Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 52
480 sýndi einnig frábærar
niðurstöður með 123 í
heildareinkunn og frá-
bært kjötmat. Þessi hrútur
er sonur Svaða 94-998. í
Keflavík var Frissi 96-
201 eins og stundum áður
með 135 í heildareink-
unn. Á Óslandi stóð efst-
ur Trix 99-322 með 124 í
heildareinkunn, en hann
er sonur Atrix 94-824. í
Enni á Höfðaströnd stóð
langefstur Afi 99-296
með 131 í heildareink-
unn, jafn á báðum þátt-
um. Afi er sonur Austra
98-831 en móðurfaðir
Óskar 93-460, sem var
feikilega athyglisverður
hrútur, undan Fóla 88-
911.
Eins og oft var ein allra
umfangsmesta rannsókn
haustsins á Brúnastöðum
en þar voru að þessu sinni
17 hópar í samanburði.
Toppinn skipaði nú Trölli
98-037 með 133 í heild-
areinkunn en hann er
sonur Þurs 97-037, sem
er undan Sóloni 93-977.
Trixi 99-026 var með 127
í heildareinkunn en faðir
hans er Atrix 94-824. Þó
að Hnallur 97-031 yrði
nú að víkja fyrir yngri
hrútum stóð hann í haust
með 120 í heildareinkunn
en hann hafði sýnt ein-
staka útkornu haustið
1999 og mjög góða
haustið 1998. Á Þrasa-
stöðum stóðu efstir Smá-
hamrahrútarnir Sónar 98-
087 með 128 í heild-
areinkunn og Sindri 98-
086 með 124 í einkunn en
hrútar þessir eru synir
þekktra kynbótahrúta á
Smáhömrum með sömu
nöfnum.
Eyjafjörður
Afkvæmarannsóknir
voru á líkum fjölda búa
og árið áður en talsvert
fleiri hópar sem fengu
dóm. Nú var mikill fjöldi
áhugaverðra veturgam-
alla hrúta úr sæðingum á
svæðinu.
Á Staðarbakka hjá
Guðmundi stóð langefst-
ur hópur undan Hnokka
99-031 með 135 í heild-
areinkunn, en lömb und-
an þessum hrút höfðu frá-
bær lærahold og gríðar-
lega gott kjötmat um
gerð. Hnokki er sonur
Sunna 96-830. Hjá Sig-
urði á Staðarbakka stóð
efstur hópur undan
Nökkva 99-023 með
mjög jafnan dóm um
báða þætti rannsóknar-
innar og 124 í heildar-
einkunn. Nökkvi er sonur
Mjaldur 93-985 og dótt-
ursonur Gosa 91-945.
Þarna var Moli 98-793
með feikilega athyglis-
verðan dóm úr kjötmats-
hluta með 127 úr kjöt-
matshluta og fast að
11(U) að meðaltali fyrir
gerð í kjötmati. Moli er
sonur Geirs 96-731. Á
Syðri-Bægisá voru fimm
hópar í dómi sem ótrú-
lega mikill munur var á.
Hjölli 98-096 var þar
með 140 í heildareink-
unn, mjög öflugur á báð-
um þáttum rannsóknar,
en faðir þessa hrúts var
Frami 95-117. Kvaran
99-099 var enn sterkari í
kjötmati en slakari í óm-
sjármælingum og var
með 132 í heildareink-
unn. Þessi hrútur er sonur
Mjaldurs 93-985 en móð-
urfaðir er Hnykkur 91-
958. I stórri rannsókn á
Ytri-Bægisá II voru tveir
hópar afgerandi. Snær
97-152 staðfesti góðan
dóm frá haustinu 1998 og
bætti nú um betur með
125 í heildareinkunn, en
hann er sonur Sólons 93-
977. Þá var Max 99-163
með 121 í heildareink-
unn, með mjög gott kjöt-
mat lamba. Max er undan
Austra 98-831.
I Garðshorni á Þela-
mörk kom eitt mesta út-
slag í rannsóknunum
haustið 2000 hjá Hækli
98-182 sem fékk 148 í
heildareinkunn en eink-
unn hans úr kjötmatshlut-
anum var einstök eða
178. Þessi hrútur er sonur
Ófeigs 95-116, sem sýndi
frábæra útkomu í rann-
sókn haustið 1998, en
hann var sonur Gosa 91-
945. í Neðri-Vindheim-
um skipaði hópur undan
Fána 98-201 efsta sætið
með 126 í einkunn. Þessi
kynbótakind er undan
Reka 96-120 á Ytri-Bæg-
isá I, sem gert hafði garð-
inn frægan þar í hliðstæð-
um rannsóknum fyrr á ár-
um, en hann var frá Hey-
dalsá sonur Stera 92-323.
Á Hríshóli skipaði Tarfur
98-641 efsta sætið með
120 í heildareinkunn og
sérlega gott kjötmat
lambanna. Faðir Tarfs var
Skarfur 94-536. í hrúta-
hópnum í Villingadal
sýndi Siggakollur 99-514
algera yfirburði með 126
í heildareinkunn, kjötmat
frábært þar sem einkunn
er 149. Þessi hrútur er
sonur Flekks 89-965. í
Mógili bar af hópurinn
undan Óskari 99-419
með 130 í heildareinkunn
með dóm sem var jafn á
báðum þáttum rannsókn-
arinnar. Óskar er undan
Mjaldri 93-985. í Laufási
staðfesti Bjór 98-081
góðan dóm frá fyrra ári,
nú með 121 í heildareink-
unn. Bjór er sonarsonur
Frama 94-996. Á Lóma-
tjöm stóð langefstur Sæsi
99-668 með 124 í heild-
areinkunn, en yfirburðir
hans voru hvað mest
vegna góðs fitumats í
kjötmati. Þessi hrútur er
sonur Kóps 95-825.
Suður-Þingeyjarsýsla
Á svæði Bsb. Suður-
Þingeyinga var talsvert
meira umfang afkvæma-
rannsókna en árið áður.
Þessi þáttur er samt ekki
umfangsmikill enn miðað
við mikla og almenna
þátttöku bænda í ræktun-
arstarfinu. í miklum fjár-
ræktarsveitum, eins og
Mývatnssveit, hafa
bændur ekki enn tekið
þennan þátt með í fjár-
ræktarstarf sitt.
Hrókur 98-602 renndi
styrkari stoðum undir
fyrri upplýsingar um yfir-
burði meðal hrúta í Hrís-
gerði með 123 í heildar-
einkunn að þessu sinni. I
Vatnsleysu var Jóker 97-
519 á toppi eins og á síð-
asta ári, nú með 123 í
heildareinkunn, en hann
er sonur Stikils 91-970.
Tveir veturgamlir hrútar
vom með 121 í einkunn,
Fáfnir 99-645 og Torfi
99-648, Fáfnir sonur
Bjálfa 95-802 en Torfi frá
Torfunesi undan Snar 97-
671. Ullur 99-736 stóð
fremstur Hrifluhrútanna
þetta haustið með 122 í
heildareinkunn, en yfir-
burðir fengust allir úr
ómsjárhluta því að hann
var í tæpu meðaltali í
kjötmatshluta. Ullur er
undan Frey 98-832.
Rjómi 94-289 í Hlíð-
skógum staðfesti fyrra
ágæti sitt með 123 í
heildareinkunn, en hann
52 - f R€YR 6-7/2001