Freyr - 01.12.1995, Blaðsíða 27
RITFRCGN
Niðurstöður búreikninga 1994
Árleg skýrsla Hagþjónustu land-
búnaðarins um niðurstöður búreikn-
inga er komin út. Um er að ræða
uppgjör ársins 1994 í hefðbundnum
búgreinum, (þ.e. í sauðfjár- og
nautgriparækt), auk yfirlits yftr
afkomu loðdýrabúa, svínabúa,
ferðaþjónustubúa, blandaðs rekst-
urs og búgreina, sem ekki eru
búgreinatengdar, en hafa sjálf-
stæðan efnahags- og rekstrarreikn-
ing. Hér á eftir er eingöngu fjallað
um afkomuna í hefðbundnum
búgreinum.
Helstu niðurstöður eru þæ, að
afkoma búreikningsbúa reyndist að
meðaltali vera 3,14% lakari á árinu
1994 en á árinu 1993. Á kúabúum
reyndist afkoman að meðaltali
6,75% lakari, á sauðfjárbúum að
meðaltali 15,1% betri (sjá nánar
skýringar á afkomu sauðfjárræktar-
innar aftar í umfjöllun þessari) og á
blönduðum búum að meðaltali
1,4% lakari. Á öllum gerðum búa
drógust búgreinatekjur saman og
aðeins á sauðfjárbúum tókst að auka
tekjur utan bús og var sú hækkun
um 5% að raungildi. Framlegð jókst
um 1% á blönduðum búum, stóð í
stað á sauðfjárbúum en dróst saman
um 0,3% á kúabúum. Búunum tókst
almennt að draga úr tilkostnaði á
árinu 1994 og munar þar mestu um
sauðfjárbúum féll hann t.d. um
rúmlega 1/3 hluta, eða úr 7,3% í
4,8% (sem hlutfall af heildar-
tekjum).
Samanburður á afkomu eftir
landshlutum birtist nú í fyrsta sinn
sem sérstakur þáttur í úrvinnslu
stofnunarinnar á búreikningum.
Niðurstöður ársins 1994 sýna að
best afkoma á kúabúum var hjá
kúabændum í Eyjafjarðarsýslu, en
þar var hagnaður fyrir laun eigenda
að meðaltali kr. 1.668.000 á bú.
Samsvarandi upplýsingar fyrir !
sauðfjárbændur sýna að best
afkoma var á Austurlandi, eða að
meðaltali kr. 943.000 á bú. Á
blönduðum búum reyndist afkoman
einnig best á Austurlandi, eða að
meðaltali kr. 1.543.000 á bú.
Afkoman í rekstri kúabúa
Afkoma kúabúa1 á landinu
reyndist að meðaltali 6,75% lakari á
árinu 1994 samanborið við 1993.
Samanburður á afkomu sömu
kúabúa á milli ára (fært upp til
verðlags) leiðir í ljós, að framlegð
dróst saman um 0,3% og bæði
búgreinatekjur og aðrar tekjur hafa
minnkað, þær fyrrnefndu um 2,7%
og þær síðarnefndu um 9,1%. í
annan stað hafa fjármagnsliðir
lækkað úr því að vera 5,9% (sem
hlutfall af heildartekjum) í 5%.
Lækkunin nemur 15,2%.
Afkoman í rekstri sauð-
fjárbúa
Afkoma sauðfjárbúa2 á landinu
reyndist að meðaltali 15,1% betri á
árinu 1994 samanborið við árið
1993. (Þessa jákvæðu afkomu ber
þó að meta í ljósi 48,2% tekjuhruns
sem varð á árinu 1993 samanborið
við árið 1992, m.a. vegna niður-
færslu á greiðslumarki). Saman-
burður á afkomu sömu sauðfjárbúa
á milli ára (fært upp til verðlags)
leiðir í ljós, að framlegð stendur í
stað og að samhliða samdrætti í
búgreinatekjum um 3,75% hefur
nokkuð tekist að lækka tilkostnað
við rekstur. Hér má nefna að fastur
kostnaður lækkar um 6,2%, hálf-
fastur kostnaður um 5,9% og
breytilegur kostnaður um 4,7%.
1) Um er að ræða kúabú sem hafa að
lágmarki 70% heildarbúgreinatekna af
nautgripaafurðum. Fjöldi mjólkurkúa er
að meðaltali 25,7 á búi og fjöldi
vetrarfóðraðra kinda er að meðaltali 35.
2) Um er að ræða sauðfjárbú sem hafa að
lágmarki 70% heildarbúgreinatekna af
sauðfjárafurðum. Fjöldi vetrarfóðraðra
kinda er að meðaltali 281 á búi og fjöldi
mjólkurkúa er að meðaltali 0,4.
leikinn sem Halldór átti, jafnframt
hlýjunni, átti sinn þátt í því hvernig
fór. í sigri Halldórs bjó ósigur hans.
Þegar gleði Svövu hvarf, hvarf
einnig gleði Halldórs, hlýjan mátti
sín þá einskis og stutt varð til
endalokanna.
Þennan harmræna þátt í lífi
Halldórs á Hvanneyri á hann með
miklum fjölda manna og kvenna um
aldir. Þorsteinn Erlingsson skáld
túlkar þetta í kunnri vísu:
Meinleg örlög margan hrjá
mann og ræna dögum.
Sá er löngum endir á
Islendinga sögum.
Saga Halldórs á Hvanneyri er vel
sögð, hún er fram borin með fullum
trúnaði við Halldór jafnt og les-
endur. Myndefni eykur mjög gildi
hennar og allar skrár sem fylgja
henni sýna að hvergi hefur verið
gefið eftir í vönduðum vinnu-
brögðum.
Hafi Bjami heila þökk fyrir
listilega vel skrifaða bók.
Utgefandi bókarinnar er Bænda-
skólinn á Hvanneyri, sem jafnframt
hefur hana á boðstólum. Bókin
kostar kr. 3.980 og er sendingar-
kostnaður innifalinn. Sími Bænda-
skólans er 437 0000.
M.E.
12 '95 - FREYR 499