Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 28
Dóms- og matsstörfin
í sauðfjárræktinni haustið 2000
Með hverju hausti hefur vinna við dóma,
mælingar, mat og val á sauðfé farið vax-
andi. Augljóst er að sú vinna, sem skipu-
lögð var haustið 1998 í sambandi við
skipulegar afkvæmarannsóknir í tengslum við nýtt
kjötmat, hefur aukið bændum víða áhuga á rækt-
unarstarfinu. Góðu heilli þá sjá menn víða þegar aug-
ljósan árangur af þeirri vinnu, þó að þess sé eigi að
vænta að hann aukist enn á næstu árum. Rúmum hálf-
um áratug áður hafði tilkoma ómsjánna og mælinga
með þeim gert alla vinnu í sambandi við einstakl-
ingsmat enn áreiðanlegri en hún var áður.
Hér í blaðinu er gerð grein fyrir helstu þáttunum í af-
rakstri þessarar vinnu frá haustinu 2000. í grein um
hrútasýningar, sem hér fylgir, er gerð grein fyrir dóm-
um á veturgömlu hrútunum í hverju héraði. Þá er yfirlit
um helstu niðurstöður úr afkvæmarannsóknunum og
að síðustu eru dregnar saman niðurstöður um afkvæmi
sæðingarstöðvarhrúta sem fram komu í lambaskoðun-
um vítt um land haustið 2000.
Víða um land er hefðbundið sýningahald að mestu
aflagt en dómar víða unnir samtímis fyrir lömb og
hrúta og oftar en ekki heima á einstökum búum. A
sumum svæðum hafa ráðunautar tekið í notkun skrán-
ingu á upplýsingum á fartölvu, jafnhliða dómstörf-
unum. A þann hátt fást flestar niðurstöður strax á
staðnum og koma þannig tvímælalaust að enn meiri
notum strax.
Þessa vinnu í sauðfjárræktinni önnuðust eins og áður
fjölmargir aðilar. A svæði Búnaðarsamtaka Vest-
urlands var vinnan undir stjóm Lárusar G. Birgissonar
en honum til aðstoðar voru einnig Friðrik Jónsson og
Guðmundur Sigurðsson. Þeir önnuðust, auk eigin
Mon
Vindrafstöðvum fjölgar
Framleiðsla vindrafstöðva er að verða jafn ntikil-
væg iðngrein í Danmörku og bílaframleiðsla í
Þýskalandi og Frakklandi. Helmingur allra vindraf-
stöðva í heiminum er nú framleiddur í Danmörku,
en 12.000 Danir starfa nú við þessa framleiðslu. A
síðustu sex árum hefur framleiðslan áttfaldast. Því
er spáð að eftir 20 ár verði 10% af framleiðslu raf-
magns í heiminum frá vindrafstöðvum.
(Bondebladet nr. 18/2001).
starfssvæðis, einnig dómstörf í Kjalarnesþingi, nema
hvað Sigurjón Bláfeld, líkt og áður, dæmdi fullorðna
hrúta á höfuðborgarsvæðinu, en Vestlendingar
önnuðust þessi störf einnig í Austur-Barða-
strandarsýslu. Á hinum hlutum af félagssvæði Bsb.
Vestfjarða var Þorvaldur Þórðarson að störfum líkt og
undangengin haust. Brynjólfur Sæmundsson hafði líkt
og áður með höndum hin feikilega umfangsmiklu störf
á þessu sviði á svæði Bsb. Strandamanna. í
Húnavatnssýslu var óbreytt skipan starfsliðs frá fyrra
hausti, Svanborg Einarsdóttir í vestursýslunni og
Guðbjartur Guðmundsson í þeirri eystri. Jóhannes
Ríkharðsson og Kristján Ottar Eymundsson unnu þessi
störf eins og haustið áður í Skagafirði. Hjá Bsb.
Eyjafjarðar voru Ólafur G. Vagnsson og Þórður G.
Sigurjónsson með dómsstörfin. Á starfssvæði
ráðunautaþjónustu Þingeyinga voru María S.
Jónsdóttir og Ari Teitsson að störfum. Á Austurlandi
voru Þórarinn Lárusson og Jón Atli Gunnlaugsson að
störfum og Halldór Eiðsson stjómaði vinnunni í Aust-
ur-Skaftafellssýslu.
Hjá Bsb. Suðurlands var vinnan mest hjá þeim stöll-
um Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur og Höllu Eygló
Sveinsdóttur með nokkurri aðstoð frá Jóni Vilmundar-
syni og Guðmundi Jóhannessyni. Þar fór fram sam-
dæming á bestu veturgömlu hrútunum, líkt og árið
áður, eftir að sameiginlegum sýningum lauk og tók Jón
Viðar frá BÍ þátt í þeim ferðum.
Frá BÍ var Jón Viðar Jónmundsson við störf vítt um
land þann mánaðartíma sem þessi vinna fer fram. I
hans störfum hafði forgang að vera við störf þar sem
skipulegar afkvæmarannsóknir vegna sæðing-
arstöðvanna voru unnar en það var á Hjarðarfelli á
Snæfellsnesi, Melum í Árneshreppi, Holti í Þistilfirði,
Teigi í Fljótshlíð og Háholti í Gnúpverjahreppi. Auk
þess var komið að störfum í Borgarfirði og á Snæ-
fellsnesi, í Reykhólsveit, Kirkjubólshreppi, allvíða í
Vestur-Húnavatnssýslu, í flestum sveitum í Norður-
Þingeyjarsýslu, mjög víða á Austurlandi, í öllum
sveitum í Austur-Skaftafellssýslu og lítillega í Vestur-
Skaftafellssýslu, auk samdæmingar bestu veturgömlu
hrútanna á öllu Suðurlandi.
Þeir sem að dómstörfum unnu á hverjum stað hafa
tekið saman upplýsingar um hrútasýningarnar en Jón
Viðar samræmt og skrifað sameiginlegan texta. Grunn-
ur að grein um afkvæmarannsóknir er skrifaður af Jóni
Viðar en yfirfarinn og færður til betri vegar af
heimamönnum á hverju svæði.
28 - pR€VR 6-7/2001