Freyr - 15.12.2000, Page 12
hross sem aldrei hafa verið snert
áður.
Tryppið er þessu næst teymt út í
hringgerðið, því er strokið þétt-
ingsfast um ennið og gjarnan yfir
efri tanngarðinn þar til maður sér
að það slakar á, en undir húðinni á
enninu eru næmar taugar sem
hafa róandi áhrif á hrossið þegar
þar er strokið. Að þessu loknu
losarðu tauminn úr múlnum og
flytur þig aftur fyrir það og hvetur
það til að hlaupa hringinn með því
að sveifla písk í áttina til þess eða
aftan við það, án þess þó að slá
það. Síðan heldurðu tryppinu á
ferð allmarga hringi til hvorrar
handar þar til það byrjar að gefa
merki um að það vilji hætta og
koma til samstarfs. Þessi merki
eru mjög skýr þegar þú hefir áttað
þig á þeim. Þá stoppar þú, leggur
frá þér pískinn og reynir að
nálgast það. Þú getur strokið og
náð svo til öllum tryppum í fyrstu
atrennu en aðeins um helmingur
þeirra vill elta þig þá.
Þetta er síðan endurtekið næsta
dag, að því búnu er skoðað upp í
tryppið, tennur raspaðar og það
beislað og látið éta með beisli í
nokkra tíma. Því næst er það leitt út
í gerðið, lagður á það hnakkur og
því sleppt þar með tauminn uppi.
Best er að hvetja það og láta það
hlaupa í hringnum þar til það fer að
gefa merki um að það vilji samstarf
og hætta. Þá er það tilbúið fyrir
knapann
Sum tryppi fælast og hrekkja
hnakkinn nokkra stund, en flest ró-
ast mjög fljótt og hrekkja þá ekki
knapann þegar hann er kominn á
bak, nema ef hann tekur í tauminn.
Knapi á að nota sem minnst taum-
hald í byrjun en síðan er tryppinu
kennt á tauminn með aðstoð tamn-
ingarpísksins og kennarans eða að-
stoðarmanns.
Nú á tryppið að hafa sætt sig við
beisli, hnakk og knapa án þess að
verða hrætt eða spennt og vill held-
ur vera hjá þér og leita hjálpar en
fælast og flýja. Næstum öll tryppi
elta þig eftir að þau hafa hlaupið
með hnakkinn og öll eftir að þú
heftr riðið nokkra hringi
Hvernig voru hross frumtamin
áður?
Þetta hefur verið mjög misjafnt
og aðferðir næstum jafn margar og
tamningamennimir og það eru til
margar góðar aðferðir og engin ein
sú besta. Sumir hafa notað svipaða
aðferð og þetta og þá stundum óað-
vitandi, aðrir hafa beitt meiri hörku
og jafnvel kúgað hestana til hlýðni.
Rauði þráðurinn í aðferðinni
„AF FRJÁLSUM VILJA“ er að
tamningamaðurinn beitir aldrei
hörku eða kúgar hestinn, en bíður
eftir að hann svari honum og komi
til móts við hann af frjálsum vilja.
Hvað gerist svo eftir þessa
þriggja daga frumtamningu ?
Á þessum námskeiðum er ekki
annað gert en að búa hestinn undir
tamningu og gera hann reiðfæran.
Síðan hefst hin raunverulega tamn-
ing og þjálfun. Eftir þessa þrjá
daga er unnt að teyma hestinn hvert
sem er, t.d. upp á kerru, hann á að
hlýða taumi, það er líka unnt að
ríða honum í gerði eða hvar sem er
og í stað þess að rífa sig lausan og
flýja, ef hann verður hræddur, þá
leitar hann til manns og biður um
hjálp, þ.e. hann fer að treysta
manninum.
Síðan, þegar hann kemur heim af
námskeiðinu, þá heldur eigandinn
áfram að temja hestinn í rólegheit-
um á venjulegan hátt, með útreið-
um og þjálfun á gangtegundum, en
þó er mikilsvert að haldið sé áfram
í sama dúr, með því að fá hestinn
alltaf til að vinna með sér. Hestar
tamdir þannig verða rniklu traust-
ari og rólegri, lausir við fælni,
viðkvæmni og styggð, en ekkert
síður viljugir.
Hve langan tíma tekur það að
temja hest?
Það er ákaflega misjafnt og fer
eftir tamningamanninum, gerð
hestsins og því hver ætlar að kaupa
hestinn eða nota hann. Aðalatriðið
er að hesturinn sé það mikil taminn
að hann henti væntanlegum not-
anda.
Ég hef oft verið spurður að því
hvað sé góður hestur? Svar mitt er
það að góður hestur er sá hestur
sem hentar eigandanum. Ovanur
maður hefur ekkert að gera við ör-
geðja fjörhest o.s.frv.
Er hœgt að venja hesta afþví að
hrekkja og vera slœgir?
Já, það er hægt að venja þá af því
að slá ef byrjað er rétt, en það er
mjög auðvelt að kenna hestum að
verða slægir. Eðli hestsins er að
flýja og veita ekki viðnám. Þegar
ótaminn hestur er tekinn og bund-
inn á bás þá getur hann ekki flúið
og fer að verja sig, ýmist með kjafti
eða fótum. Ef hann er þá barinn á
móti, þá svarar hann og herðist að-
eins upp. Það er mjög algengt að
tryppi í byrjun tamningar sýni þér
rassinn og jafnvel slái en það má
venja þau af þessu mjög fljótt ef
rétt er að staðið. Það er hins vegar
auðveldara að fyrirbyggja en að
venja af hrekkjum og slægni eftir
að hestamir eru komnir upp á slíkt.
Allir hestamenn vilja eiga góðan
hest eða hesta. Til þess þarf femt:
í fyrsta lagi þarf gott upplag og því
verður ekki breytt eftir að hryssan
hefur fest fang. í öðru lagi þarf að
ala hestinn þannig upp að þetta
upplag nýtist. I þriðja lagi þarf
hann góða tamningu, og að lokum
þarf að hugsa um hann og þjálfa
þannig að hann endist. Það er nú
einu sinni þannig að miklu auð-
veldara er að eignast góðan hest en
eiga góðan hest.
Þú átt marga hesta og ríður
mikið út ennþá ?
Já og hef stundum verið gagn-
rýndur fyrir að ríða mínum hestum
hratt og illa, en það er ekki rétt. Ég
ríð að vísu stundum greitt en ekki
nema hestamir séu í góðri þjálfun
og þoli það vel og allir mínir reið-
hestar hafa enst vel, og fram yfir
tvítugt, það tel ég besta mælikvarð-
ann. M.E.
12 - FREYR 13-14/2000