Freyr - 01.05.2001, Síða 16
áður hefur verið fjallað um, eru
e.t.v. mestir möguleikar á að hag-
ræða vinnunni við flutninga fjárins
innan húss og utan. Nokkur atriði
sem þar skipta máli eru:
* að flutningsvegalengdir séu sem
stystar;
* að sem minnst þurfi að lyfta
kindum eða draga;
* að hurðir og hlið séu þægileg í
umgengni;
* að ekki þurfi að setja upp/breyta
innréttingum eftir að sauðburður
er hafinn.
Innra skipulag húsanna skiptir
hér miklu máli. Hefðbundnum fjár-
húsum má skipta í tvo flokka m.t.t.
innra skipulags, þ.e.:
* Endagangshús, með garða og
krær langsum og fóður-/fjár-
rags-ganga ýmist í öðrum eða
báðum endum húsanna.
* Miðgangshús, garðar og krær
þversum, en gangur eftir miðju
húsinu.
Miðgangshúsin eru á margan hátt
skemmtilegri á sauðburði, m.a.
vegna þess að flutningsvegalengdir
eru að meðaltali styttri en í enda-
gangshúsunum. Agæt umfjöllun er
um þessar húsagerðir í Fjölriti Rala
nr 32 (Grétar Einarsson 1978). Hér
skal hins vegar vikið nánar að
mögulegu skipulagi gjafagrinda-
húsa, ekki síst m.t.t. vinnu á sauð-
burði.
A meðfylgjandi teikningu (5.
mynd), er Byggingaþjónusta BÍ
hefur unnið, er tillaga að skipulagi
fyrir fjárhús með alls 10 gjafa-
grindum. Miðað er við að 60 ær séu
við hverja gjafagrind, þ.e. 30 á
hvorri hlið. Miðað við stærðarmál
gjafagrindanna frá Vírneti þýðir
þetta nokkurn veginn að þrjár kind-
ur eru um hvert jötupláss, eins og
gert er ráð fyrir í reglugerð um að-
búnað búfjár. 1 miðju hússins er
gert ráð fyrir að sé garði og tvær
krær sem gjafagrindahólfin liggja
þvert á. Talía til flutninga á rúllun-
um er á U-laga loftbraut sem liggur
beint yfir gjafagrindurnar. Teikn-
ingin sýnir hvernig miðjusvæðið er
nýtt á sauðburði fyrir einstaklings-
stíur og er þá gert ráð fyrir gangi á
milli hópstíanna og einstaklingsstí-
anna. Það er svo matsatriði hvort sá
gangur á að vera fyrir hendi allt ár-
ið eða einungis settur upp fyrir
sauðburð. Þama er reiknað með 9
einstaklingsstíum fyrir hverja 60
kinda hópstíu, sem þýðir að 15%
ánna getur verið í einstaklingsstíu
hverju sinni. Utan sauðburðar má
nýta kræmar í miðjunni fyrir fé á
hefðbundinn hátt og ættu að rúmast
þar um 70 fjár í hvorri kró.
Önnur tillöguteikning (6. mynd)
sem fylgir hér með er af svipuðum
toga og sú fyrri, nema í stað þess að
hafa garða og krær eftir miðju
hússins er þar bara einn gangur.
Milli gangsins og gjafagrindanna er
hægt að setja upp einstaklingsstíur
á sauðburði. Einstaklingsstíurnar
þurfa að vera opnanlegar í báða
enda til að þetta fyrirkomulag þjóni
tilgangi sínum. Úr einstaklingsstí-
unum má þá fara með lambæmar
eftir miðganginum, hvort heldur
sem er inn í hlöðu, út úr húsi, eða í
aðra hóp- eða einstaklingsstíu í
íjárhúsunum. Þessi hugmynd gerir
ráð fyrir að fénu í einstaklingsstí-
unum sé gefið á miðganginn, þann-
ig að framhlið stíunnar þarf þá að
vera þannig úr garði gerð að féð
geti étið í gegnum hana. Brynningu
mætti hafa með þeim hætti að
plaströr með vatnsjöfnun væri lagt í
bakhlið stíunnar, en nægilega hátt
uppi til að æmar geti gengið undir
það þegar þær eru settar inn í
stíuna.
Einstaklingsstíur
Hönnun þessara stía getur verið
með ýmsu rnóti. Lágmarksstærð er
1,0 m2 skv. aðbúnaðar reglugerð, en
oft eru þessar stíur hafðar stærri.
Til þess að æmar geti auðveldlega
snúið sér við má áætla að breidd
stía þurfi að vera 0,8 m. Það fer svo
auðvitað eftir aðstæðum hvort
svona stíur eru hafðar ferningslaga,
(t.d. lxl m) eðaekki (t.d. 1,25x0,8
m). Nokkrar helstu kröfur til ein-
staklingssstía eru:
* Einfaldar og ódýrar í smíði.
* Fljótlegt að setja upp fyrir sauð-
burð.
* Taki lítið rúm í geymslu.
* Veiti ám og lömbum öruggt
skýli.
* Fóðrun og brynning sé auðveld í
framkvæmd.
* Auðvelt sé að koma ánum í og
úr stíunum.
Síðasttalda atriðið er eitt það
mikilvægasta og líklega það sem
menn eru almennt í mestum vand-
ræðum með að leysa. Þegar svona
stíur eru settar upp í fjárhúsum með
venjulegu garða/króa fyrirkomu-
lagi eru helstu möguleikar í stöð-
unni eins og Grétar Einarsson
(1978) lýsir:
1. Stíur sem eru styttri en króar-
breiddin, þannig að það myndist
40-80 cm breiður gangur fyrir
aftan þær (10. mynd í Fjölriti
RALA nr. 32).
2. Stíur þar sem grindinni er skipt
þannig að loka megi ærnar af í
fremri hluta stíunnar um leið og
gangur myndast að aftanverðu í
krónni (11. mynd í Fjölriti
RALA nr. 32).
3. Stíur sem hafa sömu lengd og
króarbreiddin og æmar fluttar í
og úr stíunum í sérstökum
garðavögnum (12. mynd í Fjöl-
riti RALA nr. 32)
Stíugerð 1 kemur ekki til greina,
nema króarbreiddin sé a.m.k. 180
cm. Stíugerð 2 nýtir gólfplássið
betur. Sama má segja um stíugerð
3, sem kemur þó aðeins til álita þar
sem hægt er að aka vagni eftir
garðaböndum eða hengja hann í
loftbraut.
í sérstakri sauðburðaraðstöðu,
sem ekki er bundin af innréttingum
sem fyrir eru, má hafa fóðurgang í
gólfhæð í staðinn fyrir garða og
nota þann gang jafnframt til flutn-
inga á fénu í og úr einstaklingsstí-
um, sem liggja þá þvert á þennan
gang (sbr. umræðu hér að framan -
6. mynd). Framendi einstaklings-
stíunnar, þ.e. sá er vísar inn á fóður-
16 - FR€VR 6-7/2001