Freyr - 01.05.2001, Síða 40
hrútum eru synir Stubbs
95-815, þeir Dýri, Kugg-
ur og Saumur. Um langt
árabil hefur verið stundað
markvisst ræktunarstarf í
Bjarnanesi sem hefur
skilað verulegum árangri.
A Mýrum var hópur af
þrælöflugum hrútum.
Sindri 99-134 íViðborðs-
seli er feikilega vel gerð-
ur hrútur, þroskamikill,
mjög þéttholda og vel
gerður, með ákaflega
mikil lærahold, en mætti
vera ullarbetri. Hann er
sonur Mola 93-986.
Bróðir hans Bliki 99-135
hefur ekki eins mikil
lærahold en ákaflega
þykkan bakvöðva. Bráinn
99-132, einnig í Við-
borðsseli, er stórglæsileg-
ur einstaklingur undan
Stubb 95-815. Teigur 99-
113 í Holtaseli sem er
Molasonur 93-986, er
prýðisgóður einstakling-
ur. Mjög góðir einstakl-
ingar voru einnig enn
einn Molasonur, Lappi
99-140 í Holtahólum, og
einn þeirra bræðra til,
Humar 99-121 í Nýpu-
görðum, Dengsi 99-122 á
sama búi er mjög vel
þroskaður og prýðisvel
gerður hrútur undan
Kúnna 94-997.
í Suðursveit kom til
sýninga sá hrútur sem
þetta haustið var dæmdur
bestur í sýslunni en það er
Peli 99-388 á Smyrla-
björgum. Þetta er feiki-
lega fögur kind, ákaflega
jafnvaxinn, með þykka
vöðva og ágæta bollengd.
Þessi úrvalskind er frá
Lækjarhúsum, undan
Fleyg 98-343. Súfur 99-
387 á Smyrlabjörg er
ákaflega bakþykkur og
vel gerður sonur Stubbs
95-815. Lækur á Uppsöl-
um er einhver allra besti
hrútur sýslunnar, ákaflega
gallalaus og holdþéttur
hrútur en hann er frá
Lækjarhúsum, sonur
Læks 97-843. Jón frá
Lækjarhúsum sýndi Fífil
sem er undan Garpi 92-
808, hefur einkenni hans,
gríðarlega öfluga hold-
fyllingu í afturparti, en að-
eins hrjúfur um herðar og
ull ekki til fyrirmyndar.
I Öræfurn var mikið
hrútaval þó að ekki stæði
það alveg jafnfætis því
sem var þar á síðasta ári.
Hjá Gísla á Hnappavöll-
um má nefna Bassa 99-
086, sem er sonur Garps
92-808, og þá hálfbræð-
urna Ubba 99-088 og
Skolla 99-089 syni Spillis
98-085, sem var Garps-
sonur en þeir mættu að
vísu hafa enn öflugri
lærahold, en allir þessir
þrír hrútar eru úrvalsgóðir
einstaklingar. Úði 99-177
og Ás 99-178 hjá Sigurði
á Hnappavöllum eru mjög
vel gerðir hrútar, feikilega
þéttvaxnir og lágfættir en
þeir eru báðir synir Asks
97-835. Starri 99-370 á
Lita-Hofí er einn af hinum
fjölmörgu þéttvöxnu og
gallalitlu sonum Mola 93-
986 og var talinn besti
hnítur sveitarinnar. Hálf-
bræður hans, Börkur 99-
578 hjá Emi á Hofi, Sómi
hjá Guðmundi á Hnappa-
völlum og Bjartur hjá
Sigurði á Hofi, eru allt
mjög góðir hrútar.
Vestur-
Skaftafellssýsla
Umtalsverð fækkun var
á tjölda sýndra hrúta í
sýslunni en þeir voru sam-
tals 209 og af þeirn átta úr
hópi gamlingjanna.
Veturgömlu hrútamir vom
að meðaltali örlitlu léttari
en haustið áður eða 80,9
kg nú. Flokkun þeirra var
hins vegar nokkru betri
þar sem 188 (94%) vetur-
gömlu hrútanna fengu I.
verðlaun.
I gamla Hörgslands-
hreppi voru færri veru-
lega athyglisverðir hrútar
en á síðasta ári. Sóli 99-
135 á Prestsbakka bar þar
af, vænn, bollangur og
feikilega útlögumikill
hrútur. Hann er sonur
Bassa 95-821.
Á sýningunni á Kirkju-
bæjarklaustri skipuðu
efstu sætin tveir synir
Pela 94-810. Fleygur 99-
578 á Kirkjubæjarklaustri
II var þeirra bestur, feiki-
lega jafnvaxinn og föngu-
legur hrútur með mikla
og góða ull og skipaði
fimmta sæti hrúta í sýsl-
unni. Hálfbróðir hans
Váli á Geirlandi, fæddur í
Mörk, líkist honum um
flest, en hefur ekki alveg
jafn þykkan bakvöðva.
I Landbrotinu var eins
og oft mikið hrútaval. Þar
báru að þessu sinni af
hrútamir í Fagurhlíð. Sér-
staklega vöktu athygli
hálfbræðurnir Leiri 99-
062 og Dúlli 99-061, sem
báðir eru synir Garps 92-
808. Hrútar þessir em al-
hvítir, með góða ull,
nokkuð sem yfirleitt er
40 - pRGVR 6-7/2001