Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2000, Page 4

Freyr - 01.04.2000, Page 4
Freyr í heimsókn í metframleiðslubúinu Baldursheimi í Mývatnssveit: Mikilvœgt að geta byggt á góðu þurrheyi - segja Gunnar Þór Brynjarsson og Þuríöur Pétursdóttir / síðasta ári náði félagsbúið að Baldursheimi I í Mý- vatnssveit, fyrst mjólkur- búa á Islandi, þeim árangri að skila yfir 7000 lítra ársframleiðslu af mjólk eftir hvem grip að meðaltali. Alls eru 16 mjólkandi kýr á Bald- ursheimi og segja ábúendumir að margir samverkandi þættir búi að baki þessum árangri í framleiðslunni en fyrst og fremst sé því að þakka að mjólkurbúið er ekki stórt og þar af leiðandi auð- veldara að fylgjast náið með hverj- um og einum grip. Freyr lagði leið sína í Mývatnssveitina og forvitn- aðist um lykilinn að baki árang- ursrfkri mjólkurframleiðslu. A Baldursheimi I er rekið félags- bú sem er í eigu Þórunnar Einars- dóttur og tveggja barna hennar, Þuríðar Pétursdóttur og Böðvars Péturssonar. Jörðinni er skipt upp í Baldursheim I og II og er búskapur blandaður en á Baldursheinti II býr Eyþór Pétursson, bróðir þeirra Þur- íðar og Böðvars. Á Baldursheimi I er fjós fyrir 16 Hjónin Þuríður Pétursdóttir og Gunnar Þór Brynjarsson í Baldursheimi. (Ljósmyndir: Jóhann Ól. Halldórsson). mjólkandi kýr og geldneytaaðstaða. Fjósið var byggt árið 1964 og við það byggð geldneytaaðstaða árið 1979. í heild eru síðan um 300 fjár í Baldursheimi en greiðslumark jarðarinnar í sauðfé er um það bil 4.600 kg og 96.000 lítrar í mjólk. Verkefnaskipting er þannig að Böðvar og fjölskylda hans annast sauðfjárframleiðsluna en Þuríður, eiginmaður hennar Gunnar þór Brynjarsson, og böm þeirra annast mjólkurframleiðsluna. Bæjarnafnið sótt í goðafræðina Baldursheimur er landnámsjörð og nafnið er sótt í norrænu goða- fræðina og dregið af „Baldri hinum góða“. Til gamans má þess geta að árið 1860 fannst gröf í Baldurs- heimi þar sem heygður var fom- maður með vopnum sínum og hesti og er muni úr gröfinni að finna í Þjóðminjasafni Islands. Sama ættin hefur búið á Baldursheimi í tæplega 200 ár, eða allt frá því að Illugi Hallgrímsson hóf þar búskap árið 1815. Árið 1951 var stofnað nýbýlið Þórólfshvoll á hálfum Baldurs- heimi af Sigurði Þórólfssyni en sökum vanheilsu hóf hann aldrei búskap á jörðinni heldur seldi hana frændum sínum, Baldursheims- bræðrum, árið 1960. Baldursheimsjörðin er landmikil, eða um 3300 hektarar að stærð. Ræktuð tún eru 76 hektarar en til viðbótar leigja ábúendur eyðijarð- imar Heiði og Bjamastaði, sem era 4 - FREYR 3/2000

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.