Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1998, Blaðsíða 38

Freyr - 01.08.1998, Blaðsíða 38
Umhverfisvernd herðir að bandarískri svínarækt Bandarískir svínabændur eru næstum engum takmörkunum háðir þegar þeir ákveða að stofna nýtt svínabú eða stækka það sem fyrir er. En blikur eru á lofti. Olykt og mengun á náttúrunni frá svínabúum er eldfimt umræðuefni í Bandaríkjunum og atvik sem gerðist í Illinois-ríki í júní sl. jók enn á umræðuna. Svínaskítsflóð Þar gerðist það að þró með 380 þús- und lítrum af svínaskít sprakk og svínaskíturinn braust niður gil, gegnum gististað og út í á sem gest- imir og fleiri notuðu til að sigla róðrarbátum á. Landbúnaðarráðuneytið í Illinois sendi hlutaðeigendum, sem ábyrgð báru á þessu, bréf, en engar bætur þurfti að greiða vegna þessa, að sögn blaðsins Feedstuffs. Vöxturinn í bandarískri svína- rækt er gífurlegur um þessar mundir og framundir þetta hafa hin fjöl- mörgu risasvínabú, sem einkum er að finna í Miðvesturríkjunum, ekki valdið teljandi áhyggjum vegna lyktarmengunar eða skaða á um- hverfinu. En óhapp það sem gerðist í Illi- nois, og fleiri sambærileg sem hafa orðið, og vaxandi kvartanir frá ná- grönnum vegna svínabúa í nágrenn- inu og áætlana um stofnun fleiri, hafa vakið athygli yfirvalda. í samtökum landbúnaðarins eru menn að sjálfsögðu afar uppteknir af þessu vandamáli. Og þetta er að- eins upphafið, segir R. Douglas Svínabú íBandaríkjunum, til hœgri erþrójyrir svínaskítinn. Verði settarþar strangari reglur um vernd umhvetýis í Banda- ríkjunum mun það verða til þess að jafna aðstöðu svínabœnda sem selja afurðir sínar á heimsmarkaði. 38 - Freyr 1 0/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.