Freyr - 01.05.2001, Blaðsíða 69
Frá Fjárræktarbúinu
á Hesti 1999-2000
Haustið 1999 voru settar á
vetur 474 ær veturgaml-
ar og eldri, 125 lamb-
gimbrar, 15 lambhrútar
og 12 hrútar fullorðnir. Sjö ær mis-
fórust frá hausti til sauðburðar, þar
af tvær áður en fé var tekið á hús en
hinar fimm af ýmsum orsökum,
m.a vanþrifum, vegna gadds, þind-
arsliti og lungnabólgu. Tvær ásetn-
ingsgimbrar misfórust yfir vetur-
inn, önnur þeirra fannst dauð í
skurði um haustið en hin lá afvelta
og dauð í kró morgun einn í apríl-
lok, óborin.
Tafla 1 sýnir meðalþunga og
meðalþyngdarbreytingar þeirra 467
áa, sem lifandi voru við maívigtun
í byrjun sauðburðar eftir aldri
þeirra, og línurit 1 þunga- og holda-
ferli yfir veturinn.
Við haustvigtun 8. október vógu
æmar 67,3 kg til jafnaðar, sem er
1,5 kg meiri þungi en haustið 1998.
Meðalholdastig þeirra var þá 3,06
stig (holdastigaskali spannar tölu-
gildi frá 0 lægst til 5 hæst), sem er
0,18 stigum lægra en haustið áður.
Eins og venja er var ám á annan
vetur, sem gengu með lambi, og
einnig rýrum eldri ám, beitt á há,
Stefán Sch.
Thorsteinsson,
Sigvaldi
Jónsson
og
Ingi Garðar
Sigurðsson,
Rannsókna-
stofnun
landbúnaðarins
uk
eftir að lömbin höfðu verið tekin
undan þeim þann 18. september,
þar til þær voru teknar á hús í nóv-
emberbyrjun. Aðrar ær gengu í
heimahögum fram um mánaðamót
október-nóvember, en voru þá
teknar heim og beitt á háarleifamar
fram að hýsingu um miðjan nóv-
ember. Allar æmar vom rúnar á
fyrstu dögunum eftir að þær komu
á hús. Á haustbeitinni héldust æm-
ar þokkalega við í holdun og við
nóvembervigtun námu holdastigin
3,17 stigum og þynging þeirra 2,6
kg til jafnaðar. Þetta er heldur
minni haustbati og þynging en á
undanfömum árum og stafar fyrst
og fremst af því að háin var svo til
uppetin er æmar komu á túnin. Frá
nóvembervigtun og til fengitíma-
loka þyngdust æmar um 2,8 kg og
frá fengitímalokum til marsvigtun-
ar var þynging þeirra 6,3 kg. Við
marsvigtun námu holdastig ánna
3,58 stigum og höfðu aukist um
0,41 stig frá 23. nóvember. Frá
marsvigtun til aprílloka þyngdust
æmar um 5,1 kg en lögðu hins veg-
ar af sem svarar 0,16 stigum, sem
er ámóta aflegging og vant er síð-
ustu 6 vikumar fyrir burð.
Meðalþungi ánna í apríllok var
84,1 kg, sem er 1,1 kg minni þungi
en sl. vor. Frá hausti til vors þyngst
þær um 16,8 kg sem er 2,6 kg
minni þynging en veturinn áður og
bættu 0,36 stigum við hold sín á
sama tíma.
Fóðrun ánna
Tafla 2 sýnir meðalfóður ánna
Tafla 1. Þungi og þyngdarbreytingar ánna, kg
Þungi, kg Þyngdarbreytingar, kg
8/10- 23/11-10/1- 17/2- 27/3- 8/10-
Ær á: Tala 8/10 23/11 10/1 17/2 27/3 28/4 23/11 10/1 17/2 27/3 28/4 28/4
9.vetur 1 63,0 67,0 70,0 73,0 75,0 88,0 4,0 3,0 3,0 2,0 13,0 25,0
8. vetur 12 70,6 71,4 73,8 76,8 80,8 85,2 0,9 2,4 3,0 4,0 4,4 14,6
7. vetur 20 71,2 73,9 77,2 79,8 83,4 87,7 2,7 3,3 2,6 3,6 4,3 16,5
6. vetur 61 71,2 73,3 76,6 78,4 82„0 87,0 2,1 3,3 1,8 3,6 5,0 15,8
5. vetur 64 69,6 72,2 75,1 76,2 81,1 85,3 2,6 2,9 1,1 4,9 4,2 15,7
4. vetur 86 66,7 70,0 73,3 74,8 78,8 83,9 3,3 3,3 1,5 4,0 5,1 17,2
3. vetur 109 64,9 66,8 70,2 71,5 75,5 80,4 1,9 3,4 1,3 4,0 4,9 15,5
2. vetur 114 60,9 64,3 65,6 66,4 70,4 75,5 3,4 1,3 0,8 4,0 5,1 14,6
Meðaltal 467 67,3 69,9 72,7 74,6 79,0 84,1 2,6 2,8 1,9 4,4 5,1 16,8
pR€VR 6-7/2001 - 69