Freyr - 15.12.2000, Page 39
Skýrsluhaldið
í hrossarækt 2000
Þátttaka og umfang
Nú við aldamót eru 127.441 ís-
lensk fædd hross skráð í World-
Feng sem er hin netvædda upp-
runaættbók íslenska hestsins. A
næstu árum mun þessi fjöldi aukast
mikið þegar öll íslensk hross í ver-
öldinni koma til með að eiga sér
þar samastað. Fjöldi hrossarækt-
enda sem taka þátt í skýrsluhaldinu
er 2207 en síðan standa mun fleiri
einstaklingar þar á bakvið eða alls
4359 manns. Arlega fá allir þessir
hrossaræktendur sendar útskriftir
yfir hrossaeign sína. A árinu 1999
voru samtals 12.254 fangfærslur
skráðar, 4175 folöld bættust við
(sjá 1. töflu) , 607 hryssur voru
skráðar geldar frá stóðhesti og 103
höfðu misst fang. Þess ber þó að
geta að mismunandi er staðið að
skráningum á fangi ef ekkert folald
fæðist. Örmerkingar færast sífellt í
vöxt og nú eru 8071 örmerki skráð
í gagnabankann. Til samanburðar
eru frostmerkt hross 15.279 frá
upphafi skráninga. A árinu bættust
við gagnasafnið 1771 kynbóta-
dómur sem er mikil aukning frá því
á síðasta ári þegar þeir voru ein-
ungis 1154. Árið 1999 voru flutt úr
landi 1955 hross en árið 2000 urðu
þau alls 1898.
WorldFengur
Allnokkur seinkun varð á út-
sendingu skráningargagna í
skýrsluhaldi hrossaræktarinnar fyr-
ir árið 2000. Ástæðan var sú mikla
bylting sem nú eru í gagnamálum
hrossaræktarinnar þar sem verið er
að taka í notkun nýtt alþjóðlegt
skráningarkerfi fyrir íslensk hross
auk gæða-skýrsluhalds. Allt þetta
ár stóð yfir forritunarvinna við að
skapa hið nýja umhverfi en einnig
gríðarleg vinna við að færa öll
gögn úr mörgum áttum úr gamla
eftir
Ágúst
Sigurðsson,
Guðlaugu
Hreinsdóttur,
og
Hallveigu
Fróðadóttur,
Bænda-
samstökum
íslands
umhverfinu yfir í hina netvæddu
upprunaættbók íslenska hestsins -
WorldFeng. Eins og búast má við
þegar ráðist er í slík verkefni stand-
ast tímaáætlanir ekki alltaf og það
varð raunin hér. Á næstu misserum
munu hrossaræktendur hins vegar
verða áþreifanlega varir við þá
byltingu sem hér er á ferðinni sem
m.a. þýðir að sérhver þátttakandi í
skýrsluhaldinu hefur þann mögu-
leika að geta alfarið séð um viðhald
sinna hrossaræktargagna að heim-
an, með aðstoð netsins. Utfylling
og póstsending útfylltra eyðublaða
mun því heyra fortíðinni til hjá
mörgum en auðvitað verður sú leið
samt sem áður möguleg áfram.
Ekki verður fjallað nánar um
WorldFeng hér en vísað til greinar
Jóns Baldurs Lorange hér á öðrum
stað í blaðinu.
Gæðastýring í hrossa-
rækt - skýrsluhald
Tilgangurinn með skýrsluhaldi í
hrossarækt er fyrst og fremst að að-
stoða hrossaræktendur við að halda
á tryggan hátt utan um allar mikil-
vægar upplýsingar um einstök hross
í þeirra eigu og mynda á þann hátt
gagnagrunn sem unnt er að vinna úr
frekari upplýsingar sem síðan nýtast
hverjum og einum við rækt-
unarstarfið. Vel unnið skýrsluhald
verður stöðugt mikilvægara þar sem
kröfur um sönnun á réttmæti
upplýsinga verða sífellt háværari
meðal kaupenda íslenska hestsins.
1. tafla. Fjöldi skráðra folalda í WorldFeng eftir
svæðum (fæðingarár 1999)
Búnaðarsamband Skráð
(svæði) folöld af heild A-vottað % A-vottað
Suðurlands (25,80-88) 1704 41% 351 21%
Vesturlands (35-38,45) 633 15% 150 24%
Strandamanna (49) 27 1% 3 11%
V.-Hún. (55) 318 8% 89 28%
A.-Hún. (56) 269 6% 69 26%
Skagf. (57,58) 697 17% 118 17%
Eyjafj. (65) 215 5% 50 23%
Þing. (66-67) 97 2% 26 27%
Austurlands (75-76) 147 4% 50 34%
A.-Skaft. (77) 68 2% 39 57%
Allt landið 4175 100% 945 23%
FREYR 13-14/2000 - 39