Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2000, Side 40

Freyr - 15.12.2000, Side 40
Tilkynning 777 þátttakenda í gæða-skýrsluhaldi í hrossarækt Eins og flestum ætti að vera kunnugt er verið að koma á fót gæðavottun á öryggi ættar og uppruna í skýrsluhaldinu til að koma til móts við þessar kröfur og auðvitað þeim sem hrossarækt stunda til hagsbóta. Folöld sem fæddust á árinu 1999 voru fyrstu gripimir sem komu til skráningar í þessu nýja kerfi og er fróðlegt að glugga í 1. töflu þar sem kemur fram hversu stór hluti náði A- vottun. Það er tæplega fjórðungur skráðra folalda sem nær þessu stigi þetta fyrsta ár og verður það að teljast bærilegur árangur. Skýrsluhald með gæðavottun eða gæðaskýrsluhald er í sjálfu sér ekki flókið fyrirbæri en það felst í því að þrenns konar skýrslur eru fylltar út og sendar inn til skráningar hjá hrossaræktardeild Bændasamtak- anna í ákveðinni röð og fyrir ákveðinn tíma. Það er rétt að rifja upp aðalatriðin í þessu ferli: 1. Stóðhestaskýrslur/fangvottorð: Fyrsta stigið af þremur í gæða- vottuninni er skýrsla sem um- sjónarmanni stóðhests er falið að fylla út en þar koma fram allar þær hryssur sem hjá hestin- um voru það tímabil sem um ræðir og upplýsingar um ef hryssurnar voru sónaðar og nið- urstaða þeirrar skoðunar. Hryssueigandi getur einnig farið þá leið til að tryggja sig að fylla sjálfur út sínar hryssur á sérstök Gögn til skýrsluhalds vegna árs- ins 2000 eiga að vera komin til allra þátttakenda. Vegna óviðráðanlegra tafa á útsendingu gagna er skila- frestur á öllum skýrslum er varða fangvottorð og fá síðan staðfest- ingu umsjónarmanns stóðhests. Stóðhestaskýrslur og fangvott- orð er hægt að nálgast hjá bún- aðarsamböndum eða BÍ. í fram- tíðinni verður hægt að prenta slík vottorð (eyðublöð), hálfút- fyllt, beint úr WorldFeng. 2 Fang- og folaldaskýrsla: Annað stig er síðan útfylling á s.k. fang- og folaldaskýrslu. Þessa skýrslu kannast auðvitað allir við sem hafa tekið þátt í skýrslu- haldinu, en hér er um að ræða þá hálfútfylltu skýrslu sem berst á haustin þar sem listaðar eru allar hryssur búsins. Þessi skýrsla er útfyllt að hluta til, þ.e. fram kemur númer, nafn og litur hryssu og númer og nafn stóð- hests sem hryssan var leidd til (sbr. fangvottorð síðasta árs). Hér þarf að fylla inn hvort hryssa hefur kastað, hvors kyns folaldið er, litur þess og ein- staklingsnúmer þess auk afdrifa sé það ekki sett á til lífs. gæða-skýrsluhald fyrir árið 2000 til 1. mars 2001. Munið að staðfesta með undirskrift og dagsetningu á öll blöð sem þið sendið inn til skráningar. 3. Vottorð um einstaklingsmerk- ingu: Lokastigið er síðan ein- staklingsmerking folaldsins (frostmerking eða örmerking) og útfylling á vottorði um ein- staklingsmerkingu. Þegar um er að ræða folald í gæðavottuðu skýrsluhaldi þá þarf einungis að skrá fæðingarnúmer, nafn og uppruna auk frost- og/eða ör- merki á vottorðið. Folöldin skal merkja þegar við móðurhlið en menn hafa tíma fram í febrúar árið eftir að folaldið fæðist til þess að merkja það og skila inn skýrslunni. Ef að þessi þrjú þrep eru í lagi þá gefur hrossaræktardeild Bænda- samtakanna út sérstakt skráningar- vottorð (e.k fæðingarvottorð eða nafnskírteini) fyrir viðkomandi fol- ald sem fylgir því síðan alla ævi. Ef upplýsingar um ætternisfærslur hrossa berast ekki eftir þeim farvegi sem rakinn er hér áður er eina leið- in til þess að fá vottun að sanna ætt- ernið með DNA ættemisgreiningu. Altalað á kaffistofunni Agúst H. Kviðlingar og kvæði vestur- íslenska skáldsins Káins hafa tvisvar verið gefin út hér á landi, fyrst í ítarlegri útgáfu árið 1945, sem Richard Beck sá um, og aftur á 8. áratugnum í styttri útgáfu, sem Tómas Guð- mundsson, skáld, sá um. í fyrri útgáfunni, en ekki hinni síðari, er ljóð sem Káinn orti í tilefni af því að Ágúst H. Bjamason, pró- fessor í heimspeki, kom í fyrirlestra- ferð til Vesturheims. Hér fara á eftir þijú af ljómm erindum ljóðsins: Ágúst H. Nú heilsa eg heimspeking frœgum og hneigi mig. - Sœll vert þú - heiðraði herra Agúst, H. - “do you do?". Það er svo hressandi, heilnœmt, og heimskuna dœmir í bann, að hlusta ’ cí þig, herra Agúst, H. - lœrðan mann. Þeir, sem að þekkja þig, vita, þegar að komið er haust heldur þú heimleiðis, Agúst H. - vaðalaust. 40 - FREYR 13-14/2000

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.