Freyr - 15.12.2000, Side 44
bæta úr. Rétt er að vekja sérstaka
athygli á ástandsflokkun þeirri
sem skýrð er í ritinu “Hrossahagar,
aðferð til að meta ástand lands”.
Þar eru kynntar í máli og myndum
einfaldar aðferðir til að lesa landið
með tilliti til beitarnýtingar. Þessar
aðferðir geta allir sem vilja, tileink-
að sér.
Rétt er að vekja sérstaka athygli
á nokkrum atriðum er snúa að land-
nýtingarþætti gæðastýringarinnar.
* Ekki er skylda að láta votta
beitiland þó að viðkomandi sé
þátttakandi í gæðaskýrsluhald-
inu. Þátttaka í landvottuninni er
frjáls og þarf viðkomandi að
sækja um að fá vottun til búnað-
arsambands síns.
* Vottunarþegar kosta sjálfir vott-
unina.
* Hrossabændur eiga sjálfir frum-
kvæði að gæðastjórnuninni.
* Bændasamtök Islands hafa yfir-
umsjón með vottunarstarfmu og
viðurkenningarskjöl þau er
bændur fá, standist jarðir þeirra
vottunarkröfumar, eru undirrit-
uð af formanni BI og land-
græðslustjóra.
* Skrá yfir þær jarðir er staðist
hafa vottunarkröfur verður birt
árlega.
Vottunarkerfiö, yfirlit
Tilgangur
* Að tryggja sjálfbæra nýtingu
beitilands.
* Að tryggja velferð hrossa.
* Þáttur í gæðastjórnun í hrossa-
rækt.
Vottunaraðferð
Vottunin gildir eingöngu fyrir
land sem nýtt er til hrossabeitar.
Beitiland og landnýting skal metin
eftir ástandsskala Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins (Rala) og
Landgræðslu ríkisins (Lr.), sem
skýrður er í ritinu Hrossahagar.
Aðferð til að ineta ástand lands
(Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins og Landgræðsla ríkisins, maí
1997). Við mat á jaðvegsrofi er
einnig notað ritið Að lesa landið
(Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins og Landgræðsla ríkisins, 1997).
Vottun lands miðast við ástand þess
þegar vottun fer fram.
Vottunaraðilar
Landgræðsla ríkisins ræður
starfshóp sem sér um vottunina.
Sérfræðingar Landgræðslunnar og
Rala í beitarmálum sjá um starfs-
þjálfun vottunarhópsins og skulu
jafnframt setja hópnum nánari
vinnureglur. Vottorð skal gilda eitt
ár í senn frá útgáfudegi.
Vottunareiningar
1. Ræktað land.
2. Úthagi.
3. Geymsluhólf fyrir brúkunar-
hross.
4. Afréttir.
Vottun
Umsókn bónda um vottun, ásamt
korti eða loftmynd af því landi er
votta skal. Fram komi stærðir
einstakra beitarhólfa.
Ekkert beitiland, sem fer í
ástandsflokk 5, skal nýtt til beit-
ar.
Úthaga, sem fer í flokk 4, skal
ekki nýta til beitar nema með
miklum takmörkunum og/eða
markvissum landbótaaðgerðum.
Úthagi, sem fer í flokk 3, er nýt-
anlegur til beitar með takmörk-
unum.
Geymsluhólf skulu staðsett á
sléttlendi sem auðvelt er að bera
á og bæta skemmdir. Þau skulu
ekki staðsett í halla eða á rof-
sæknu landi.
Afréttir sem viðkomandi nýtir til
beitar skulu hæfir til hrossabeitar
að mati Lr og Rala.
Kostnaður
Kostnaður vegna vottunar greið-
ist af vottunarþega. Landgræðslan í
samráði við Fagráð í hrossarækt
ákveður gjaldskrá fyrir vottunina.
Vinnureglur og
skýringar
Vottunaraðferð og vottunaraðilar
* Vottun fer fram á tímabilinu 15.
ágúst til áramóta ár hvert, háð
tíðarfari.
* Vottun gildir fyrir yfirstandandi
ár.
* Fara skal um allt beitiland sem
votta á og ástand þess metið.
Ástandseinkunn skal gefin
hverju beitarhólfi, lakast 5 og
best 0. Sérstaklega þarf að
gaumgæfa ástand landsins við
frumvottun og ef vafi getur leik-
ið á um ástandsflokkun. I mats-
niðurstöðum skal gera grein fyr-
ir einstökum beitarhólfum, þó
að lágmarki 1 ha. nema um
geymsluhólf sé að ræða.
* Miðað skal við ástand lands eins
og það er þegar matið fer fram.
* Vottunarþegi á rétt á að vera við-
staddur landmatið og fá allar
skýringar er það varðar.
* Vottunarþegi, sem fær ekki vott-
un á land sitt vegna ástands
þess, á rétt á að fá land sitt vott-
að næsta ár.
* Vottunaraðilar skrá hjá sér upp-
lýsingar er varða vottunina og
ástand landsins á sérstök eyðu-
blöð. Skulu vottunarþegi, Land-
græðslan, viðkomandi búnaðar-
samband og Bændasamtökin fá
samhljóða eintök af niðurstöðu
vottunar.
* Landgræðslan ræður starfshóp,
sem sér um vottunina. Menntun-
arkröfur eru: a) BSc próf í bú-
vísindum eða sambærileg
menntun. b) Nemar sem lokið
hafa tveggja ára námi við Búvís-
indadeild Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri geta unnið að
vottun með þeim starfsmönnum,
er lokið hafa námi skv. lið a.
* Sérfræðingar Rala og Land-
græðslunnar í landlæsi og beit-
armálum sjá um starfsþjálfun
starfshópsins.
* Frumvottun skal ætíð unnin af
tveimur aðilum úr áðurnefndum
starfshóp. Sú meginregla skal
gilda, komi upp álitamál við
44- FREYR 13-14/2000