Freyr - 01.08.1998, Blaðsíða 6
Sem beturfer
er ísland eyja
Viðtal við Jarle Reiersen, dýralækni
alifuglasjúkdóma á Keldum
Jarle Reiersen er dýralæknir ali-
fuglasjúkdóma og hefur aðstetur
á Tilraunastöð Háskólans á Keldum.
Hann hefur sinnt þessu starfi sl. 5 ár
en kom þá beint frá Noregi. Jarle er
Norðmaður en segist ekkert vera á
förum frá Islandi í bráð. Hér er gott
að vera og nóg að gera.
Hann er búfræðingur og dýra-
læknir en hefur ekki sérstaklega sér-
hæft sig í alifuglasjúkdómum enda
er starfssvið hans á Keldum mun
viðameira en lækningar eingöngu.
Þar koma m.a. inn leiðbeiningar um
rekstur búanna.
Hvað ert þú menntaður?
Ég útskrifaðist sem dýralæknir árið
1986 og var fyrst eitt ár við rann-
sóknir en stundaði síðan almennar
dýralækningar þangað til ég kom
hingað til lands. Ég er ekki sérhæfð-
ur í sjúkdómum alifugla en þetta
kemur með reynslunni og alltaf er
að koma ný þekking sem maður þarf
að tileinka sér. Ég er búfræðingur
frá norskum bændaskóla og það
kom mér á óvart hve þetta tveggja
ára nám hefur gagnast mér vel í nú-
verandi starfi. Þar var talsvert fjallað
um alifuglarækt en ekki er síður
mikilvægt að skilja hugsunarhátt
bænda og einnig hefur hagfræðin
nýst mér vel. Það verður alltaf að
vega og meta hvort einhverjar dýra-
læknaaðgerðir borgi sig eða hvort
það sé einfaldlega hagkvæmara að
lifa með vandamálinu.
Hvernig var staðan í alifugla-
ræktinni hér á Iandi þegar þú
komst og hvað hefur breyst?
Það sem skemmtilegast er að tala
um er hve gífurlega miklar breyting-
ar hafa orðið í kjúklingaræktinni.
Það sem hefur áunnist á síðustu ár-
um er miklu meiri vaxtarhraði, færri
sjúkdómar, stærri bú, betri stjómun
og að þau skila mun meiri afköstum
en áður. Salmonellasýkingar eru nú-
orðið mjög sjaldgæfar. Arið 1993
vom 15% allra eldishópa í kjúk-
lingaframleiðslu sýktir af salmon-
ellu en engin salmonella hefur
greinst í eldishópum síðan í febrúar
1997.
Uppeldistíminn hefur styst mikið.
Þá var kjúklingum slátrað 7-8 vikna
gömlum til þess að ná sömu þyngd
og næst núna á 5 til 5 1/2 viku. Fram-
6 - Freyr 1 0/98