreifbýli. Ástœða þykir til að það
komi fyrir augu sem flestra í dreifbýli og fylgir það því hér á eftir:
Á næsta ári eiga að koma út
markaskrár fyrir allt landið. Fyrir-
hugað er að birta fjallskilasamþykkt
hvers svæðis í viðkomandi marka-
skrá, þannig að þær séu aðgengi-
legar fyrir þá sem þurfa að vinna
eftir þeim. Af þessum sökum er
mjög mikilvægt að fjallskilasam-
þykktirnar verði endurskoðaðar
sem allra fyrst, eftir því sem þörf
krefur, og því breytt sem breyta
þarf.
Undanfarið hefur verið nokkuð
um að göngum og réttum sé
seinkað,, og ákvarðanir þar um
teknar skömmu áður en fyrir-
hugaðar göngur áttu að fara fram.
Seinkunin hefur verið rökstudd með
því að heyskapur á viðkomandi
svæði sé svo skammt á veg kominn
að ekki sé forsvaranlegt annað en að
ljúka honum áður er til fjárrags
komi. Miklar framfarir við fóður-
verkun (rúllubaggatækni o.fl.) gera
þessa röksemd fremur léttvæga.
Frestun á göngum hefur marga
annmarka í för með sér. Fé rennur á
milli gangnasvæða, sláturleyfis-
höfum er gert erfitt fyrir. Þeir
bændur sem stunda vinnu utan
heimilis þurfa að fá frí með
nokkrum fyrirvara, þeir sem þurfa
að fá aukafólk í göngur þurfa og til
þess nokkurn fyrirvara, kjöt af
lambhrútum verður verðfellt eftir
15. okt. 1996 og síðast en ekki síst,
öll ferðaþjónusta í tengslum við
göngur og réttir er gerð nánast
ómöguleg, en ferðaþjónusta er grein
sem þarf helst að hafa allar
dagsetningar á borðinu með árs
fyrirvara.
Af ofangreindum ástæðum
hvetjum við yður til að hraða sem
mest endurskoðun á fjallskila-
reglugerð yðar og senda endur-
skoðað eintak til Bændasamtaka
Islands fyrir áramót.
Greinargerð:
Breyttar forsendur
Ymsar forsendur í sauðfjárrækt
hafa breyst talsvert undanfarið.
Nefna má að verið er að undirbúa
átak í markaðssetningu á lamba-
kjöti. Einn þáttur í því átaki verður
að lengja sláturtíð svo sem frekast
er kostur, þannig að neytendum
bjóðist ferskt lambakjöt mun lengur
en nú er. Þetta þýðir að slátrun mun
hefjast mun fyrr en verið hefur og
hún mun einnig standa lengur.
Verðfelling
Á árinu 1996 verður kjöt af
hrútlömbum fellt verulega í verði
eftir 15. október, og samkvæmt
upplýsingum frá Yfirkjötmati
ríkisins er stefnt að því í náinni
framtíð að þessi verðfelling verðl
enn fyrr, jafnvel 10. október.
Vinna utan bús
Nýgerður samningur um fram-
leiðslu á sauðfjárafurðum gerir ráð
fyrir frekari samdrætti í framleiðslu
á dilkakjöti. Þetta þýðir í raun að
sauðfjárhændur verða í auknum
mæli að sækja tekjur sínar út fyrir
greinina. Vaxandi hópur sauðfjár-
bænda mun því stunda vinnu utan
bús í framtíðinni. Þegar að göngum
og réttum kemur þurfa þessir menn
því að fá sig lausa úr vinnu sinni, og
til þess þarf nokkum fyrirvara.
Samfara fækkun fólks í sveitum
eykst þátttaka fólks utan bænda-
stéttarinnar í gangna- og réttar-
stöfum. Þetta fólk þarf einnig að fá
frí úr vinnu sinni með nokkrum
fyrirvara. Þátttaka þeirra, sem utan
bændastéttarinnar starfa, í daglegri
Frá Kirkjuskarðsrétt í Laxárdal, A-Hún. Stóðið bíður þess að verða rekið út í
Skrapatungurétt. (Ljósm. Ágúst Sigurðsson).
486 FREYR - 12 '95