Freyr - 15.12.2000, Síða 52
Frá átaki
í hestamennsku
Samningar viö ríki
Á haustdögum 1999 var sett af
stað vinna við gerð samnings milli
ríkisstjórnar Islands og samtaka
hrossaræktar og hestamennsku um
átaksverkefni um gæðastefnu í
greininni. Af hálfu ríkisins unnu að
samningnum Hákon Sigurgríms-
son, Bjami Guðmundsson, Skúli
Skúlason og Bjöm H. Barkarson frá
ráðuneyti landbúnaðarmála. Samn-
inganefnd greinarinnar samanstóð
af Jóni A. Sigurbjörnssyni for-
manni LH, Olafi H. Einarssyni
formanni FT, Kristni Guðnasyni
formanni F.hrb., auk Ágústs Sig-
urðssonar fyrir hönd BI. Þama var
settur upp metnaðarfullur verkefna-
listi um gæðaátak á ýmsum sviðum
í greininni og samningar tókust um
kr. 75 milljónir úr ríkissjóði til
verksins sem dreifist á 5 ár. Samn-
ingur þessi um átak um gæðastefnu
í ræktun, tamningu, þjálfun, sölu,
kynningu og notkun íslenska hests-
ins var undirritaður hinn 9. desem-
ber 1999 af forsætisráðherra, land-
búnaðarráðherra og forsvarsmönn-
um fyrrgreindra félaga.
Helstu atriði
samningsins
Samkvæmt 1. gr. samningsins er
markmið hans að stuðla að aukinni
fagmennsku innan greinarinnar,
aðlaga stærð hrossastofnsins mark-
aðsaðstæðum, ræktunarmarkmið-
um og markmiðum um sjálfbæra
landnýtingu, styrkja félagslega
samstöðu hrossabænda og hesta-
manna og auka arðsemi í greininni.
Þessum markmiðum á síðan að ná
annars vegar með sérstökum að-
gerðum stjómvalda og hins vegar
með áhersluverkefnum átaksins.
Þær aðgerðir sem stjómvöld skuld-
binda sig til að beita sér fyrir á
samningstímanum eru að:
eftir
Ágúst
Sigurðsson,
hrossa-
ræktar-
ráðunaut
BÍ
a) Styðja með nauðsynlegri setn-
ingu laga og reglugerða fyrir
gæðastjórnunarátak innan
hrossaræktarinnar
b) Efla nám á sviði hrossaræktar,
hestamennsku og landnýtingar
c) Setja skýr og afdráttarlaus laga-
ákvæði til þess að koma í veg
fyrir ofnotkun lands af völdum
hrossabeitar
d) Afla íslandi alþjóðlegarar viður-
kenningar sem upprunalandi ís-
lenska hestsins
e) Greiða fyrir auknum útflutningi
hrossa m.a. með viðræðum við
stjórnvöld annarra landa um
lækkun innflutningstolla og
annarra innflutingskvaða á
hrossum
f) Tengja íslenska hestinn í aukn-
um mæli opinberri landkynn-
ingu
g) Leita leiða til að tryggja til
framtíðar örugga vistun á
gagnabanka um íslenska hrossa-
kynið.
Áhersluverkefnum samkvæmt
samningnum er síðan skipt gróf-
lega í 6 flokka sem nefna má
Stefnumótun, Upprunalandið,
Gæðastýring, Reiðkennslustigun,
Kynningar- og markaðsátak og
Rannsóknir.
Stjórn og starfsmenn
Félögin, sem að verkefninu
standa, tilnefndu hver sinn mann í
stjórn átaksins í upphafi ársins.
Landssamband hestamannafélaga
skipaði Harald Þórarinsson (vara-
form. LH), Félag Tamningamanna
tilnefndi Ólaf H. Einarsson (form.
FT), frá Félagi hrossabænda var til-
nefndur Ármann Ólafsson (stjóm-
armaður F.hrb.) og Bændasamtök
íslands skipuðu Ágúst Sigurðsson
(hrossar.ráðunaut). Samkvæmt
ákvæðum í samningi þurfti stjómin
að velja formann og var Ágúst Sig-
urðsson settur í það embætti.
Fljótlega varð ljóst að nauðsyn-
legt yrði að fá að verkefninu starfs-
rnann til að stýra einstökum verk-
efnum og sérstaklega til þess að
vinna að stefnumótun fyrir átakið
og störf og snertifleti þeirra félaga
sem að því koma. Á fyrstu vikum
vetrar var síðan gerður tímabundinn
starfssamningur til 2ja ára við
Huldu Gústafsdóttur. Hún hefur yf-
irgripsmikla þekkingu á hestageir-
anum og er viðskiptafræðimenntuð
sem ætti að henta vel til þessara
starfa. Starfsaðstaða hennar er hjá
samtökum hestamanna í Laugardal.
Verkefni fyrsta starfsárs
Á þessu fyrsta starfsári átaksins
hefur verið unnið að nokkrum
áhersluatriðum en mikill tími hefur
þó farið í stefnumótunarvinnu
fyrir átaksverkefnið í heild og eins
fyrir félögin sem að því standa,
samstarf þeirra og snertifleti. Til að
hjálpa til við þá vinnu var leitað til
ráðgjafafyrirtækisins KPMG sem
fylgdi þeirri vinnu úr hlaði, ásamt
stjóminni, en síðustu vikur ársins
2000 vann hinn nýi starfsmaður
átaksins, Hulda Gústavsdóttir, af
krafti í þessu. Stefnt er að því að
þessari vinnu ljúki nú í byrjun nýs
árs. Þó svo að stefnumótuninni sé
ekki lokið þá hefur sú vinna samt
strax leitt til ákveðins árangurs sem
er m.a. hagræðing í skrifstofu-
52 - FREYR 13-14/2000