Freyr - 01.05.2001, Qupperneq 12
1. tafla. Vinnuþörf við fóðrun sauðfjár með mismunandi aðferðum.
Dagleg vinna/ 100 kindur
Rúlluhey (Heimild: Jóhannes Sveinbjömsson 1997)
Einföld gjafagrind, rúlla óskorin 5-7 mín.
Gjafagrind m. slæðigrindum, rúlla skorin 8-12 mín.
Afrúllari og gjafavagn 15-20 mín.
Handverkfæri og gjafavagn 25-30 mín.
Aðrar heyverkunaraðferðir (Heimild: Grétar Einarsson 1976)
Þurrheysbaggar, bomir á garða 15-20 mín.
Laust þurrhey 25-30 mín.
Vothey 31-35 mín
væntanlega upp í hinn helminginn.
Hagræðingarmöguleikar í vinnu-
liðnum tún/engi felast trúlega einna
helst í samnýtingu véla þar sem það
á við (Bjarni Guðmundsson og
Baldur H. Benjamínsson 2000).
Stærð vinnuliðsins viðhald véla
kemur ekki á óvart þar sem bændur
eru margir hverjir drjúgir í að gera
við sínar eigin vélar. Hins vegar
verður að segjast að sá liður sem
heitir viðhald, og innifelur þá lík-
lega viðhald girðinga, húsa og ann-
arra fasteigna, er hreint ótrúlega
stór, eða meira en þriðjungur úr
ársverki. Vel er hugsanlegt að
þama sé að einhverju leyti verið að
skrá hluti sem betur ættu heima
annars staðar, en þetta leiðir þó
hugann að því hversu kostnaðar-
samt það getur verið að láta ný-
framkvæmdir eða varanlegar end-
urbætur á húsum og girðingum
dragast of lengi. Slíkt hefur vafa-
laust í mörgum tilvikum verið
raunin á samdráttartímum í sauð-
fjárræktinni. Það er á sama hátt
visst áhyggjuefni hversu lítill tími
fer í nýrœkt og grœnfóður á sauð-
fjárbúum skv. úrtaki vinnuskýrsln-
anna.
Vinnuliðurinn sauðfé er tæp 60%
af vinnunni á sauðfjárbúunum. Sú
vinna, sem skráð er á sauðfé, inni-
felur fóðrun og aðra daglega hirð-
ingu, fjárrag, lyfjagjafir, sauðburð-
arvinnu, smalamennskur o.s.frv.
Það er erfitt að giska svo að vit sé í
á hvað einstakir vinnuliðir em fyr-
irferðarmiklir í þessum heildartöl-
um. Hér verður þó reynt að leggja
eitthvert mat á það út frá tiltækum
gögnum.
í vinnurannsóknum Grétars Ein-
arssonar (1976) á vetrarhirðingu
sauðfjár var úrtakið 30 bú sem að
meðaltali voru með um 300 vetrar-
fóðraðar kindur, rétt eins og bú-
reikninga- og vinnuskýrslubúin er
gerð var grein fyrir hér að framan.
Mæld var hin daglega vinna við
hirðingu fjárins og hún flokkuð í
verkþætti. Vinna við fóðrun reynd-
ist eins og vænta mátti mismikil
eftir heyverkunaraðferðum. Grétar
gerði grein fyrir niðurstöðum varð-
andi þurrheysbagga, laust þurrhey
og hefðbundið vothey. Síðar (Jó-
hannes Sveinbjömsson 1997) vom
gerðar mælingar á vinnu við fóðrun
á rúlluböggum með mismunandi
aðferðum. í 1. töflu eru teknar sam-
an niðurstöður um daglega vinnu á
hverjar 100 kindur fyrir ólíkar hey-
verkunar- og gjafaaðferðir. Innifal-
ið er moðhreinsun, en ekki kjam-
fóðurgjöf, brynning, hreinsun gólfa
eða önnur verk.
Nú skulum við aðeins bíða með
að líta frekar á hagkvæmni ólíkra
aðferða við heygjafir, en í stað þess
álykta að það sé algengt að það fari
um 30 mín á dag á hverjar 100
kindur í heygjaftr. Dagleg vinna
við þá þætti, sem ekki eru innifaldir
í vinnu við heyfóðrun, skv. töflunni
hér að ofan, var skv. mælingum
Grétars: Kjarnfóðurgjöf 3-4
mín/dag, brynning 2,5-3 mín/dag
og ýmis vinna 2,5-3,5 mín/dag, allt
á hverjar 100 kindur. Samtals eru
því þessir verkþættir um 9-10
Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
w Vinnust. 116 95 128 124 417 204 25 9 182 120 121 121
1. mynd. Heildarvinna við sauðfé eftir mánuðum á fjárbúum með vinnuskýrslur, meðaltal 1997-1999.
12 - pR€VR 6-7/2001