Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2001, Qupperneq 60

Freyr - 01.05.2001, Qupperneq 60
Lambhrútur nr. 1031 á Staðarbakka ÍHörgárdat. Samband eiginleika í ómsjármælingum Á myndum er sýnt samband ein- stakra þátta í ómsjármælingunum, þykkt vöðva, fituþykkt og lögun vöðva, hjá afkvæmahópum undan stöðvarhrútunum fyrir annars vegar hrútlömb og hins vegar gimbrar undan þeim. Þama má sjá að fyrir alla þessa þætti er þetta samræmi mikið. Einstaka frávik má að sjálf- sögðu sjá. Sum þeirra byggja á með- altölum, sem byggja á tiltölulega fáum lömbum, og meðaltalið í sam- ræmi við það ekki mjög nákvæmt. Greinilegt er að fyrir mæliþætti þá er samræmið rninna fyrir mælingar á fituþykkt. Það er í fullu samræmi við þá niðurstöðu sem vel er þekkt að nákvæmni þeirrar mælingar er verulega minna en mælingarinnar á vöðvaþykkt. Ánægjulegt er að sjá tiltölulega mikið samræmi í mati á lögun bakvöðvans hjá hrútunum og gimbrunum. Það styður það að slíkt mat sé verðmætur viðbótarþáttur í upplýsingaöflun. Þegar skoðað er samband á milli lögunar og fitu- þykktar reynist það ekki mikið en það, sem má greina, er neikvætt þannig að eftir því sem ómfita verð- ur meiri er einnig viss tilhneiging til að lögun verði slakari. Samband lögunar og þykktar vöðva er hins vegar jákvætt, þannig (Ljósm. Ólafur G. Vagnsson). að að öðru jöfnu er algengara að saman fari þykkur og vel lagaður vöðvi en öfugt. Þá er það jákvæð niðurstaða að sjá í hópi þessara hrúta að samhengi vöðva- og fitu- þykktar er neikvætt. Það er feiki- lega mikilvægt að inn á stöðvamar náist að veljast hrútar þar sem sam- an fer þykkur vöðvi og þunn fita. Það er þekkt úr kjötmatinu að þar er almennt neikvætt samband á milli flokkunar fyrir fitu og gerð, þannig að þar fer saman góð gerð en full mikil fita. Vísbendingar um að þetta komi hins vegar ekki fram í ómsjármælingum fyrir lömb und- an stöðvarhrútunum er því mjög já- kvætt. Einn þáttur enn, sem fram kemur í samanburði á tölum fyrir afkvæmahópa sem rétt er að benda á, er að yfirburðir hymdu hrútanna umfram þá kollóttu í þykkt bak- vöðva virðast ívíð minni í gimbrum en hrútum og er hér vafalítið um lífeðlisfræðilegan þroskamun að ræða sem rétt er að gera sér grein fyrir. Afkvæmi hyrndu stöðvarhrútanna Af hyrndu hrútunum á stöðinni í Borgarnesi, sem áður höfðu verið á stöð, var langstærsti lambahópur- inn undan Mola 93-986 og raunar stærsti lambahópurinn í skoðun undan einum hrút á landinu. Áfram sýndi hann yfirburði en alls ekki jafn afgerandi og verið hafði und- angengin tvö haust. Mjaldur 93- 985 átti einnig mjög stóran lamba- hóp og komu hrútlömbin undan honum mjög vel út eins og áður, jafnvel ívíð betur í samanburði við t.d Mola en áður hafði verið. Njóli 93-826 átti stóran hóp lamba og mátti finna þar mörg verulega kostamikil lömb. Undan Sunna 96- 830 var einnig stór lambahópur og aðalsmerki þeirra er eins og áður þykkur bakvöðvi. Aðrir hrútar sem höfðu áður verið í notkun áttu minni lambahópa sem einnig kvað minna að. Af hymdu hrútunum í Borgar- nesi, sem nú áttu sinn fyrsta lamba- hóp eftir sæðingar, var Prúður 94- 834 um margt óumdeildur sigur- vegari. Undan honum kom mikið af feikilega vel gerðum lömbum þar sem framúrskarandi lærahold vöktu sérstaka athygli en stórgölluð ull spillti því miður of mörgum af þessum lömbum. Feikilega stór lambahópur var í skoðun undan Aski 97-835. Margt af þessu vom stórglæsileg lömb að gerð, en ollu of mörg vonbrigðum vegna þess að bakvöðvi var ekki eins þykkur og æskilegt væri og of mörg þeirra einnig of fitusækin. Serkur 07-936 átti einnig mjög stóran lambahóp og þama fer vafalítið mikil framtíð- arkind fyrir sæðingarstöðvamar því að hjá afkvæmum hans má finna umtalsverða kosti í þeim þáttum sem snúa að kjötgæðum. Af eldri stöðvarhrútum í Laugar- dælum átti Stubbur 95-815 stærsta lambahópinn. Um afkvæmi hans má segja það sama og árið áður. Mörg þeirra eru feikilega vel gerð og stigast frábærlega vel, í ómsjár- mælingum er hins vegar hvorki þykkt bakvöðva né lögun í sam- ræmi við þennan glæsileika. Bjálfi 95-802 var nú kominn í notkun á Suðurlandi. Hann skilaði þar þykk- um og vel löguðum bakvöðva hjá afkvæmum. Kúnni 94-997 var eins 60 - FrCVR 6-7/2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.