Freyr - 01.12.1995, Side 22
Þann dag taka B.I. og við innheimtu
á öllum útistandandi kröfum vegna
útgefinna upprunavottorða eða
vangoldinna sjóðagjalda. Frá því
samkomulag þetta tekur gildi þann
15. janúar og þar til að ný lög um
útflutning hrossa taka gildi þann
15. apríl mun Félag hrossabœnda
fá í sinn hlut 75% skerf af gjaldi því
sem greitt er fyrir uppruna-
vottorðin, sömu reglur um skiptingu
gilda á því sem innheimtist af
gjöldum fyrir upprunavottorð sem
gefin eru út fyrir 15. janúar 1995.
Jafnframt hefur orðið samkomulag
á milli Sameinaðra bœndasamtaka
og Félags hrossabœnda að Hallveig
Fróðadóttir staifsmaður Félags
hrossabœnda verði starfsmaður
Sameinaðra bœndasamtaka frá og
með 15. janúar 1995. “
2.2. Lokaskýrsla Stoð-endur-
skoðunar hf.
Skýrslan barst stjóm B.í. 18.
september og 20. september álykt-
aði stjórn B.I. samhljóða eftirfar-
andi á stjómarfundi:
„Stoð-Endurskoðun hf, hefur
skilað Bcendasamtökum Islands
lokaskýrslu um endurskoðun á
Stofnverndarsjóði íslenska hesta-
kynsins, sjóðagjöldum og útgáfu
upprunavottorða, sem Félag
hrossabœnda hafði á liendi frá 3.
mars 1988 til 15. janúar 1995.
1 áfangaskýrslu frá 10. mars 1995
kom m.a.fram, að innheimta Félags
hrossabœnda á sjóðagjöldum hefði
brugðist, að þeirsem höfðuframselt
innheimtuna til Félags hrossa-
bœnda hefðu ekki rœkt eftir-
litsskyldu sína, að óvissa vœri um
innheimtumöguleika útistandandi
sjóðagjalda og að skýringar lœgju
ekkifyrir á ósamrœmi í gögnum um
útflutning og fleiri atriði. í
skýrslunni kom einnig fram að
útreikningar sjóðagjalda 1994,
hvort sem þau voru greidd eða
ógreidd, hefðu verið sannreyndir og
reyndust þeir réttir.
Við frekari skoðun gagna frá
Félagi hrossabœnda komu fram
fullnœgjandi skýringar á meintu
misrœmi í bókhaldi varðandi skil
félagsins á innheimtum sjóða-
gjöldum. Jafnframt kemur fram, að
Félag hrossabœnda greiddi skuld
sína við eigendur sjóðagjalda, kr.
Tafla 1. Útfluttir hestar árin
1993 og 1994.
1993 1994
Þýskaland 1321 1273
Svíþjóð 507 441
Danmörk 282 219
Noregur 237 222
Holland 79 42
Austurríki 66 59
England 48 27
USA 88 17
Sviss 55 22
Finnland 25 26
Skotland 10 0
Kanada 5 0
Frakkland 18 14
Ítalía 3 10
Belgía 7 37
Slóvenía 1 0
Færeyjar 0 9
írland 0 2
Lúxemburg 0 2
Litháen 0 63
Alls 2752 2485
1.586.255, þann 15. janúar 1995
eða um leið og það skilaði af sér
innheimtunni.
Þá voru útistandandi kröfur á
útflytjendur hrossa samtals kr.
10.117.736. Síðan hafa innheimst
kr. 4.058.000 og ógreiddar eflir-
stöðvar þann 12. september sl. voru
kr. 6.059.736.
Fyrir liggur tillaga um afskrift
krafiia að upphœð kr. 450.000,
vegna gjaldþrota einstaklinga og
vegna beiðni um niðurfellingu. Þá
standa eftir u.þ.b. kr. 5.610.000, þar
af eru kr. 4.371.000 eða 78% hjá
þremur stœrstu skuldurunum, og
gildar tryggingar taldar vera fyrir
stœrstum hluta (87%) þeirra
skulda.
Stjórn Bœndasamtaka Islands
telur, að með skýrslu þessari sé
lokið athugun þeirri sem óskað var
á málefnum Stofnverndarsjóðs
íslenska hestakynsins og innheimtu
sjóðagjalda Irjá Félagi hrossa-
bænda. Samtökin hafa tekið að sér
og munu lialda áfram innheimtu
útistandandi krafna. “
2.3. Lokauppgjör F.hrb. við B.I.
vegna sjóðagjaldainnheimtu.
26. október var síðan gengið frá
endanlegu lokauppgjöri við B.I.
vegna yfirtöku samtakanna á inn-
heimtu útistandani krafna vegna
vottorða- og sjóðagjalda.
Þar með er lokið umsjón F.hrb.
með útflutningi á 10.281 hrossi með
innheimtu a 72.493.563 milljónum,
þar af 33.403,867 milljónum til
Stofnvemdarsjóðs B.I, frá verðlags-
árinu 1987/1988 til 15. janúar 1995.
III. Reiðhrossaverslunin
3.1. Útflutt hross verðlagsárið
1994/1995.
Á verðlagsárinu 1994/1995 voru
flutt út 2675 (2692) hross. Helstu
útflytjendur voru: Gunnar Arnar-
son: 601, Hinrik Bragason: 440,
Edda-hestar: 377, V.T. hf & Jón
Friðriksson: 209 og Sigurbjörn
Bárðarson: 176.
í lok september 1995 höfðu verið
flutt út um 1977 (2058) hross á
þessu ári. Sjá töflu 1.
3.2. Lög nr. 161/31.des. 1994 og
reglugerð nr. 220/10. apríl 1995
um útflutning hrossa.
Lögin tóku gildi 15. apríl 1995
með verulegum breytingum frá
eldri lögum, m.a. í lækkun
útflutningsgjalda. Nú er aðeins ein
gjaldtaka, kr. 8.000 á útflutt hross,
en þeirri gjaldtöku er ætlað að
standa undir kostnaði við skoðun á
útflutningshrossum, útgáfu upp-
runavottorða, 5% af gjaldinu skal
greiða í Stofnvemdarsjóð Islenska
hestakynsins, sem starfar sam-
kvæmt 15. gr. laga nr. 84/1989 um
búfjárrækt og 15% af gjaldinu skal
greiða í Búnaðarmálasjóð. Eftir-
stöðvum hvers árs skal varið til
útflutnings- og markaðsmála, að
fengnum tillögum útflutnings- og
markaðsnefndar.
Samkvæmt 6. gr. laganna starfar 5
manna útflutnings- og mark-
aðsnefnd en í henni eru: Sveinbjörn
Eyjólfsson, tilnefndur af ráðherra,
Bergur Pálsson, tilnefndur af F.hrb.,
Kristinn Hugason, tilnefndur af
B.Í., Brynjólfur Sandholt yfir-
dýralæknir og Ema Amardóttir,
tilnefnd af hrossaútflytjendum.
Hlutverk nefndarinnar er að vera
ráðgefandi um málefni er snerta
útflutning á hrossum og að gera
tillögur um ráðstöfun á eftir-
stöðvum útflutningsgjalds.
494 FREYR - 12 '95