Freyr - 15.12.2000, Qupperneq 55
lenska hestinum, er því nauðsynleg
ef Island á að halda forystu sinni.
Hestamiðstöð Islands gegnir því
lykilhlutverki í samkeppnishæfni
landsins á þessum sviðum“.
Stofnuninni er ætlað að veita
faglega ráðgjöf, styrkja verkefni
með beinum fjárframlögum, stunda
eigin rannsóknarvinnu og kaupa
hlutabréf í verkefnum sem tengjast
starfsemi stofnunarinnar.
Hugmyndir að verkefnum
Hestamiðstöðvar íslands hafa
komið frá Hólaskóla, Eiðfaxa,
áhugahóp um reiðleiðir í
Skagafirði, Ferðamálafélagi Norð-
urlands vestra og frá starfsmönn-
um stofnunarinnar sjálfum. A vef-
síðu Hestamiðstöðvar íslands
liggur einnig frammi eyðublað
fyrir verkefnisbeiðni sem unnt er
að senda til stofnunarinnar.
Tveir starfsmenn hafa verið
ráðnir að Hestamiðstöð íslands.
Þorsteinn Tómas Broddason var
ráðinn framkvæmdastjóri og hóf
störf hinn 2. maí 2000. Hann er
með háskólamenntun í markaðs-
fræðum þjónustugreina, og frum-
kvöðlafræðum frá Háskólanum í
Stafangri í Noregi. Ingimar Ingi-
marsson er verkefnisstjóri hjá
Hestamiðstöð Islands. Hann er
með viðskiptafræðimenntun frá
Háskóla íslands og hefur unnið að
málefnum hrossaræktarinnar í
fjölda ára. Ingimar hóf störf hjá
Hestamiðstöð íslands í júní 2000.
Gert er ráð fyrir þriðju stöðunni
innan Hestamiðstöðvar Islands, en
ákveðið hefur verið að leita sam-
starfs við Hólaskóla með þá vinnu.
Með þessu næst meiri breidd í störf
Hestamiðstöðvarinnar þar sem
fleiri einstaklingar koma að starf-
inu.
Verkefni
Þegar Hestamiðstöð íslands tók
til starfa sl. vor biðu þegar nokkur
verkefni úrlausnar. Byrjað var á að
fmna samstarfsaðila að þeim og
hafist handa við nokkur þeirra.
Síðan hafa fleiri verkefni bæst við.
Flest verkefnin, sem eru í vinnslu,
eru langtímaverkefni sem sýna
ekki áþreifanlegan árangur fyrr en
eftir tvö til þrjú ár, en þó eru nokk-
ur sem nú þegar er lokið. Af lang-
tímaverkefnum stofnunarinnar ber
fyrst að nefna Gæðaátak á hrossa-
ræktarbúum, þar sem hrossarækt-
endum verður boðið upp á aðstoð
við endurskipulagningu á hrossa-
ræktinni sem og rekstri búanna.
Þetta er gert með því að bjóða upp
á námskeið í hverjum hinna ýmsu
þátta, sem að hrossaræktinni snúa,
og jafnframt verður gerð úttekt á
núverandi ástandi ræktunarinnar
og gerðar tillögur um úrbætur.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
Bændasamtök Islands og Land-
græðslu ríkisins en fyrsti hópur
þátttakenda verður tekinn inn í
janúar2001. I upphafi verða ein-
ungis bú á Norðurlandi í átakinu,
en síðar verður öðrum landshlutum
boðin þátttaka. Verkefnisstjóri er
Víkingur Gunnarsson, Hólaskóla.
Gæðaátak í hestatengdri ferða-
þjónustu er annað af tveimur stór-
um langtímaverkefnum stofnunar-
innar. Hér er reynt að finna hvaða
þættir í ferðaþjónustunni það eru
sem gestir eru ánægðir með og
hvað ekki, jafnframt því sem fyrir-
tæki á þessu sviði verða aðstoðuð
við að aðlaga rekstur sinn að þess-
um forsendum. Verkefnið er í
vinnslu og fyrsta úttekt á rekstri
fyrirtækja í hestatengdri ferðaþjón-
ustu fer fram nk. vor. Verkefnið er
unnið í samvinnu við Samtök
ferðaþjónustunnar og verkefnis-
stjóri er Guðrún Helgadóttir, Hóla-
skóla.
„Sögusetur íslenska hestsins“, er
vinnuheiti á verkefni sem ætlað er
að vera sögu- og fræðasetur ís-
lenska hestsins. Verið er að skrifa
viðskiptaáætlun fyrir setrið og er
áætlað að þeirri vinnu verði lokið
um miðjan febrúar 2001. Verkefn-
isstjóri þessa verkefnis er Þorsteinn
T. Broddason, Hestamiðstöð ís-
lands.
Reiðleiðir á íslandi er verkefni sem
Hestamiðstöð Islands vill beita sér í.
I byrjun nóvember stóð hestamið-
stöðin fyrir málþingi um reiðleiðir og
kom þar fram að margir voru að
vinna að framgangi málsins en lítið
um samræmingu aðgerða. Hesta-
miðstöðin mun því beita sér fyrir
samræmingaraðgerðum í skipulagn-
ingu á reiðleiðum á landinu í heild.
Þetta þýðir að Hestamiðstöð Islands
mun hafa frumkvæði að samskiptum
hinna ólíku aðila, sem að málinu
koma, og vera tengiliður í allri þeirri
skipulagsvinnu. Verkefnisstjóri þessa
verkefnis er Ingimar Ingimarsson.
Ymis önnur verkefni eru í vinnslu hjá
starfsmönnum stofnunarinnar, en þau
eru öll skráð á vefsíðu stofnunarinnar,
www.horses.is. Hestamiðstöð Is-
lands hvetur þá, sem hafa spum-
ingar um framkvæmdir eða verk-
efni stofnunarinnar, að hafa sam-
band. Einnig veitir stofnunin alla
almenna ráðgjöf á því sviði sem
hún vinnur á.
Vinnuvika danskra
kúabænda 59 klst.
Kúabændur vinna mest allra
danskra bænda eða 59 klst. á viku.
Svínabændur vinna að meðaltali
49 klst. en bændur með blandaðan
búrekstur vinna 52 klst. Einungis
fjósverkin, vinna á ökmm og bók-
haldsvinnan er talin með.
Kúabændur eiga einnig sjaldn-
ast frí. Meira en þriðjungur þeirra
hefur innan við fimm daga frí á
ári og einungis tíundi hver kúa-
bóndi hefur einn frídag í viku.
Könnunin sýnir einnig að
danskir kúabændur, sem flestir
em karlmenn, vinna 2-3 tíma í
viku við heimilisstörf, hæstur er
aldurshópurinn 40-50 ára með 3,6
klst. á viku.
(Bondebladet nr. 1/2001).
FREYR 13-14/2000 - 55