Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2001, Page 61

Freyr - 01.05.2001, Page 61
Vöðvi hrútar-gimbrar 2000 Mynd 2. Samband á milli þykktar ómvöðva gimbra og hrúta undan sæðingar- stöðvarhrútum haustið 2000. Fita hrútar-gimbrar 2000 Mynd 3. Samband á milli fitu gimbra og hrúta undan sæðingarstöðvarhrútum haustið 2000. Lögun hrútar-gimbrar 2000 Mynd 4. Samband á milli lögunar bakvöðva gimbra og hrúta undan sæðingar- stöðvarhrútum haustið 2000. og áður að skila greinilegum yfir- burðum í bakvöðvaþykkt hjá gimbrum undan honum sem komu í mælingu. Tveir nýju hrútanna áttu lang- stærstu lambahópana frá Laugar- dælastöðinni þetta haustið, þeir Massi 95-841 og Lækur 97-843. Massi var að skila miklu af mjög vel gerðum lömbum til stigunar, en aðeins misjöfnum í þroska. I óm- sjármælingum voru þessi lömb hins vegar aðeins um meðaltal hymdu hrútanna um þykkt bakvöðva og sum aðeins of feit. Lækur 97-843 átti feikilega stóran hóp af stór- glæsilegum lömbum. í ómsjármæl- ingum komu synir hans einnig prýðilega út eins og sjá má í töfl- unni. Sónn 95-842 sýndi ótrúlega yfirburði umfram alla stöðvarhrúta í ómsjármælingum haustið 2000 eins og lesa má í töflunni. Stigun lamba undan honum var hins vegar mun lakari en hjá afkvæmum hinna tveggja hrútanna sem að framan eru nefndir. Einnig kom hann mun lakar út með kjötmat en hinir hrút- arnir í skipulegum samanburði þeirra í afkvæmarannsóknum á vegnum Bsb. Suðurlands. Ef til vill er hann dæmi um einstakling sem sýnir of einhliða yfirburði í aðeins einum eiginleika. Afkvæmi kollóttu hrútanna Eins og oft áður voru aðeins fáir af kollóttu hrútunum í Laugardæl- um sem áttu það mörg afkvæmi í skoðun um haustið að mynda mætti sér einhverja skoðun um þau á þeim grunni. Bassi 95-821 átti stærstan hóp lamba. Margt af þeim voru mjög vel gerð lömb og bakvöðva- þykkt þeirra mældist meiri en áður hefur verið að finna hjá afkvæmum kollóttu hrútanna. Eir 96-840 kom í fyrsta sinn með lömb eftir sæðingar. Sá hópur gaf honum góðan vitnisburð. Mikið var af stór- glæsilegum hútsefnum undan hon- um. Sveppur 94-807 átti einnig all- stóran lambahóp. Þetta voru áber- andi þroskamikil og vel gerð lömb, en bakvöðvi hjá þeim er hins vegar of þunnur eins og sjá má í töflunni. Eldri kollamir, sem í notkun vom í Borgamesi, stóðust í afkvæmum sínum á engan hátt samanburð við nýliðana. Þar féll sigurinn tvímæla- laust í hlut hálfbræðranna frá Hey- dalsá, Dals 97-839 og Klængs 97- 839. Báðir þessir hrútar vom að skila miklu af vemlega glæsilegum hrútsefnum þó að yfirburðir Dals væru talsverðir og út frá þessari fyrstu reynslu sýnist hann einhver allra efnilegasti kollóttur hrútur sem enn hefur komið til notkunar á sæðingarstöðvunum. PR6VR 6-7/2001 - 61

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.