Freyr - 01.05.2001, Síða 29
Hrútasýningarnar
haustið 2000
Skipulag hrútasýninga hefur
nú í nokkur ár verið með
óbreyttum hætti. Sýning-
arnar eru miðaðar við
veturgamla hrúta, auk þess sem
gert er ráð fyrir að ósýnda eldri
hrúta sé hægt að mæta með til
dóms. Eftir þessar breytingar eru
sýningar hins vegar á hverju ári um
allt land.
Haustið 2000 var þátttaka í sýn-
ingahaidinu enn mikil þó að hún væri
talsvert minni en undangengin tvö ár.
Samtals komu til dóms á landinu öllu
2750 hrútar en þeir voru haustið 1999
3041 til samanburðar.
Eins og áður er gífurlega mikill
munur á milli héraða í því hver
þátttaka var í sýningu á hrútunum
og einkum samanburður við árið
áður. Þar er það notkun sæðinga ár-
ið áður og ásetningur hrútlamba í
kjölfar þess sem hefur langsamlega
mest áhrif. Þannig var sýningaþátt-
taka á Vesturlandi aðeins svipur hjá
sjón í samanburði við það sem ver-
ið hafði árið áður. A Norðurlandi
voru aftur á móti miklu fleiri hrútar
dæmdir nú en haustið áður.
Veturgömlu hrútamir voru samtals
2591. Meðalþungi þeirra var 82,3 kg
samanborið við 80,6 kg haustið áður.
Fullyrða má að aldrei hafi fé hér á
landi verið eins vel framgengið að
hausti og haustið 2000, sem m.a.
birtist í þessum mikla vænleika vet-
urgömlu hrútanna. Um allt land hef-
ur val ásetningshrúta verið fært í
mjög mótaðan farveg, sem m.a. bin-
ist í því að gæði ásetningshrúta em
orðin miklu meiri og jafnari en var
fyrir áratug, þó að ekki sé horft
lengra aftur í tímann. Gildi dóma á
veturgömlu hrútum hlýtur að sama
skapi að minnka og vafalítið þáttur
sem full ástæða er til að taka til end-
urskoðunar. Af veturgömlu hrútun-
um fengu 2319 I. verðlaun eða
89,5% þeirra, II. verðlaun fengu 245
hrútar eða 9,4% þeirra og 27 þeirra
eða 0,1% vom taldir til einskis nýtir.
Dæmdir vom 159 hrútar 2ja vetra
og eldri, en af þeim var fast að
þriðjungur einnig á hrútasýningu í
gömlum stíl sem sett var upp haust-
ið 2000. Þessi hópur er því, eins og
að var stefnt, nánast horfinn úr
dómstörfunum. Þessir eldri hrútar
voru 95,9 kg á fæti að meðaltali.
I þeim texta sem hér fylgir er á
hefðbundinn hátt gefið stutt yfirlit
um umfang dómstarfa í hverju hér-
aði og um leið gerð grein fyrir ýms-
um allra athyglisverðustu einstakl-
ingunum sem bar fyrri augu við
þessi dómstörf haustið 2000.
FR6VR 6-7/2001 - 29